Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2008, Blaðsíða 44
miðvikudagur 25. júní 200844 FERÐIR DV
Smakkaði lunda í fyrsta sinn
,,Eftirminnilegasta ferðalagið mitt
hér innanlands er þegar við hjónin
vorum nýbúin að kynnast og bjuggum
eitt sumarið fyrir vestan hjá tengdafor-
eldrum mínum. Ég hafði aldrei áður
komið á Vestfirðina en kolféll fyrir
þeim enda hef ég tengst Ísafirði órjúf-
anlegum böndum eftir að ég kynntist
manninum mínum en hann er alinn
upp þar. Við buðum foreldrum mín-
um að skella sér vestur til okkar og
saman fórum við ásamt fjölskyldum
okkar í sannkallaða ævintýraferð þar
sem Vestfirðirnir voru skoðaðir ítar-
lega en þar er án efa að finna marg-
ar af fallegustu náttúruperlum lands-
ins. Við keyrðum meðal annars fyrir
Sléttanesið sem er á leiðinni frá Arnar-
firði og yfir í Dýrafjörð en það er heldur
glæfralegur vegslóði. Gæta þarf flóðs
og fjöru á þessum stað og varla hægt
að mæta öðrum bílum en það er svo
fallegt þarna að það er vel þess virði að
leggja leiðina á sig. Við sigldum einnig
út í Vigur og þar smakkaði ég lunda í
fyrsta sinn og má með sanni segja að
hann hafi verið algjört sælgæti. Einnig
er gaman að gera sér ferð yfir í Selárdal
í Arnarfirði og skoða minjarnar þar en
þá er bráðnauðsynlegt að muna eftir
myndavélinni.“
AnnA Rún FRímAnnsdóttiR
dAgskRáRkynniR deiliR eFtiR-
minnilegAstA FeRðAlAginu
sínu með lesendum dV.
Það þarf ekki alltaf að fara út fyrir landsteinanna til að láta dekra við sig á lúxushóteli því það leynast nokkur
slík víðs vegar um landið. DV fékk að kíkja inn á þrjú af þessum lúxushótelum sem finnast á Íslandi. Eitt á
Snæfellsnesinu, annað í Hvalfirðinum og það þriðja á Hellu.
LúxusLíF
í íslenskri
náttúru
Hótel Rangá á Hellu
Hótelið er eina fjögurra stjörnu hótelið á Suðurlandi og er það á milli Hellu og
Hvolsvallar. Á hótelinu eru 38 herbergi. útsýnið frá hótelinu er rosalega
fallegt, Hekla blasir við til norðurs, í suðaustri trónir Eyjafjallajökull og
vestmannaeyjar í suðri. Hótelið var kosið besta sveitahótelið á íslandi árið
2004 af Octopus Travel. Herbergin eru hlýleg og eru þau öll með baðkar. Heit-
ur pottur er utandyra og er sérverönd við hvert herbergi. Boðið er upp á
nudd, slökun og frítt háhraðanetsamband. Hótelið getur útvegað stangveiði-
leyfi, golf, hestaferðir, flúðasiglingar, vélsleðaferðir og jeppaferðir.
Hótel glymuR
í HvalfiRðinum
Á hótelinu eru 25 herbergi, þar af þrjár svítur. Öll
herbergin eru á tveimur hæðum með baðherbergi
og setustofu á neðri hæðinni og svefnherbergi á
efri hæðinni. Herbergin eru útbúin hágæða
ítölskum leðursófasettum og skreytt einstökum
listaverkum. Á öllum herbergjum er þráðlaust net,
flatskjár, sími og kaffivél. Tveir heitir pottar eru
utandyra og hægt er að fá nudd ef pantað er með
fyrirvara. í fallegri náttúrunni umhverfis hótelið eru
ennfremur fjölmargar skemmtilegar gönguleiðir
sem vert er að skoða og rölta um.
Hótel BúðiR á SnæfellSneSi
Á hótelinu eru 28 herbergi og fínn veitingastaður. Á veitingastaðnum er
boðið upp á íslenska matargerð í bland við alþjóðlegan mat. Hótelið gerir sig
meira út fyrir einstaklinga og litla hópa. Barinn er einn sá fjölbreyttasti á
landinu, býður upp á margar tegundir af líkjör. nettenging er á staðnum.
Staðurinn er mjög rómantískur og er tilvalið fyrir einstaklinga að komast í
náttúruna og njóta þess að vera íslendingur. um tíu mínútur frá hótelinu er
Lýsuhólslaug, en í henni er upphitað ölkelduvatn. Hægt er að fara í jöklaferðir
á Snæfellsjökli og hvalaskoðun í Ólafsvík, þó svo að hótelið reyni að gera
meira úr náttúrunni í kringum sig.