Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.02.2012, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 16.02.2012, Blaðsíða 1
vf.is Metan er innlendur og umhverfisvænn orkugjafi sem er helmingi ódýrari en bensín. Nýttu þér kosti metans með Volkswagen. K. Steinarsson – Njarðarbraut 13 420 5000 - heklakef@heklakef.is Das Auto. TM Opið allan sólarhringinn Fitjum NÝTT Morgunverðar-matseðill Aðeins í boði áSubway Fitjum 14. tölublað • 32. árgangur • Fimmtudagurinn 7. apríl 2011 Mjódd - Salavegur - Hverafold - Akureyri - Höfn - Grindavík - Reykjanesbær Skráðu þig á póstlistann á www.netto.is 989kr/stk. Tilboðsverð! 339kr/stk. Tilboðsverð! Easy ÞvoTTaEfni aloE vEra 2.7 kg Easy MýkingarEfni 2 l | www.flytjandi.is | sími 525 7700 | VIÐ ERUM DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND Víkurfréttir ehf. Grundarvegur 23 - 260 Reykjanesbær Sími 421 0000 - Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Það er háspenna í körfuboltanum í Reykjanesbæ þessa dagana. Keflavík og KR eigast við í undan- úrslitum Iceland Express-deildar karla í körfuknattleik og staðan í viðureign liðanna er 2:2. Oddaleikur verður í viðureign liðanna í KR-heimilinu í Reykjavík í kvöld. Spennan er ekki minni í úrslitaviðureign Keflavíkur og Njarðvíkur í kvennaboltanum. Þar er staðan reyndar orðin 2:0 fyrir Keflavík eftir tvo æsispennandi háspennuleiki. Keflavíkurstúlkur geta orðið Íslandsmeistarar kvenna með sigri á Njarðvíkurstúlkum í Keflavík annað kvöld, föstudagskvöld. VF-mynd: HBB Æsispennandi körfuknattleikir - sjá nánar á bls. 23 Víkurfréttir Grundarvegur 23, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001 F i m m t u d A G u R i n n 1 6 . F E B R Ú A R 2 0 1 2 • 7 . t ö l u B l A ð • 3 3 . á R G A n G u R Holtsgötu 52 - 260 Reykjanesbæ s. 420 5000 - Fax: 421 5946 Njarðarbraut 1 | Reykjanesbæ | 421 8808 | www.bilahusid.is | bilahusid@bilahusid.is Bílasala og þjónustuverkstæði ›› Leikskólinn Heiðarsel: Ta n n v e r n d a r v i k a v a r í skólum landsins nú í byrjun mánaðar. Þemað tengdist sykri í matvælum og sælgæti og sykurneyslu. Heiðarsel í Reykjanesbæ var með ýmiskonar fræðslu í þess- ari viku. Rætt var um tenn- urnar, þær skoðaðar í spegli, börnin voru að telja þær og rætt var um hvað skemmdi þær. Einn kennarinn saumaði sér- staka svuntu fyrir þessa viku með mörgum vösum og var með fræðslu fyrir börnin á því sem var í vösunum en í þeim var: Tannkrem, tannbursti, tannþráður, myndir af hollu og óhollu, myndir af heilum og skemmdum tönnum. Þá var mynd af tré með rót og önnur með tönn með rót síðan var rætt um hvort þetta væri eitt- hvað svipað, tönnin og tréð. Í framhaldi af þessari viku voru svo nokkrir kennarar leikskól- ans með leikritið um Karíus og Baktus á degi leikskólans sem var haldinn hátíðlegur í síðustu viku. Á meðfylgjandi mynd má sjá tvö börn á Heiðarseli með Karíusi sjálfum. Karíus kíkti í heimsókn Um helgina verður kátt í Höl inni eins og segir í kvæðinu en þá munu í úar Reykjanes- bæjar flykkjast í Laugardali og hvetja l ð sí til sigurs í bikarkeppninni í körfubolta, en bæði Njarðvíkingar og Keflvíkingar eiga fulltrúa í úrslitaleikjunum tveimur. Keflvíkingar mæta Tindastól í úrslitaleik karla klukkan 16:00 en klukkan 13:30 mætast Njarðvíkingar og Snæfell í kvennaflokki. Ítarlega umfjöllun um leikina má finna í Víkurfréttum í dag. Bikarhelgi hjá Keflavík og Njarðvík í Laugardalshöll Keflavíkurflugvöllur veitti besta þjónustu evrópskra flugvalla með undir 2 millj- ónum farþega á ári að mati þátttakenda í viðamikilli könnun alþjóðasamtaka flugvalla, Airports Council International. Flugvöllurinn fékk raunar flest heildarstig allra evrópskra flugvalla líkt og árið 2009 en taldist nú í nýjum flokki smærri flug- valla sem ekki koma til álita í fyrsta sæti allra flugvalla. Þjónustukönnunin er fram- kvæmd á 186 helstu flugvöllum heims, þar af 54 í Evrópu og svara farþegar spurningum um gæði 36 þjónustuþátta. Niðurstöður eru birtar árs- fjórðungslega og heildarárangur árlega. Keflavíkurflugvöllur hefur jafnan verið í efstu sætum evrópskra flugvalla frá því að hann hóf þátttöku í könnuninni árið 2004. Hann var valinn besti flugvöllur Evrópu árið 2009 og var í öðru sæti árið 2010 ásamt því að vera í þriðja sæti á heimsvísu árið 2004 í flokki flugvalla með undir fimm milljónir farþega á ári. Keflavíkur- flugvöllur skarar jafnan framúr í heildaránægju farþega, kurteisi og hjálpsemi starfsfólks, auð- veldu tengiflugi, notalegu and- rúmslofti, hreinlæti og biðtíma í öryggisleit. Einnig eru farþegar mjög ánægðir með skjóta af- greiðslu farangurs, aðgengi að farangurskerrum, bankaþjón- ustu og veitingastaði í flugstöð- inni. Möltuflugvöllur var valinn besti evrópski flugvöllurinn með yfir 2 milljónir farþega en Incheonflugvöllur í Suður Kóreu bestur á heimsvísu. „Við erum stolt af þessum glæsilega árangri sem stað- festir að starfsfólk Keflavíkur- flugvallar er fagfólk á heims- mælikvarða. Þjónustukönnun ACI er mikilvægt verkfæri til þess að meta gæði einstakra þjónustuþátta og frammistöðu við að mæta þörfum viðskipta- vina. Ég óska öllu starfsfólki á Keflavíkurflugvelli til hamingju með þennan glæsilega árangur“, segir Björn Óli Hauksson forstjóri Isavia sem annast rekstur Keflavíkurflugvallar. Þjónusta við flugfarþega á Kefla- víkurflugvelli nær til allra flug- vallarstarfsmanna. Fagmennska og samstillt átak þeirra tryggir að afgreiðsla verði ávallt með skjótum og öruggum hætti. Forráðamenn Keflavíkurflug- vallar og rekstraraðila fagna þessum frábæra árangri og þakka starfs- mönnum glæsilega frammistöðu. Keflavíkurflugvöllur aftur valinn bestur í Evrópu árið 2011

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.