Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2008, Side 24
mánudagur 30. júní 200824 Ættfræði DV
60 ára í dagTil
hamingju
með
afmælið
30 ára
n Krzysztof Wilkowski Rjúpufelli 31, Reykjavík
n Vaidotas Sarkauska Vesturbergi 144, Reykjavík
n Bunman Truatmakkha Kjarrhólma 38, Kópavogur
n daniel Sojcak arnarhóli, Reykjavík
n grzegorz Bogdan Kruk Jörfabakka 2, Reykjavík
n gloria Zarela Castro Conde Bergstaðastræti 55, Reykjavík
n jóna Björk gunnarsdóttir Stórhóli 47, Húsavík
n ásgeir Freyr ásgeirsson Álfkonuhvarfi 35, Kópavogur
n Þóroddur Eiríksson Skipholti 55, Reykjavík
n anna dóra Heiðarsdóttir Baugakór 11, Kópavogur
n Ingvar már Karelsson Þúfubarði 15, Hafnarfjörður
n Hugrún jónsdóttir Múlasíðu 9g, Akureyri
n Brynjar már Bjarka Grettisgötu 70, Reykjavík
n gunnhildur ásta guðmundsdóttir Hlíðarhjalla 54,
Kópavogur
n ásta júlía guðjónsdóttir Laugavegi 52, Reykjavík
n guðmundur Pálsson Fagurhóli 6a, Grundarfjörður
n Þórir guðmundsson Stórateigi 22, Mosfellsbæ
40 ára
n Illugi jens jónasson Vallholti 11, Ólafsvík
n unnur Elín jónsdóttir Hrísholti 8, Garðabær
n gunnlaugur Kristinsson Grænuhlíð 10, Reykjavík
n davíð jóhann davíðsson Iðjumörk 3, Hveragerði
n Björn Ólafur Bragason Frostafold 36, Reykjavík
n Fróði Ólafsson Silungakvísl 21, Reykjavík
n Sveinbjörg Pálmadóttir Ásholti 16, Reykjavík
n Kristín Kristjánsdóttir Lækjasmára 72, Kópavogur
n Pétur jónsson Einiteigi 1, Mosfellsbær
50 ára
n josé maria rebelo Queirós Nýlendugötu 18, Reykjavík
n Bjargey Þrúður Ingólfsdóttir Trönuhólum 16, Reykjavík
n Halla Björk Harðardóttir Melgötu 9, Grenivík
n jón Björnsson Fjarðarstræti 7, Ísafjörður
n Hallgrímur árnason Reykjabyggð 53, Mosfellsbær
n Herdís S gunnlaugsdóttir Löngumýri 34, Akureyri
n Bjarni Viðar jakobsson Heiðargerði 118, Reykjavík
n jónas Lárusson Hallgilsstöðum 1, Þórshöfn
n Óli Sævar Laxdal Ásbúð 80, Garðabær
n Einar Páll guðmundsson Stekkjarhvammi 19,
Hafnarfjörður
n Kristín jónsdóttir Laufvangi 2, Hafnarfjörður
n jóhanna guðný arngrímsdóttir Setbergi 29, Þorlákshöfn
60 ára
n Bergþór atlason Álfhólsvegi 41, Kópavogur
n guðjón Indriðason Túngötu 44, Tálknafjörður
n Þórhildur Sigurðardóttir Huldubraut 3, Kópavogur
n grímur antonsson Dalseli 33, Reykjavík
n Brynhildur Eiríksdóttir Gunnlaugsgötu 12, Borgarnes
n ásta Björgvinsdóttir Miðtúni 32, Reykjavík
n jón marinó Oddsson Miðfirði, Bakkafjörður
n Sigrún Ingólfsdóttir Hamratúni 28, Akureyri
n jón gústafsson Fífuseli 15, Reykjavík
70 ára
n Sigríður antonsdóttir Hörðukór 1, Kópavogur
n Högni guðmundsson Dverghólum 14, Selfoss
n Bryndís guðmundsdóttir Tindaflöt 1, Akranes
n arndís Halldórsdóttir Garðhúsum 49, Reykjavík
75 ára
n Sæmundur jónsson Árnastíg 13, Grindavík
n Ingimar magnússon Austurvegi 5, Grindavík
n guðmunda matthildur Oddsdóttir Dalbraut 14,
Reykjavík
n Þorvaldur H Óskarsson Hellulandi 20, Reykjavík
n jóhanna Brynjólfsdóttir Mánagötu 5, Reykjanesbær
80 ára
n Ingimundur Pétursson Hjálmholti 2, Reykjavík
n Sigurbjörg K Ingvarsdóttir Möðrufelli 13, Reykjavík
n jóhanna S Pálsdóttir Þórufelli 12, Reykjavík
n Kristbjörg L Eiríksdóttir Hvassaleiti 73, Reykjavík
85 ára
n guðný L Sigurðardóttir Stigahlíð 20, Reykjavík
90 ára
n guðný Þórðardóttir Hraunvangi 7, Hafnarfjörður
n Sigurlín Helgadóttir Kaplaskjólsvegi 45, Reykjavík
100 ára
n guðrún Stefánsdóttir Hlíðarhúsum 7, Reykjavík
GunnlauGur
M. SiGMundSSon
STjÓrnarFOrmaður ICELandaIr
Elín Pálmadóttir
grunnSKÓLaKEnnarI á HúSaVíK
Elín fæddist á
Húsavík og ólst
þar upp. Hún var í
Borgarhólsskóla og
Framhaldsskólanum
á Húsavík og lauk
kennaraprófi frá KHÍ
2004.
Elín afgreiddi í
Shell á Húsavík og var
flokksstjóri í bæjar-
vinnunni þar á náms-
árunum auk þess sem
hún var knattspyrnu-
og skíðaþjálfari á
Húsavík. Elín starfaði
á leikskólanum Skógarborg í
Reykjavík og hefur kennt við
Borgarhólsskóla frá 2004.
Elín hefur æft og keppt í
knattspyrnu frá unga aldri
með Völsungi á Húsavík og
síðar með Þrótti í Reykjavík.
Þá hefur hún keppt á skíða-
mótum frá níu ára aldri.
Fjölskylda
Maður Elínar er
Sigursveinn Hreins-
son, f. 24.4. 1973,
múrarameistari á
Húsavík.
Sonur Elínar og
Sigursveins er Andri
Már, f. 19.6. 2005.
Stjúpsonur Elínar
er Dagur Ingi, f. 7.2.
1994.
Albræður Elínar
eru Hermann Þór, f.
8.4. 1981, verkamað-
ur í Reykjavík; Jakob
Pálmi, f. 8.12. 1987, hand-
langari á Húsavík.
Foreldrar Elínar eru Pálmi
Björn Jakobsson, f. 13.10.
1950, grunnskólakennari á
Húsavík, og Guðrún Helga
Hermannsdóttir, f. 11.6. 1956,
starfsmaður við Heilbrigðis-
stofnun Þingeyinga.
Guðríður Inga Ingólfsdóttir
VIðBurðaFuLLTrúI Hjá HöFuðBOrgarSTOFu
Gurrý fæddist
á Akranesi og ólst
þar upp. Hún var í
Brekkubæjarskóla,
lauk stúdentsprófi
frá Fjölbrautaskóla
Vesturlands á Akra-
nesi 1998 og lauk
BA-prófi í þýsku og
mannfræði frá HÍ
2004.
Gurrý var í sveit
á Lambavatni á
Rauðasandi á barns-
og unglingsárum,
bar út dagblöð á
Akranesi, afgreiddi í skóbúð
á framhaldsskólaárunum,
vann við upplýsingamiðstöð
ferðamanna á háskólaárun-
um og hefur starfað við Höf-
uðbogarstofu frá 2004.
Gurrý hefur stundað afró-
dans undanfarin ár.
Fjölskylda
Maður Gurrýjar er
Jóhann Ómarsson, f.
7.10. 1977, grafískur
hönnuður.
Sonur Gurrýjar og
Jóhanns er Nói, f. 22.7.
2005.
Systur Gurrýjar eru
Kristrún, f. 10.10. 1967,
endurskoðandi í Hafn-
arfirði; Hrefna, f. 1.10.
1970, deildarstjóri á leik-
skóla á Akranesi; Lilja, f.
27.1. 1972, deildarstjóri
á leikskóla á Skaga-
strönd.
Foreldrar Gurrýjar eru Ingólf-
ur Þorsteinsson, f. 23.4. 1947,
húsa- og bátasmiður á Akranesi,
og Aldís Hjörleifsdóttir, f. 25.4.
1942, starfsmaður við sambýli
fatlaðra. Gurrý heldur upp á
afmælið með fjöruferð í Hval-
firðinum.
30
ára
í dag
Gunnlaugur fæddist í Reykjavík. Hann
lauk stúdentsprófi frá MR 1972, viðskipta-
fræðiprófi frá HÍ 1974 og stundaði nám í op-
inberum fjármálum á vegum Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins í Washington DC 1976.
Gunnlaugur var fulltrúi ráðuneytisstjóra
í fjármálaráðuneytinu 1974-78, deildarstjóri
gjaldadeildar þar 1978-82, starfsmaður á
skrifstofu bankastjórnar Alþjóðabankans í
Washington 1982-84, forstjóri Framkvæmda-
stofnunar ríkisins 1985, forstjóri Þróunar-
félags Íslands hf. 1986-93, forstjóri Kögunar
hf. 1993-2006, alþm. Framsóknarflokksins á
Vestfjörðum 1995-99 og framkvæmdastjóri
Máttar ehf. frá 2006.
Gunnlaugur sat í stjórn Skipaútgerðar rík-
isins 1977-82; Fríhafnarinnar á Keflavíkur-
flugvelli 1978-82; Félagsstofnunar stúdenta
1978-82; Þörungavinnslunnar á Reykhólum
1979-82; Marels hf.; GKS hf., Iceland Crown
í Hamborg 1989-91; malbikunarstöðvarinn-
ar Hlaðbær-Colas hf.; Kögunar og Kögunar í
Bandaríkjunum; Íslenska eignarhaldsfélags-
ins; Íslensks verslunarhúss í Hamborg; líf-
tæknifyrirtækisins Ísteka hf.; Hagþróunar hf.;
Nordic Engineering, dótturfyrirtækis Vatten-
fall í Svíþjóð; Stálvíkur hf.; Tölvusamskipta og
Vöku hf.
Gunnlaugur hefur verið stjórnarformaður
eignarhaldsfyrirtækjanna Hands Holding hf.
og Teton ehf., malbikunarstöðvarinnar Hlað-
bær Colas hf., auk fyrirtækjanna Landstein-
ar-Strengur; HugurAX; Hands í Noregi; Aston
Baltic í Lettlandi; SCS í Kaliforniu; Opin kerfi
ehf. og Opin Kerfi Group hf. á Íslandi; Hlað-
bær-Colas hf.; Yleiningar hf. á Flúðum, fjár-
festingarfélagsins Silfurbergs og er stjórnar-
formaður Icelandair.
Gunnlaugur var ritari í stjórn FUF í Reykja-
vík 1968-71, í stjórn SUF 1970-74, sat í stjórn
fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna í Reykja-
vík, var formaður efnahagsnefndar Fram-
sóknarflokksins 1986-91, var varaformaður
Íslendingafélagsins í Washington DC 1982-84
og í stjórn Félags viðskipta- og hagfræðinga,
var formaður Áburðarverksmiðjunefndar
1988, var formaður fiskeldisnefndar um skeið
frá 1985, var í stjórn Minjaverndar, var í nefnd
til að kanna sameiningu banka 1986-87, í eft-
irlitsnefnd með stjórn Norræna fjárfestingar-
bankans í Helsinki, var formaður nefndar til
að kanna aukna hagræðingu tryggingafélag-
anna og hefur setið í fjölda annarra opinberra
nefnda.
Fjölskylda
Gunnlaugur kvæntist 25.8. 1973 Sigríði
Guðbjörgu Sigurbjörnsdóttur, f. 5.10. 1948,
skrifstofustjóra. Foreldrar hennar: Sigurbjörn
Þórðarson, prentmyndasmiður í Hafnarfirði,
og k.h., Heiðveig Hálfdanardóttir banka-
starfsmaður.
Börn Gunnlaugs og Sigríðar: Sigmund-
ur Davíð, f. 12.3. 1975, doktor í hagfræði, en
kona hans er Anna Sigurlaug Pálsdóttir; Sig-
urbjörn Magnús, f. 6.4. 1977, viðskiptafræð-
ingur og bankastarfsmaður; Nanna Margrét,
f. 9.4. 1978, kaupkona í Reykjavík, en maður
hennar er Sigurður Atli Jónsson.
Bróðir Gunnlaugs er Jón Richard, f. 3.6.
1951, tæknifræðingur í Reykjavík.
Foreldrar Gunnlaugs: Sigmundur Jóns-
son, f. 11.10. 1911, d. 23.12. 1997, fyrrv. fjár-
málastjóri í Reykjavík, og k.h., Nanna Gunn-
laugsdóttir, f. 8.6. 1911, d. 3.10. 2007, fyrrv.
fótaaðgerðafræðingur.
Ætt
Meðal föðursystkina Gunnlaugs má nefna
Magnús, yfirverkstjóra í Reykjavík, föður Jóns
Hjaltalíns verkfræðings; Stefán, forstjóra
Eddu og skrifstofustjóra Fjárhagsráðs; Ólaf,
forstjóra Electric; Jón Hjaltalín lækni, og Örn
sálfræðing. Sigmundur er sonur Jóns Hjalta-
líns, b. á Kambi í Reykhólasveit, Brandsson-
ar, bróður Daníelínu, ömmu Kristjáns Lofts-
sonar, framkvæmdastjóra Hvals hf. Móðir
Sigmundar er Sesselja Stefánsdóttir, Kristj-
ánssonar, bróður Snæbjarnar í Hergilsey, afa
Snæbjarnar Jónassonar, fyrrv. vegamálastjóra.
Meðal móðursystkina Gunnlaugs eru Filipp-
us, skrifstofustjóri í Reykjavík, faðir Hauks
tannlæknis og Harðar lífefnafræðings, og
Magnús, b. á Ósi. Nanna er dóttir Gunnlaugs,
b. á Ytra-Ósi í Hrófbergshreppi í Stranda-
sýslu, Magnússonar og Mörtu Magnúsdóttir,
b. í Halakoti í Flóa, Einarssonar, prentara og
bæjarfulltrúa í Reykjavík, Þórðarsonar, dbrm.
í Skildinganesi, Jónssonar. Móðir Mörtu var
Sesselja, systir Ámunda, langafa Guðrún-
ar Helgadóttur rithöfundar og fyrrv. alþm.
Sesselja var dóttir Filippusar, b. á Bjólu, Þor-
steinssonar, bróður Önnu, langömmu Svövu,
móður Matthíasar Á. Mathiesens, fyrrv. sam-
gönguráðherra, föður Árna alþm.
Gunnlaugur er erlendis á afmælisdaginn.
30
ára
í dag