Listin að lifa - 01.12.2004, Blaðsíða 23

Listin að lifa - 01.12.2004, Blaðsíða 23
mjög hve illa gengur að fá 60 ára inn í félagið," segir Ivar. Sjálfur er hann ungur formaður, rétt rúmlega sextíu ára. Félagið er með bingó eða spila- kvöld tvisvar í mánuði yfir veturinn - og kórinn er jafn oft með söngcefmgar. Rauðakrossdeild Grundarfarðar sér um leikfimi á veturna og sundleikfimi á sumrin. Föndrið er á vegum bæjarins. Og Samkomuhúsiðfœrfélagiðfríttfyrir sínar samverustundir. Arvissir atburðir eru: Þorrablót í febrúar; sparidagar á Örkinni; sumarferðir 1-4 daga. ívar segir gott ástand í húsnæðismálum fyrir eldra fólkið. „Nýlega er búið að byggja 7 raðhús sem flutt er inn í. Þetta eru kaupleiguíbúðir, 22% verðsins er borgað út, en þær síðan leigðar fyrir 45-50 þús- und. Húsaleigubætur koma til frádráttar. Dvalar- og hjúkrunarheimilið Fellaskjól er sjálfseignarstofnun sem bærinn styrkir. Hér þekkja allir alla og alltaf er einhver trillu- eða bátasjómaður sem á ættingja á Fellaskjóli. Töluvert er því um að bændur og sjómenn gefi matvæli til heimilisins. Hér er nóg atvinna, ekkert atvinnu- leysi verið hérna síðan 1970-75. Flestir heimamenn sem eru atvinnurekendur hafa staðið vel að því að halda kvótanum í byggðarlaginu. Nú tengist fólkið meira sjávarútvegi, en fyrir 50 árum skiptist þetta jafnt. Þá voru hér stór býli og kúabú, enda mjólkurvinnsla hérna fram til 1990. Nú eru margir bæir hér í kring í eyði eða farnir að stunda ferðaþjónustu og hættir búslcap. Jón Beck var fangavörður á Kvíabryggju í 23 ár. Nú er hann hættur að vinna, en allt í lagi svo lengi sem hann kemst á kajann að rífa kjaft. ívar er dæmigerður Grundfirðingur, sveitastrákur eins og flestir hér. „Nú er jörðin okkar, Hellnafell, komin undir bæinn. Ég er yngstur af 11 systkinum. Sautján ára fór ég á sjó, byrjaði mína sjó- mennsku á Sigurfara SH 105 með Hjálm- ari Gunnarssyni skipstjóra. Sigurfari hét áður Gunnbjörn IS, var einn af hinum frægu Isafjarðarbjörnum. Vorið var kalt Eitt af skemmtiferðaskipum sumarsins. og dálítið sérstakt að kasta innan um rekís úti fyrir Horni, torfurnar voru að koma upp á milli ísjakanna. Ég var 20 ár á sjó, en hætti um 1980 þegar mér bauðst starf í landi sem verk- stjóri í hraðfrystihúsi - og er enn að vinna í fiski, nú við afgreiðslu og löndun úr bátum.“ Kona Ivars Jóhanna Gústafsdóttir, er forstöðukona yfir Fellaskjóli. Þau eiga 4 syni og 9 sonarsyni. Af 15 afkomendum þeirra er aðeins 1 stelpa! Faðir Ivars, Árni Sveinbjörnsson, var sjómaður og bóndi eins og flestir hér. Þá voru menn heima á síld á sumrin, en fóru á vetrarvertíð suður. „Eitt sinn var svo mikill snjór að þeir gátu ekki farið á hestum, en gengu alla leið í Borgarnes. Þeir gistu á bæjunum og voru 5 daga á leiðinni. Frá Borgarnesi var svo farið á bát til Reykja- víkur. Pabbi var á skútunni Sigríði frá Reykjavík 4 vetrarvertíðir. Skipstjóri var hinn frægi skútuskipstjóri Björn Jónsson frá Ánanaustum í Reykjavík," segir Ivar. Lávarðadeildin í vigtarskúrnum Mér veittist sá heiður að setjast í lávarðadeildina á Grundarfirði. Setbekk- irnir í vigtarskúrnum niðri við höfnina bera þetta virðulega nafn. Hin grundfirska lávarðadeild er afar lítil, enda bekkirnir oft þétt setnir. Hér mæta virðulegir skip- stjórar, stýrimenn og hásetar í morgun- kaffi um tíuleytið. Leita aflafrétta og rífast um pólitík. Þetta er karlaveldi og heyrir til undantekninga, ef konur setjast hér inn! „Þetta byrjaði með því að Rósant Egils- son hafnarvörður fór að safna myndum af skipstjórum og áhöfnum af bátunum og hengja upp,“ segir Ivar. „Þegar bæjarstjór- inn sá þetta fór hann að styrkja Rósant í þessu. Mikils virði að ná gömlum myndum áður en þær lenda í glatkistuna." Gestur í lávarðadeildinni sér fljótt að veggirnir eru að verða afar þéttsetnir. Stækkun er brýn, ef fleiri myndir eiga að komast fyrir. Örugglega vilja flestir komast á spjöld í lávarðadeildinni. Hressilegur karl sest á móti okkur Ivari. Sá er félagsmaður í okkar röðum og heitir Jón Beck Elbergsson. Jón var á sjó eins og flestir hér, en var fangavörður á Kvíabryggju í 23 ár og segist hafa tekið á móti Lalla Johns ellefu sinnum. „En flestir komu nú bara einu sinni í heimsókn til okkar. Nú leikur maður sér á sumrin og fer til Kanaríeyja á veturna. Allt í lagi, ef maður getur farið á kajann og rifið kjaft! Þú ert bara krakkaskratti ennþá,“ segir hann við Ivar sem er enn að vinna. Við tölum um íbúðamál. Karlarnir segja auðvelt að selja stór hús á Grundarfirði. Þeir skemmtu sér vel yfir kaffibollunum í lávarðadeildinni, karlarnir. Hér sitja Ivar og Rögnvaldur Guðlaugsson. Börnin, sem eru að ala upp barnabörnin, taka oft við húsum foreldranna sem vilja minnka við sig. Jón segir það hafa verið mikið áfall að fara úr 140 fermetra húsi í 70 fermetra íbúð, „en þá var maður svo veikur að maður gat ekkert sagt.“ Og sögurnar ganga á milli, vekja hlátur. Hverju Asmundur bóndi og sjómaður á Kverná svaraði, þegar konan hans spurði hvar hann hefði verið á meðan skútan var í slipp á Akureyri. „Ég var á henni Kæju!“ „Hvaða kona er það?“ spurði konan hans, en þá var nýbúið að opna Hótel KEA og skiltið blasti svona við Ásmundi. Jón á síðasta orðið: „Mundu, að við verðum naflinn á Nesinu þegar brúin yfir Kolgrafarfjörð er lcomin. Þá er maður 10 mínútur til Ólafsvíkur, 15 mínútur til Stykkishólms." O.Sv.B.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Listin að lifa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.