Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2008, Qupperneq 13
DV Fréttir mánudagur 30. júní 2008 13
Aukin umsvif TAlíbAnA
fljúgandi furðuhlutur
Kínverskt fyrirtæki hefur fundið
upp fjarstýrðan og fljúgandi furðu-
hlut. Hlutnum hefur nú þegar
verið flogið með góðum árangri
yfir borgina Haerbin í Heilong-
jiang-sýslu. Tækið er forritað til
þess að fylgjast með skógareldum
og stjórna björgunaraðgerðum úr
háhýsum. Þegar tækið er fullþróað
má nota það til myndatöku úr lofti,
við landfræðiathuganir og sem lýs-
ingu í neyðarástandi. Hægt verður
að kaupa fyrstu fljúgandi furðu-
hlutina í september.
mugabe sór embættiseið
Robert Mugabe sór í gær emb-
ættiseið sem forseti Simbabve til
næstu fimm ára. Samkvæmt op-
inberum tölum fékk Mugabe 85,5
prósent atkvæða í seinni umferð
forsetakosninga, eftir að mótfram-
bjóðandi hans hafði dregið fram-
boð sitt til baka vegna ofsókna
sem stjórnarliðar beittu stjórn-
arandstæðinga. Morgan Tsvang-
irai, leiðtoga stjórnarandstöð-
unnar, var boðið til embættistöku
Mugabe. Hann hafnaði boðinu og
sagði athöfnina tilgangslausa.
Rós í fangelsi
Yfirvöld í Crawford County í Kan-
ada segja frá því að fangi hafi flú-
ið úr fangelsi þar en skilið rauða
rós eftir. Luis Camacho-Mendoza
náðist aftur daginn eftir að hann
flýði úr fangelsi þar sem lögregla
hafði upp á honum. Mendoza er
frá Mexíkó en var hræddur um að
hann yrði sendur úr landi. Þegar
hann var spurður um það hvers
vegna hann skildi rósina eftir inni
í fangelsinu, svaraði hann: „Mér
leið illa yfir því að flýja og blómið
fannst mér fallegt.“
Í kjölfar stríðsins gegn hryðjuverkum
hefur öfgamönnum vaxið ásmegin.
Í suðurhluta Afganistans ríkir enn-
þá stríðsástand og nú lítur út fyrir að
ítök Talíbana muni teygja sig lengra
inn í Pakistan. Höfuðborg norðvest-
urhéraðs Pakistans, Peshawar, hefur
til þessa verið laus við ógn Talíbana
en nú virðist það vera að breytast.
Seinustu daga hefur fólk orðið sífellt
meira vart við vopnaða Talíbana sem
hafa í hótunum og beita ofbeldi ef
fólk hlýðir ekki.
Benazir Bhutto hafði barist mik-
ið gegn spillingu en hún var drepin
í desember, tveimur mánuðum fyrir
kosningar. Það olli mikilli ólgu í land-
inu sem sér ekki fyrir endann á.
Hreiðrað um sig
Norðvesturhérað Pakistans, sem
einnig gengur undir nafninu Afgania,
liggur á landamærum Afganistans.
Þessu svæði er stjórnað af ættbálkum
Pastúna. Þar ríkja aldagömul lög ætt-
bálkahöfðingja og hefur svæðið oft
verið í brennidepli heimspressunnar
vegna uppreisnarhópa sem eiga auð-
velt með að fela sig þar. Bandarísk
stjórnvöld hafa lengi haldið því fram
að einhvers staðar á þessu svæði feli
Osama bin Laden sig, hvort það er
rétt hefur aldrei komið í ljós.
Hluti héraðsins, norður- og suð-
urhluti Waziristan liggur með fram
landamærum suðausturhluta Afgan-
istans. Þar hafa Talíbanar mikil ítök
og hafa þeir sett upp þjálfunarbúð-
ir til þess að skipuleggja áframhald-
andi árásir í Afganistan. Bandaríkja-
menn og NATO hafa ekki viljað færa
aðgerðir sínar yfir í annað land og
eiga Talíbanar þess vegna auðveld-
ara með að undirbúa og skipuleggja
sig í þessu örugga hreiðri. Waziristan
er afskekktasta svæði norðvesturhér-
aðsins og er það ein aðalástæða þess
að Talíbanar hafa náð að koma sér
upp stöðvum þar.
Óánægja með forseta
Pervez Musharraf, forseti Pak-
istans, varaði við því fyrir tveimur
árum að Talíbanar myndu láta til sín
taka á svæðinu. Hann sagði mikla
hættu vera á því, það yrði Pakistan
að horfast í augu við. Pakistanski her-
inn hefur alveg síðan þann 11. sept-
ember reynt að handsama og lama
starfsemi Talíbana í héraðanu en nú
virðist sem ítök Talíbana og annarra
herskárra hópa séu að aukast.
Stjórnmál á svæðinu eru í algjörri
flækju. Pervez Musharraf tók völdin
með aðstoð hersins árið 1999 og hef-
ur undanfarið spilað pólitík að skapi
Bandaríkjanna. Stór hluti þjóðarinn-
ar fyrirlítur hann hins vegar og hans
stjórnarhætti. Hann hefur legið und-
ir ámæli fyrir það að vera skósveinn
Bandaríkjanna og að nota herinn
gegn sínu eigin fólki. Uppreisnir hafa
verið kvaddar niður með hervaldi og
fólk er orðið langþreytt. Það gerir það
að verkum að margir líta í kringum
sig í leit að öðrum valkosti. Ástand-
ið virðist vera að auka fylgi Talíbana
í héraðinu.
Í Pakistan eru í kringum tvær
milljónir flóttamanna frá Afganistan.
í Peshawar eru þeir langflestir. Sein-
ustu ár hafa Afganar og Pakistanar
sem búa í borginni prísað sig sæla
yfir því að vera ekki hinum megin
landamæranna þar sem stríðsástand
og mikil óöld ríkir. Borgin hefur ver-
ið undir stjórn pakistanskrar lögreglu
og hers ólíkt ættbálkasvæðinu sem
liggur rétt fyrir vestan. Seinustu daga
og vikur hefur orðið breyting þar á.
Áður fyrr fóru Talíbanar ekki til
Peshawar nema ill nauðsyn krefði.
Áhættan var of mikil og þeir áttu það
á hættu að verða handsamaðir. Eft-
ir að ný stjórn var kosin í héraðinu
hafa samningar verið gerðir til þess
að reyna að koma í veg fyrir vopn-
aða baráttu á svæðinu. Það leiddi til
þess að herinn dró sig út. Í dag þurfa
Talíbanar ekki lengur að fela sig uppi
í fjöllum, þeir vaða inn í borgina hve-
nær dags sem er, keyrandi um á pall-
bílum og vopnaðir Kalishnikov-riffl-
um.
Abdul Latif, 20 ára búðareigandi
sem selur geisladiska og bíómynd-
ir, sagðist hafa fengið heimsókn frá
vopnuðum mönnum með sítt hár
og alskegg. Þeir sögðu honum að
slökkva á tónlistinni og hótuðu hon-
um öllu illu ef hann hlýddi þeim ekki.
„Ég bað lögregluna um hjálp en hún
sagðist ekkert geta gert,“ sagði Abdul
í viðtali við Guardian.
Fólk orðið hrætt
Þegar Afganar börðust við Sov-
étríkin á árunum 1978–1989 voru
þar aðalþjálfunarbúðir svokallaðra
Mujaheedin-skæruliða sem börðust
hatrammri baráttu gegn innrás Sov-
étríkjanna. Margir þeirra voru Past-
únar. Eins og frægt er orðið var bin
Laden einn af Mujaheedin-skæru-
liðunum og voru þeir þjálfaðir af
bandarísku leyniþjónstunni CIA til
þess að berjast gegn Sovétmönnum.
Ættbálkar Pastúna á svæðinu hafa í
gegnum aldirnar verið þekktir fyrir
sjálfstæði sitt og það hversu harðir af
sér þeir eru. Spennan sem hefur ríkt
á svæðinu undanfarin ár hefur leitt
til þess að sífellt fleiri höfðingjar við-
urkenna Jihad eða heilagt stríð sem
mögulega aðferð til að verjast áhrif-
um að utan. Musharaff og ríkisstjórn
hans hefur nú miklar áhyggjur af
ástandinu sem gæti farið mjög versn-
andi. Ef ættbálkahöfðingjarnir snúa
baki við ríkisstjórn hans og ákveða að
styðja við Talíbana og jafnvel berjast
með þeim er voðinn vís.
Mehmood Shah, fyrrverandi ætt-
bálkahöfðingi á svæðinu, segir við
Guardian að þetta sé dæmi um það
að ríkisstjórnin hafi enga stjórn á
ástandinu. Hann segir að fólk í Pes-
hawar og víðar í Pakistan sé almennt
orðið mjög hrætt. Fazl-ur-Rehman,
formaður stjórnmálahreyfingarinn-
ar Jamiat-e-ulema-e-Islam og með-
limur í ráðandi ríkisstjórn, varaði
þingið við því að innan mánaða gæti
allt norðvesturhérað Pakistans verið
komið úr höndum stjórnarinnar. Þá
er óvíst hversu mikil áhrif Talíban-
ar munu hafa á ástandið í brothættu
landinu á næstu misserum.
Tveir pallbílar keyrðu inn í borgina Pesha-
war í Pakistan. Þeir spóluðu í burtu og
tóku með sér 25 einstaklinga. Þetta er dæmi
um það ástand sem hefur skapast í Pesha-
war, höfuðborg norðvesturhéraðs landsins.
Heimafólk er hrætt og framhaldið er óljóst.
Það sem er að gerast í Pakistan í dag gæti
verið upphafið að langri baráttu.
JÓn bJarki magnússon
blaðamaður skrifar: jonbjarki@dv.is
Talíbanar komnir inn í
Peshawar undanfarna daga
og vikur hafa Talíbanar aukið
umsvif sín í Peshawar.