Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2008, Síða 9
DV Fréttir mánudagur 30. júní 2008 9
þyrlurnar. Kostnaður við hverja
björgunaraðgerð getur hlaup-
ið á hundruðum þúsunda króna.
Hundruð hvítabjarna hafa ver-
ið flutt aftur til ísbreiðnanna með
þessum hætti.
Reyna að fæla birnina
Blaðamaður hafði samband við
Erik Nygaard, yfirlögreglustjóra á
Svalbarða, en þar á bæ er vel þekkt
að hvítabirnir komi nær byggðu
bóli en telst ákjósanlegt. Nygaard
sagði að þeir gerðu sitt ítrasta til
að fæla birnina frá mannabyggð,
sem tækist í flestum tilvikum. Ef
tilraunir þeirra bæru ekki árang-
ur og viðkomandi björn þrjóskað-
ist við að hverfa á braut, þá væri
björninn aflífaður. Það væri aftur á
móti algjört örþrifaráð og Nygaard
þekkti ekki til nema örfárra tilfella
þar sem slíkt hafði gerst. Ákvörðun
um slíkt yrði tekin af landstjóran-
um á Svalbarða.
Terje Bø, hjá Norsku náttúru-
verndarskrifstofunni, segir að ef
svo ólíklega vildi til að hvítabjörn
gengi þar á land yrðu lyktir þess
sennilega á sömu nótum og urðu
hér á landi vegna ísbjarnanna sem
gengu á land í Skagafirði. Bø sagði
að sjálfsögðu yrði aflífun hvíta-
bjarna háð leyfi hins opinbera.
Hungraðir hvítabirnir
Um 600 komur hvítabjarna
hafa verið skráðar á Íslandi frá
landnámi. Þetta má útleggja sem
um fimmtíu til sextíu hvítabirni á
hverri öld. Síðustu þrjátíu árin hafa
sextán hvítabirnir verið skráðir. Í
þriðjungi þeirra tilfella komu tveir
bjarnanna með skömmu millibili.
Þrátt fyrir þennan fjölda hafði ekki
sést til hvítabjarnar við Íslands-
strendur frá árinu 1993, áður en
birnirnir tveir gengu um Skaga-
fjörð fyrri hluta þessa mánaðar.
Þá hafði björn ekki gengið á land
frá árinu 1988, þegar hann sást í
Fljótum í Skagafirði. Sá var felld-
ur líkt og birnirnir tveir sem komu
nú.
Við krufningu beggja bjarn-
anna kom í ljós að þeir höfðu báð-
ir búið við nokkurn fæðuskort
áður en þeir lögðu af stað til Ís-
lands. Í fyrri birninum, sem var
karldýr, fundust einungis plöntu-
leifar. Slíkt leggja hvítabirnir sér
einungis til munns í ítrustu neyð.
Lítið fannst í maga seinni bjarnar-
ins og var hann orðinn afar horað-
ur þegar hann var loks aflífaður.
Birnirnir leita oft og tíðum út fyrir
heimkynni sín vegna langvarandi
skorts á fæðu, sem er náttúrulegt
eðli meðal dýra.
Talið er að um 25 þúsund dýr
séu eftir af stofni hvítabjarnarins á
norðurhveli jarðar. Voru birnirnir
settir á lista yfir dýr í útrýmingar-
hættu í síðasta mánuði, að frum-
kvæði Bandaríkjamanna. Þetta
segir þó ekki endilega fyrir um að
birnirnir séu friðaðir, heldur hefur
hvert og eitt land sínar eigin regl-
ur hvað þetta varðar. Í dýravernd-
unarlögum frá árinu 1994 segir að
hvítabirnir séu friðaðir á landi,
hafís og á sundi. Umhverfisstofn-
un er heimilt að láta fanga björn-
inn og flytja hann á stað þar sem
ekki stafar hætta af honum, en
fella má björninn ef fólki eða bú-
fénaði er talin stafa hætta af. Í öðr-
um löndum, eins og Grænlandi og
í Kanada, eru veiðar á hvítabjörn-
um leyfðar, en bundnar kvótum.
Nýlega spáði Bandaríska
snjó- og ísrannsóknarstofnun-
in (NSIDC) því að norðurheim-
skautið yrði íslaust að mestu yfir
sumartímann innan fimm til tíu
ára. Var sú ályktun dregin af því
að jörðin hafði hlýnað mun hrað-
ar en gert var ráð fyrir í fyrri spám.
Fyrrasumar var það heitasta sem
mælst hefur og er gert ráð fyrir að
sumarið nú verði á svipuðu róli,
ef ekki hlýrra. Samkvæmt þessum
spám hverfa heimkynni bjarn-
anna hratt og má áætla að flakk
þeirra færist í aukana samhliða
þessari þróun.
Má skjóta vegna olíuleitar
Um miðjan þennan mánuð
veittu stjórnvöld í Bandaríkjunum
sjö fyrirtækjum í olíuleit í og við
Chukchi-sjóinn í Alaska friðhelgi
gegn lögum um dýravernd ef ske
kynni að hvítabirnir yrðu skotnir.
Það mætti þó einungis vera í litl-
um mæli. Mánuðinn áður höfðu
Bandaríkjamenn átt frumkvæði að
því að birnirnir voru settir á lista
yfir dýr í útrýmingarhættu. Talið
er að um tvö þúsund birnir hafist
við á svæðinu í Alaska.
Dale Hall, talsmaður Fiski- og
veiðistofnunar Bandaríkjanna,
sagði í samtali við fréttastofu Fox
skömmu eftir að ákvörðunin lá fyr-
ir að hvítabjörnunum stafaði ekki
hætta af olíuleitinni. Hin raun-
verulega hætta væri af hlýnun jarð-
ar sem væri að bræða heimskauts-
ísinn og heimkynni ísbjarnanna.
Í staðinn fyrir friðhelgina verð-
ur starfsmönnum olíufyrirtækj-
anna meðal annars gert að fara á
námskeið í vistfræði norðurheim-
skautsins. Umhverfisverndarsam-
tök hafa gagnrýnt þessa tvíræðni í
stefnu bandarískra stjórnvalda.
Hverfandi Heimky i
ÞRiggja áRa áætlun uM
ísbjaRnaveiðaR á gRænlandi
Fjöldi veiddra 2007 2008 2009
Kane Bassin 10 8 6
Baffinflói 73 71 68
davis Strait (Vestur-grænland) 2 2 2
austur-grænland 54 54 54
Heildarfjöldi 139 135 130
Miðað við upplýsingar frá landbúnaðar- og veiðimálaráðuneyti Grænlands.
Ólöglegt er að skjóta húna eða birnu í fylgd með húnum.
Þarf að skoða
hvert tilfelli Finn
Karlsen segir
ómögulegt að veita
ahliða leyfi fyrir
flutningi hvítabjarna
frá íslandi til
grænlands.
Skoða
þurfi
hvert
tilfelli
fyrir
sig.
Flytja og veiða Kanadamenn veiða hvítabirni eftir útgefnum kvótum, en svæfa þá einnig og flytja þá norður á bóginn með þyrlum.
dregið úr veiðum grænlendingar
hafa árum saman veitt hvítabirni, en
hafa dregið úr veiðunum samhliða
svörtum spám um fækkun í stofnin-
um. Stjórnvöld hafa veitt leyfi fyrir því
að 135 birnir verði skotnir á þessu ári.