Listin að lifa - 01.12.2004, Page 10

Listin að lifa - 01.12.2004, Page 10
..r'-'X. Álfasögur og dulræn fyrirbæri undir Jökli Undir huliðshjúpi Guðrún hefur líka orðið vitni að undarlegum atburði, hún kallar það álfasögu. „Þetta var á mjög annasömum júlídegi árið 2000. Fólkið var að koma úr sleðaferð ofan af Jökli, mjög vel heppnaðri eins og þau orðuðu það. Þetta voru Islendingar 4-5 saman, með 6-7 ára strák. Veðrið var alveg frábært, svo að þau stoppa á niðurleið til að taka myndir. I síðasta stoppinu, þegar þau ætla að fara aftur af stað, finna þau hvergi barnið - og skilja ekki hvert það hafi farið. Þau kalla og hrópa og leita að drengnum, en sjá hann ekki og fá ekkert svar. Yfir sig hrædd keyra þau niður til okkar, vildu athuga hvort hann hefði hlaupið niður eftir, en enginn hafði orðið var við barnið. Ég taldi best að senda mann upp eftir með þeim til að leita, en þarna er mikið hraun. Sjálf var ég í viðbragðsstöðu að kalla út hjálparsveit. Þegar þau koma upp eftir mæta þau barninu hágrátandi á veginum. Drengurinn var mjög þreyttur og lengi að jafna sig. Honum sagðist svo ffá að hann hefði verið hjá fólkinu allan tímann, en þau hefðu ekki séð sig þegar þau voru að leita og hefðu skilið sig eftir á veginum. „Af hverju fóruð þið frá mér? Ég stóð hjá ykkur, en þið sáuð mig ekki og heyrðuð ekki í mér.“ Þau voru alveg undrandi á þessu, en drengurinn hafði alveg verið hulinn sjónum þeirra. Gat á Jöklinum Þessi álfasaga kemur frá Marvin Ingólfssyni. Guðrún kallar hana „gat á Jöklinum“. Marvin var að koma niður af Jökli og keyrir hægt með opinn bílglugga. Hann var að fara þar sem holóttur vegurinn var að koma undan snjó. Skyndilega heyrir hann eins og verið sé að flauta. Hann stoppar, en sér engan. Þá fer hann út úr bílnum til að athuga hvort einhver sé þarna sem þarfnast hjálpar. Hann skyggnist um og heyrir þá mjög greinilega skæran, dillandi krakkahlátur rétt hjá sér. Hann lítur við og heldur að hann hljóti að sjá barnið, en sér ekki neitt. Hann fer upp á næstu hæð og kallar, en verður ekki var við neinn. Þá fór að fara um hann svo að hann hleypur inn í bíl og keyrir í hendingskasti niður á Stapa. „Marvin var mikið niðri fyrir þegar hann var að lýsa þessu fyrir okkur,“ segir Guðrún. Á mótum iífs og dauða Fyrst gaf Guðrún ekkert upp um orkuna Jökulsins - eða um dulda orku sjálfar sín, en smám saman kom ýmislegt í ljós. Guðrún segist búa á mótum lífs og dauða, en húsið hennar stendur á milli Dvalarheimilisins Jaðar og líkhússins sem blasir við úr stofuglugganum. „Eitt sinn var mér gengið inn í stofu og sé þá mörg friðarljós í höndum hvítklæddra barna fyrir framan líkhúsið. Ég undrast mjög og velti fyrir mér hvaða friðarganga þetta sé? Friðarljósin voru svo ótrúlega falleg, líkt og stjörnuljós spryngju út frá þeim eða upp úr þeim. En... þegar ég færi mig nær glugganum, hverfur allt. Á þessum tíma stóðu uppi líkbörur manns sem var þekkt góðmenni og ég tengi þessa sýn við hann.“ Lagði á borð fyrir tvo I annan tíma var Guðrún að afgreiða í burstabænum við Arnarstapa. „Þá koma inn tveir menn og annar þeirra, útlendur ferðamaður, biður um kaffi. Ég legg á borð fyrir tvo, en maðurinn lítur undrandi á mig. Á sama augnabliki sé ég annan manninn hverfa inn í þann fyrri. Og verður mjög hverft við. I huganum tengdi ég þetta við hróður mannsins, fannst að hann væri að deyja, en auðvitað sagði ég ekkert.“

x

Listin að lifa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.