Þjóðlíf - 01.02.1990, Qupperneq 76

Þjóðlíf - 01.02.1990, Qupperneq 76
„Við höldum að yngri kiakkar láti frekar blekkjast“. Geirþrúður, ValurogHrafnhildur. auglýsingar á neysluvörum sem ekki telj- ast með þeim hollari eru hávaðasamar, þar er allt byggt upp á miklum hraða og oftar en ekki er sungið á erlendu máli. Börnin læra þessa texta án þess að vita hvað þeir þýða, notagildi vörunnar er hins vegar aukaatriði. Af hverju má ekki hafa íslensk þjóðlög í þessum auglýsingum? Það væri þá a.m.k. einhver jákvæður boðskapur í þeim. Við höfum nýlega séð dæmi um eina slíka auglýsingu; stuttu teiknimyndina um strákinn sem fékk sér ost og fór með „ísland ögrum skorið“ eins og ekkert væri. Þarna er holl neysluvara auglýst og sígilt íslenskt ljóð notað að auki.“ Telur þú, Kristján, að margar auglýsing- ar fari yfir mörk siðareglnanna? „Ekki man ég í augnablikinu eftir ein- stökum auglýsingum sem hafa bersýni- lega farið yfir þau mörk. Hins vegar tel ég að margar þeirra mættu vera til umræðu hjá siðanefnd auglýsingastofa. Þó er eitt atriði sem ég vil nefna í þessu sambandi og það er hvernig auglýsingar á Stöð 2 eru afmarkaðar á laugardags- og sunnudags- morgnum. Vissulega eru þær undir þeim lið sem heitir „Auglýsingar“, en krakkar sem ekki eru læsir gera sér varla grein fyrir að svo sé. Til dæmis er algengt að einhver „fígúra“ er auglýst á undan eða eftir teiknimynd þar sem hún er sjálf hetjan. Ég nefni sem dæmi He-man og Transfor- mers og spyr síðan: Hvort er auglýsingin gerð til að auglýsa teiknimyndina eða teiknimyndin gerð til að auglýsa þessa kalla? Ég er ekki frá því að kallarnir séu framleiddir fyrst og síðan eru gerðar teiknimyndir til að auglýsa þá. Ef þetta er það sem auglýsingamenning býður ís- lenskum börnum upp á, þá tel ég að þar til gerðar auglýsingar séu ekki af hinu góða. Aftur á móti ef þær gæfu almennar upp- lýsingar um vöruna og sköpuðu jákvætt viðhorf hjá börnunum, þá er slíkt af hinu góða,“ sagði Kristján að lokum. rír 12 ára krakkar, þau Geirþrúður Guttormsdóttir, Hrafnhildur Hann- esdóttir og Valur Árnason, voru fengnir til að ræða um auglýsingar og hvort þær hefðu áhrif á neyslu þeirra. „Það fer allt eftir því hvernig auglýsing- in er sett upp og hvernig gæði hennar eru. Ef við tökum t.d. gosdrykki, þá langar mann miklu frekar í kók þar sem girnileg- ir pizzu- og hamborgararéttir eru sýndir ásamt flöskunni, heldur en auglýsingar þar sem léttklætt fólk er að synda. Við höldum þó að yngri krakkar láti frekar blekkjast óháð því hvernig auglýsingin er NEYTENDAMÁL misnota trúgirni barna eða reynsluskort þeirra. í samþykkt Alþjóðaverslunarráðs- ins frá árinu 1984 um auglýsingar og börn eru eftirfarandi atriði nefnd: 1) Auðkenning. Auglýsing skal vera auð- kennd frá öðrum dagskrárliðum eða efni blaða þannig að ekki verði um villst að um auglýsingu sé að ræða. 2) Ofbeldi. Auglýsingar mega ekki sýna ofbeldi þar sem það er andstætt lögum eða siðvenjum. 3) Gildismat. Ekki má gefa í skyn að um- ráð eða notkun vöru veiti barni líkamlega, félagslega eða sálfræðilega yfirburði yfir jafnaldra sína, eða að það hafi öfug áhrif að vera án vörunnar. 4) Öryggi. Auglýsingar mega ekki inni- halda yfirlýsingar með myndefni sem gæti orðið þess valdandi að börn komist í hættu. 5) Sannfæring. Auglýsing skal ekki fela í sér áskorun til barna um að telja aðra á að kaupa hina auglýstu vöru handa þeim. 6) Framsetning. Tryggja skal að auglýs- ing villi ekki um fyrir börnum hvað varðar rétta stærð, verðmæti, endingu og nota- gildi auglýstra vara. Sé aukahluta þörf (t.d. rafhlaða) til að nota vöruna, ætti að gefa slíkt skýrt til kynna. Sé vara hluti af flokki, röð eða stærri heild, ætti einnig að taka það skýrt fram, svo og hvar og hvernig megi afla sér þess sem á vantar. 7) Verð. Hugmynd um verð á ekki að gefa þannig að börn ofmeti raunverulegt verð- mæti vörunnar, t.d. vegna notkunar orð- anna „einungis" eða „aðeins". Auglýsing- ar eiga ekki heldur að gefa í skyn að allar fjölskyldur hafi ráð á að eignast eða neyta tiltekinnar vöru. Hjá Sambandi íslenskra auglýsinga- stofa (SÍA) fengust þær upplýsingar að ekkert kærumál vegna brota í auglýsing- um er höfða til barna hafi borist til siða- nefndar auglýsingastofa á allra síðustu ár- um. Á auglýsingastofum vissu menn hvort einhver hugmynd færi yfir mörkin. Hins vegar væru margar þeirra nokkuð á mörkunum, en enginn séð ástæðu til að kæra enda kæmu flest mál til siðanefndar- innar frá framleiðendum sem álitu að sam- keppnisaðili hefði gerst brotlegur. „Ég tel að gerð auglýsinga sem höfða til barna sé of mikið bundin við glys, hávaða og orðaleiki,“ segir dr. Kristján Guð- mundsson, sálfræðingur, en hann hefur í nokkur ár safnað auglýsingum sem hann hefur notað í kennslubók í auglýsingasál- fræði fyrir framhaldsskóla. „Auglýsingar sem þessar eru vafasamt fyrirbrigði og eru alls ekki gerðar til að upplýsa börn um raunveruleg gæði vörunnar. Til að mynda 76 ÞJÓÐLÍF
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.