Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2008, Blaðsíða 78
miðvikudagur 25. júní 200878 Síðast en ekki síst DV
Sandkorn
n Megas tók lagið Þórsmerkur-
ljóð í Kastljósi í fyrrakvöld. Lagið
verður á væntanlegri plötu hans
þar sem
hann spilar
og syngur
gömul ís-
lensk dæg-
urlög með
sínu nefi.
Með Meg-
asi spiluðu
Senuþjóf-
arnir sem hafa verið honum
til halds og trausts undanfarin
misseri, meðal annars á plöt-
unum tveimur sem hann sendi
frá sér á síðasta ári. Í hópinn
hafði hins vegar bæst Þorbjörn
Sigurðsson hljómborðsleikari
sem er ekki beint við eina fjöl-
ina felldur í hljómsveitarmál-
um, hefur meðal annars spilað
með Jeff Who?, Dr. Spock og
Motion Boys auk þess að sjá um
hljómborðsleikinn í þáttunum
Bandinu hans Bubba sem lauk
á vormánuðum. Úr bóli Bubba
fór Þorbjörn svo greinilega í ból
Megasar. Myndi það flokkast
sem að fara úr öskunni í eldinn,
eða að klífa metorðastigann?
Þegar stórt er spurt ...
n Hrafn Gunnlaugsson tók
sig til og bauð allri ritstjórn
tímaritsins
Grapewine
til heim-
ili síns nú á
dögunum.
Tilgangur
heimboðsins
var að tengj-
ast þessu
unga og
hæfileikaríka fjölmiðlafólki sem
er á bak við blaðið og efla tengsl
sín við fjölmiðla. Hrafn tók vel á
móti gestum sínum með áfengi
og með því.
n Mikill óróleiki ríkir nú á með-
al flugfreyja eftir tilkynningu
Icelandair í gærmorgun um
uppsagn-
ir hundr-
að þrjátíu
og þriggja
þeirra. Um
er að ræða
fjórðung
þeirra flug-
freyja sem
starfað hafa
hjá Icelandair og nær starfs-
aldur þeirra allt upp í níu ár. Í
viðtali við mbl.is segir formað-
ur Flugfreyjufélagsins þetta vera
með stærri bitum sem þau hafa
orðið að kyngja undanfarin 20 ár.
„Flugfreyjurnar sem láta af störf-
um í október og nóvember geta
lítið annað gert en að vera bjart-
sýnar og byrjað að leita sér að
nýjum störfum,“ sagði flugfreyja
Icelandair sem vildi ekki láta
nafns síns getið í samtali við DV.
Hver er maðurinn?
„Daníel Bjarnason, tónskáld og
hljómsveitarstjóri.“
Hvað drífur þig áfram?
„Gleði og forvitni.“
Hver er þinn helsti hæfileiki?
„Ég veit það ekki.“
Hvað ætlaðir þú að verða þegar
þú varst lítill?
„Ég ætlaði að verða atvinnumaður
í knattspyrnu. Ég lék lengst af með
Fram.“
Hver eru þín helstu áhugamál?
„Þau eru svo mörg. Bækur, sviðslist-
ir, kvikmyndir, knattspyrna, matur
og vín. Og svo margt annað.“
Byrjaðir þú snemma
í tónlistarnámi?
„Já, ég byrjaði þegar ég var 3 ára
í Bandaríkjunum því leikskólinn
minn var listaleikskóli, en svona af
alvöru þegar ég fór að læra á píanó
hérna heima 7 ára.“
Spilar þú á mörg hljóðfæri?
„Nei, ég spila nú bara almennilega
á píanó og bassatrommu.“
Hvenær byrjaðir þú að
semja klassísk tónverk?
„Ég var 16 ára þegar ég byrjaði
fyrst.“
Hvernig tónlist hlustar
þú á sjálfur?
„Ég hlusta á ýmsar tegundir tón-
listar. Það sem vekur áhuga minn á
hverjum tíma sem getur verið æði
mismunandi.“
Hvað er fram undan hjá þér?
„Það er nú bara hitt og þetta. Ég
stjórna tónleikum með kamm-
ersveitinni Ísafold í ágúst, skrifa
píanókonsert í sumar, svo fer ég í
óperutónsmíðavinnubúðir í Covent
Garden í London og á UNM-há-
tíðina í Ósló í september. Eftir það
held ég aftur til New York og verð
þar meira og minna í haust.“
Hvert er uppáhalds-
tónskáldið þitt?
„Ég á mér mörg
uppáhaldstónskáld.“
Ef þú værir ekki tónlistarmaður,
hvað værir þú þá?
„Annaðhvort vínbóndi eða atvinnu-
maður í knattspyrnu.“
Hvað ætlar þú að gera
í sumarfríinu?
„Ég á ekki beint sumarfrí, ég ætla
að skrifa píanókonsert.“
Uppáhaldsstaður á Íslandi?
„101 Reykjavík“
Ert þú frægur?
„Það held ég ekki.“
Hver er draumurinn?
„Að Ísland fari ekki á hausinn.“
MAÐUR
DAGSINS
Notar sumarið til að
semja píaNókoNsert
Daníel Bjarnason er
ungt og upprennandi tónskáld
sem hefur getið sér gott orð
fyrir verk sín. Hann lenti nýverið
í öðru sæti í alþjóðlegri tón-
skáldakeppni í dyflinni fyrir verk
sitt Öll hljóð bíða þagnar.
BókStAfleGA
„Þetta er nú
bara það
sem sums
staðar hefðu
verið talin
eðlileg sam-
skipti. Þannig sé ég þetta
eftir að hafa skoðað mál-
ið vandlega.“
n Sigurður Þ. jónsson, lögmaður séra
gunnars Björnssonar á Selfossi, um
meint kynferðisbrot hans gegn
unglingsstúlkum. – dv
„Ég tel það
helst vera
að fólk fer
af stað með
markmið
svo háleit að
ekki verður hjá því kom-
ist að þau springi á miðri
leið.“
n Linda Pétursdóttir, beðin um að
gefa þeim sem stíga sín fyrstu skref í
átt til betri lífsstíls góð ráð. - 24
stundir
„Allir hommar í Fær-
eyjum flytja til útlanda.
Nema Rasmus sem mis-
reiknaði stöðuna og var
laminn í köku.“
n jens guð, meintur sérfræðingur í
færeyskri tónlist, um færeyska
tónlistarmanninn rasmus rasmuss-
en. rasmus er á leið til landsins til að
koma fram í afmælisveislu Samtak-
anna ´78. - Fbl.
„Ruddalegt tal
hefur lengi
fylgt enskri
tungu, en
hefur hing-
að til verið
sjaldgæft hér. Kannski
hefur Ramsay þau áhrif,
að áhorfendur mat-
reiðsluþátta verði ekki
lengur í húsum hæfir.“
n jónas kristjánsson um sjónvarps-
kokkinn gordon ramsey og
matreiðsluþátt hans. Sumir hafa
kvartað yfir ruddalegu orðbragði
kokksins. - jonas.is
„Ástæðan
fyrir því
að ég hef
svona mik-
inn áhuga á
tangó er fyrst
og fremst að þetta er svo
mikill spunadans.“
n maría Shanko er stofnandi
dansfélagsins Tango adventure sem
stendur fyrir tangókvöldum á
kaffihúsum bæjarins. - vikan
„Við erum
nýkomin til
Pensacola
í Flórída
og byrjuð að
taka upp.“
n Linda Ásgeirsdóttir leikkona. Hún
og Hrefna Hallgrímsdóttir hafa nú
skrifað nýtt kvikmyndahandrit fyrir
yngstu börnin um ævintýri hinna
vinsælu Skoppu og Skrítlu. - 24
stundir
„Síðast
þegar við
spiluðum
þarna vor-
um við settir
í 90 mínútna pásu hjá
Stuðmönnum. Það var
mjög sérstakt að syngja
fyrir fólk í pollagöllum.“
n Finni úr dr. Spock en hljómsveitin
spilar á Þjóðhátíð í ár. - 24 stundir
„Oxsmá Plánetan er gamall gull-
moli sem fólk hefur ekki haft tæki-
færi til að sjá fyrr en nú,“ segir Sig-
urður Magnús Finnsson, einn af
ritstjórum Rafskinnu sem kemur út í
annað sinn 3. júlí. Að þessu sinni er
efni raftímaritsins um þrjár klukku-
stundir og samanstendur af stutt-
myndum, myndlist, tónleikaupptök-
um, tónlistarmyndböndum og fleiru.
„Mest af þessu er nýtt efni en við
erum sérstaklega stolt af því að gefa
út þessa svo til fyrstu mynd Óskars
Jónassonar leikstjóra,“ segir hann. Á
Rafskinnu gefst áhorfendum kostur
á að horfa á myndina með sérstakri
leiðsögn þeirra Óskars og Hrafnkels
Sigurðssonar myndlistarmanns og
aðalleikara myndarinnar.
Auk þess fylgja sérstök þrívídd-
argleraugu með Rafskinnu að þessu
sinni, ætluð til að horfa á nýjasta
myndband Bjarkar Guðmundsdótt-
ur sem er í þrívídd. Myndbandið
gera tveir strákar frá Kaliforníu sem
reka kvikmyndafyrirtækið Encyc-
lopedia Pictura. Lag Bjarkar heitir
Wanderlust og fer í spilun í sjónvarpi
í tvívídd. „Þetta er alveg ótrúlega
flott myndband, alveg hreint mögn-
uð upplifun,“ segir Þórunn Hafstað,
einn af útgefendum blaðsins. „Þetta
er allt öðruvísi í þrívídd, það er ekki
hægt að líkja því saman,“ segir hún.
Auk Óskars og Bjarkar sýna fjöl-
margir aðrir listamenn verk sín á
Rafskinnu og má þar nefna Arcade
Fire, Hjaltalín, múm, The Rapt-
ure, Huldar Breiðfjörð og Takashi
Homma. Allir sem koma að blaðinu
gefa vinnu sína, bæði listamennirn-
ir og þeir sem gefa það út. Það fæst í
bóka- og tónlistarbúðum víðs vegar
um landið.
Gamall gullmoli frá Óskari
Annað tölublað Rafskinnu kemur út:
Óskar Jónasson Sýnir gamlan
gullmola á rafskinnu.