Þjóðlíf - 01.02.1990, Page 72
FLUG HÓTEL er fyrsta flokks hótel með 39 herbergjum og auk þess 3 svítum. Öll herbergin
eru búin gervihnattasjónvarpi, síma, útvarpi og minibar. í hotelinu er veitingasalur, bar og
bílageymsla í kjallara hússins. Ráðstefnu- og veislusalur er á jarðhæð.
FLUG HÓTEL býður gestum reyklaus herbergi og herbergi sérhönnuð fyrir fólk í hjólastól.
Þeir sem þurfa oft að ferðast til útlanda, þekkja óþægindin af því að þurfa að vakna um miðja
nótt til að ná morgunfluginu til Evrópu, aka Reykjanesbrautina í misjöfnum veðrum um
hávetur við misjafnar aðstæður. Peir þekkja stressið sem þessu fylgir. Þetta er nú liðin tíð.
Byrjið viðskiptaferðina eða fríið á FLUG HÓTEL.
Láttu okkur vita með hvaða flugi þú ætlar og við fylgjumst með brottfarartíma fyrir þig og
vekjum þig á réttum tíma. Þú færð morgunverð og við ökum þér upp í flugstöð, á okkar
kostnað.
# Við geymum fyrir þig bflinn á meðan þú ert erlendis, í upphitaðri bflageymslu í kjallara
hótelsins, þér að kostnaðariausu, á meðan húsrúm leyfir.
Félög, fyrirtœki, félagasamtök, vinahópar, saumaklúbbar
skipshafnir og allskonar hópar.
FLUG HÓTEL gerir tilboð í hverskonar ráðstefnuhald, fundarhöld, veislur og samkomur.
Ef þú leitar eftir aðstöðu til að halda ráðstefnu, fund eða veislu, fáðu þá tilboð frá okkur.
Við gerum þér tilboð í gistingu og/eða veitingar. Allt eftir þínum þörfum og óskum.
Ef þú hefur telefax, sendu okkur þá línu eða taktu símann.
Síminn okkar er 92-15222 og telefaxnúmerið er 92-15223.
VERIÐ ÁVALLT VELKOMIN