Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2013, Side 67

Frjáls verslun - 01.03.2013, Side 67
FRJÁLS VERSLUN 3. 2013 67 Það verður athyglisvert að fylgjast með áherslum nýrrar ríkisstjórnar. Stóra spurn ­ ingin er hvort hægt væri að nýta sér þær frekar og draga þannig úr byggingamagni og hrikalegri fjárþörf sem fylgir stækkun Landspítalans. Það eru ekki allir sem átta sig á að á hverj um virkum degi fara fram hátt í 80 skurðaðgerðir utan opinberra sjúkra stofn ­ ana á Íslandi, eða um 17 þúsund skurð ­ að gerðir á ári, og eru þær fram kvæmdar á fimm einkareknum skurðstofum á höfuð borgarsvæðinu og á Akureyri. Á meðan er Landspítalinn með ríflega 9 þús und skurðaðgerðir á ári sem teljast utan bráðaskurðaðgerða og rúmlega 17 þúsund skurðaðgerðir í það heila. Einka ­ stofurnar eru því enginn eftirbátur Land ­ spítalans hvað varðar fjölda aðgerða, þótt vissulega sé munur á því um hvers konar aðgerðir er að ræða. Það er því ljóst að einkareknu skurðstofurnar draga úr álagi á Landspítalann og „tappa af kerfinu“ svo um munar. Erfitt er að ímynda sér hvernig ástand ­ið væri ef Landspítalinn, ásamt öðr ­um sjúkra stofnunum á vegum hins opinbera, ætti að sjá um allar þær að gerðir sem núna fara fram á einkareknu skurð stof ­ unum. Skurðstofurnar eru þar að auki bara einn angi af einkareknu heilbrigðisþjónustunni. Árlega eiga sér stað um 1,5 milljón komur til lækna á Íslandi – og er þar átt við lækna á Landspítala, heilsugæslulækna og sjálfstætt starfandi lækna. Þar af eru um 455.000 komur til sjálfstætt starfandi klínískra lækna – um þriðjungur allra læknisheimsókna. Heildarkostnaðurinn við þjónustu sjálf ­ stætt starfandi lækna að meðtöldum öllum aðgerðum var 5.037 milljónir króna á árinu 2011. Þar af greiddu Sjúkratryggingar ríkis ­ ins 3.459 milljónir en sjúklingarnir sjálfir 1.553 milljónir. Greiðslur ríkisins vegna sjálf stætt starfandi lækna voru því rétt um 2,4% allra heilbrigðisútgjalda hins opinbera það ár, sem voru 147 milljarðar króna. Ætlað er að um 350 ársverk séu unnin á einka­ rekn um læknastöðvum um allt land. Meðal ­ fjöldi ársverka á Landspítalanum háskóla ­ sjúkrahúsi var á sama tíma um 3.641 ársverk. Hagkvæmur rekstur Síðustu ár hefur verið nokkur vöxtur í starf semi einkarekinnar sjúkraþjónustu og sem dæmi má nefna að komum til sjálfstætt starfandi lækna fjölgaði um 10% milli áranna 2008 og 2011. Það má að ein ­ hverju leyti skrifa á samdrátt hjá hinu opinbera og lokun sjúkrastofnana á borð við Landakotsspítala og St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. Þannig hefur opinberum stofnunum tekist að spara í sínum rekstri með því að minnka eða leggja nið ur ákveðna starfsemi sem einkareknu stof urn­ ar hafa tekið við að hluta. Þar með losnar hið opinbera þó ekki al farið við útgjöld vegna þessarar starf ­ semi, því Sjúkratryggingar Íslands greiða stóran hluta af kostnaði við meðferðir á einkareknum læknastöðvum. Hins vegar má leiða að því líkum að verið sé að færa aðgerðirnar þangað sem almennt er hag ­ kvæmara að framkvæma þær. Í úttekt sem Sólveig Jóhannsdóttir, þáver ­ andi hagfræðingur Læknafélags Íslands og núverandi framkvæmdastjóri þess, vann fyrir Læknafélagið árið 2009 kom t.d. fram að kostnaður hins opinbera við komur til sérgreinalækna á einkareknum stöðvum væri álíka mikill og kostnaður við komur á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Þar sem kostnaðartölur einkareknu stöðv­ anna innihalda ekki bara læknisviðtöl heldur líka kostnaðarsamar aðgerðir á borð við skurðaðgerðir hljóta þessar tölur að vera góð vísbending um að þjónusta sem veitt er á einkareknu stöðvunum sé hag ­ kvæm fyrir hið opinbera. Að mati þeirra sem starfa í greininni er minni yfirbygging, hagkvæmari rekstur, styttri boðleiðir, færri fundir, skjótari afgreiðsla og hraðari inn ­ leiðing á nýjungum í læknismeðferðum meðal ástæðna þess að ódýrara sé að veita þjónustu á einkareknum læknastöðvum frekar en opinberum. samningurinn við einkareknu stöðvarnar ekki endur nýj aður Á þessu er jafnframt annar flötur sem er kostnaðarþátttaka sjúklinga. Samningar Sjúkratrygginga Íslands við einkareknar læknastöðvar runnu út í lok mars 2011 og Eitt lítið dæmi um hagkvæmni einka- stofanna er kvið- slitsaðgerð sem fyrir tuttugu og fimm árum hefði þýtt legu á sjúkra- húsi í tíu daga en er núna framkvæmd á fjórum klukkustundum á einkastofunum, þ.e. með svæfingu og hvíld.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.