Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2008, Blaðsíða 16
miðvikudagur 25. júní 200816 FERÐIR DV
Brottfluttir Ólafsvíkingar sjómenn.
Skorum á brottflutta Ólsara og aðra
velunnara að skemmta sér með okkur
helgina 4-6 júlí.
Ólafsvíkurvaka
4-6 Júlí
Ólafsvík
www.vesturland.is
H
ild
ur
H
lín
Jó
ns
dó
tt
ir
/ h
ild
ur
@
dv
.is
Óbyggðir Íslands toga marga til
sín jafnt vetur sem sumar. Frá miðju
sumri er þó tíminn sem flestir eiga
þess kost að komast til fjalla, enda er í
mörgum tilvikum nægjanlegt að eiga
óbreyttan jeppa til þess að aka helstu
fjallvegi. Fjölmargir sækjast einfald-
lega eftir kyrrðinni á hálendinu og sá
hópur fer vaxandi sem leggur í lengri
göngur á hálendinu þegar líða tekur
á sumarið.
„Ég hefði vel getað hugsað mér að
komast í Hornvík í sumar eða í ein-
hverja aðra afskekkta eyðibyggð,“
segir Ómar Ragnarsson. Eins og
þekkt er orðið hefur Ómar flækst um
víðerni hálendisins áratugum sam-
an. „Nú er reyndar svo komið að ég
má ekkert vera að því að slappa af.
Ég er viðstöðulaust að safna saman
myndefni af þeim svæðum sem á
endanum verða virkjuð,“ segir Ómar.
Þegar samband náðist við Ómar
var hann á ferð í grennd við Leir-
hnjúk og Gjástykki að mynda. Hann
segir að sín fyrsta skylda við íslenska
náttúru sé að safna saman mynd-
um og upplýsingum til þess að kom-
andi kynslóðir geti séð hvernig um-
horfs var á landinu áður en lagt var
út í stórar virkjunarframkvæmdir.
„Hérna fyrir norðan er engan bilbug
á mönnum að finna. Ég þarf að ná
þessum myndum áður en farið verð-
ur af stað með tilraunaboranir.“ Bor-
holur í Gjástykki norðan Kröflu eru
fyrirhugaðar vegna álvers á Bakka
við Húsavík.
„Í seinni tíð hef ég tekið eftir því að
útlendir ferðamenn koma hingað til
þess að njóta friðarins og náttúrunn-
ar. Þetta fólk hefur séð nóg af iðnaði.
Við Íslendingar virðumst hins vegar
alltaf vera að skoða virkjanir, stíflur,
skurðgröfur og fleira þess háttar. Nú
er ég til dæmis að koma inn á svæð-
ið sem alþjóðasamtök um ferðalag til
Mars höfðu valið sér til æfinga. Það
eru líkur á því að þetta fólk skipti um
skoðun þegar hérna verður komin
virkjun.“
sigtryggur@dv.is
LEIta í FRIÐsæLd
náttúrunnar
Ómar Ragnarsson skrásetur náttúru
á fyrirhuguðum virkjunarslóðum.
Ekið yfir Ísland Það getur verið
tilkomumikið að sjá einsleitt hraunið
svo langt sem augað eygir.
Vin í eyðimörk víða á
hálendinu geta ferðalangar hvílt
lúin bein í heitum laugum. Hér
er staðnæmst við Laugarfell.
Hættur leynast víða Þótt hálendisvegir séu
margir aðgengilegir má sums staðar vara s
ig á
straumhörðum fljótum og öðrum hættum
.
Í Víti gígurinn víti við Öskjuvatn er
einn af vinsælustu ferðamannastöð-
unum á hálendinu.
Víðerni Vatnajökuls vatnajökull
er orðinn að stærsta þjóðgarði í
Evrópu. Hér er horft ofan frá
kverkfjöllum yfir dyngjujökul.
Náttúran skrásett ragnar axelsson ljósmyndari hefur ásamt fleirum verið ötull við að ljósmynda náttúru íslands.
Í Dyngjufjöllum Ferðalang-
ur á gangi í Ódáðahrauni.
dyngjufjöll eru í baksýn.