Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2008, Blaðsíða 26
miðvikudagur 25. júní 200826 FERÐIR DV
Hjá sumum snýst lífið bara um ís... Aðalstræti 3 - Akureyri
Þingvellir
Staðurinn
Þingvellir standa í um hálftíma akstursfjarlægð frá
reykjavík. Þeir standa norðan við Þingvallavatn á
bökkum Öxarár. Þar eru margar náttúruperlur, þar á
meðal landfræðiundrið almannagjá þar sem
norður-ameríkuflekinn og Evrópuflekinn mætast.
Staðurinn er á heimsminjaskrá unesco.
Sagan
Þingvellir eru að mörgu leyti söguleg þungamiðja
landsins. Þar kom alþingi fyrst saman árið 930,
þjóðin var lýst kristin þar árið 1000 og íslendingar
lýstu yfir sjálfstæði á Þingvöllum 17. júní 1944.
Þjóðargrafreitur íslendinga er á Þingvöllum og eru
þar grafnir þjóðskáldið jónas Hallgrímsson og
athafnamaðurinn Einar Benediktsson.
að Þingvöllum hafa að auki verið haldnar
fjölmargar stærstu hátíðir þjóðarinnar. Þannig var til
dæmis haldið upp á þúsund ára afmæli íslands-
byggðar 1974 þar, þúsund ára afmæli alþingis,
ellefu hundruð ára afmæli íslandsbyggðar og
lýðveldishátíðina 1994. Þingvellir eru elsti þjóðgarð-
ur landsins, stofnaður árið 1930.
gunnarshólmi
Staðurinn
gunnarshólmi er sunnarlega á landinu og stendur
milli Fljótshlíðar og Eyjafjalla í héraðinu sem gengur
upp af Landeyjum.
Sagan
í gunnarshólma átti sér stað einhver eftirminnileg-
asta sena nokkurrar íslendingasögu. í njálu segir frá
því þegar gunnar á Hlíðarenda hyggst flýja óvini
sína af landi brott. Hann er á leið til skips ásamt
kolskeggi bróður sínum þegar hann snýr sér við í
hinsta skipti í gunnarshólma. Þar sér hann
heimahagana blasa við sér, mælir „Fögur er hlíðin,“
og snýr svo aftur að Hlíðarenda þar sem hann
mætir örlögum sínum.
Skáldið jónas Hallgrímsson samdi svo þjóðernis-
kvæðið gunnarshólmi um þann atburð þar sem
hann eggjar landa sína áfram í sjálfstæðisbaráttunni
og vísar í hugrekki gunnars um leið. Fáir sem lesið
hafa kvæðið gætu gleymt niðurlagi þess sem
minnir á hinn grasi gróna hólma í annars söndugu
víðlendi;
„...en lágum hlífir hulinn verndarkraftur
hólmanum, þar sem gunnar sneri aftur.“
almannagjá Þeir jarðflekar
sem ísland stendur á mætast
í almannagjá.
Þingvellir náttúruperla,
ekki síst Þingvallavatn sem
sést á myndinni.