Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2008, Blaðsíða 14
miðvikudagur 25. júní 200814 FERÐIR DV
Það er fátt huggulegra en að stinga sér ofan í náttúrulega baðlaug eftir göngu í íslenskri nátt-
úru. Sumar af þessum laugum eru þó alls ekki auðfundnar en hér er útlistað hvernig hægt er að
komast að nokkrum af þessum notalegu laugum á Suðurlandi, Suðvesturlandi og á hálendinu.
Skátalaug
Skátalaug er við syðri enda kleifarvatns, nánar
tiltekið um 100 til 200 metra sunnan við Bleikhól sem
er vestan megin. Það er ökufært alla leið upp að
lauginni með fólksbíl. að öllum líkindum er laugin
grafin þarna en við annan enda laugarinnar sést
glitta í hleðslu úr torfi og grjóti.
inn í laugina rennur um 34°C heitt vatn frá upp-
sprettu í grenndinni í gegnum járnrör. Þar sem vatnið
rennur úr rörinu er lítil setlaug sem er um það bil 2,5
metrar í þvermál. úr setlauginni rennur vatnið svo í
mun stærri laug sem er nógu stór til að taka
sundsprett í. Botn laugarinnar er úr möl og mold og
gruggast mikið upp þegar fólk er í lauginni. Það
leynist þó jafnframt einhver þörungagróður í vatninu
en um þrjátíu og fimm til fjörutíu manns komast að í
lauginni í einu.
Það er engin aðstaða við laugina til að hafa fataskipti
en hægt er að leggja fötin frá sér á grasbala skammt
frá bakkanum, þar gæti þó verið talsvert um mold
svo betra er að hafa meðferðis poka.
NáttúRulEgaR
baðlaugar
Hrunalaug
Hrunalaug er um það bil 3 til 5 kílómetra frá Flúðum. Til að komast að
Hrunalaug er ekið frá veginum að Flúðum í átt að bænum Hruna eftir
vegi 325. Ekið er hægra megin framhjá bænum og svo er tekin næsta
beygja til vinstri inn að rimlahliði og þar aftur til vinstri og kringum lítinn
hól. Þá blasir Hrunalaugin við. Leiðin er fólksbílafær nema rétt síðustu
metrarnir. í raun er um tvær baðlaugar að ræða í Hrunalaug. Sú efri og
stærri er hlaðin úr grjóti inn í bakkann með malarbotni en vatnið
streymir um botninn innst í lauginni. vatnið úr þessari laug streymir
síðan í gegnum lítinn kofa og inn í steypta þró framan við hann. Ætla má
að þróin hafi fyrrum verið þvottalaug. Hún er 1,65 metrar að lengd og
1,50 metrar að breidd og dýpi er 1,1 metri. Botn hennar er einnig
steyptur. um 6-8 manns rúmast í aðallauginni en aðeins tveir í
þrónni. Hægt er að hafa fataskipti í kofanum en aðstaðan er frumstæð,
með kofann opinn á tvo vegu og laugarlækinn í gólfinu. Þar inni er þó
bekkur þar sem hægt er að leggja frá sér fötin. Ekkert grugg er í vatninu
og mjög lítið af þörungum en talsvert magn neðan laugarinnar.
MarteinSlaug
marteinslaug er um 2 kílómetra frá geysi. Beygt er til
vinstri rétt eftir að keyrt er framhjá geysi í Haukadal, þar
er keyrt þangað til um nokkrir tugir metra eru í kirkjuna
en þá ætti laugin að blasa við norðan við veginn ofan í
laut. Það er fólksbílafært alveg upp að lauginni og ekið á
bundnu slitlagi allt nema síðustu tvo kílómetrana.
umhverfið í kringum laugina er einstaklega viðkvæmt
en hægt er að leggja frá sér föt á grasið allt í kringum
hana. marteinslaug er uppspretta sem myndar holu í
jörðina og er aðeins að litlu leyti stífluð með grjóti.
vatnið í lauginni kemur upp um botninn og er hitastig
þess 43°C en ofar í lauginni um 39°C. Laugin er ekki ýkja
stór og aðeins um þrír til fimm geta baðað sig í einu.
mikill þörungagróður er í lauginni og gruggast vatnið
talsvert við notkun.
StrútSlaug
Ófært er að Strútslaug nema á jeppa og þarf að fara yfir
óbrúaðar ár til að komast að lauginni. keyrt er upp með
austanverðum mýrdalsjökli eða farin Fjallabaksleið syðri að
Strútsskála. Þaðan er gengið í um það bil eina og hálfa
klukkustund þar til komið er að lauginni. Laugin er á
árbakka og er skipt í tvennt með hleðslu. í öðrum hlutanum
er hitastigið 43°C en 37°C í hinum. umhverfis laugina er
víða blautt og mikill þörunga- og bakteríuvöxtur en í
lauginni gætir auk þess talsverðs örverugróðurs og leðju í
botninum. Strútslaug gruggast því við böðun. Engin
aðstaða er til fataskipta við laugina en allt að tuttugu og
fimm manns geta baðað sig í lauginni í einu. krista@dv.is
nautöldulaug
Laugin er um 34 kílómetra frá kerlingarfjöllum. Þegar komið
er að fjöllunum er beygt til vinstri rétt áður en komið er að
bensínafgreiðslu. Þaðan er jeppaslóði sem nær um 22
kílómetra að Setrinu, skála 4X4-hópsins. vegurinn nær ekki
alla leið að lauginni og því þarf að ganga um 13 kílómetra frá
Setrinu að rótum nauthagajökuls sem er skriðjökull úr
Hofsjökli. Laugin er austan megin við ána sem kemur úr
jöklinum í fremur hrjóstrugu umhverfi. Laugin er mynduð
með stíflu úr möl og grjóti. mesta dýpi laugarinnar er
einungis 0,5 metrar og komast ekki fleiri en fjórir til fimm að í
lauginni í einu. varast ber þó að laugin er fremur heit, um
47°C sem telst yfir heppilegum baðhita.
Heimildir um laugar eru fengnar
með góðfúslegu leyfi frá
heimasíðunni hot-springs.org.
Skátalaug
Hrunalaug
MarteinSlaug
nautöldulaug
StrútSlaug
myndir Sigurður H. markússon