Listin að lifa - 01.12.2004, Blaðsíða 37
Kirkjufellið blasir skemmtilega við og
Barðaströndin í sjónmáli. Frakkar og
Italir misstu andlitið þegar þeir sáu fjöllin
í hreina loftinu. Ég tala nú ekki um þegar
sólin var að setjast á sumrin. I júní sest
hún yfir Barðastrandarfjöllin, aðeins
vestar undir Látrabjargi í ágúst. í góðu
skyggni sést hin fræga Skor sem getið er
um í kvæðinu um Eggert Ólafsson ... ýtti
frá kaldri Skor...
Útlendingar hafa yfirleitt mikinn
áhuga á fuglum og sækja mikið í fugla-
varpið í fjörunni. Eg varð að hafa prik til
reiðu fyrir gestina vegna kríunnar." Trú-
lega hefur Njáll líka sagt gestum sínum
frá skipbrotsmönnunum sem skolaði upp í
fjöruna við Suður-Bár fyrir nær hálfri öld.
Edduslysið kom oft upp í umræðunni á
Grundarfirði, jafnvel tímatalið var miðað
við hve mörg ár væru liðin síðan Eddan
fórst. Slysið var mjög átakanlegt, einkum
vegna þess hve Eddan var nálægt landi
þegar hún sökk og hversu mörg skip
voru nærri. Þá höfðu sjómenn engan
öryggisbúnað til að láta vita af sér. Lítum
aðeins á slysið sem bergmálar enn í hugum
Norðurfjarðardrengir í léttum leik á brúnni yfir
Norðurfjarðarsíkið. Njáll stendur uppi á brúar-
handriðinu. Vel má skilja að slíkt umhverfi
sitji fast í huganum. Myndin er líklega tekin
um 1943.
Grundarfirðinga.
Síldveiðiskipið Edda, sem lá í vari
inni á Grundarfirði innan um jjölda
annarra skipa, aðfaranótt 16. nóvem-
ber 1953,fór á bliðina í aftakaveðri og
sökk skömmu síðar. Flestir skipverja
komust á kjöl og síðan um borð í nótabát
Gunnar Njálsson, faðir Njálsstaðabræðra, heyjaði úti í Árnesey. Heyið var síðan flutt á land í bát. í
landi tók hestakerran við, heyið var flutt upp á tún og þurrkað. Þarna stendur Gunnar í lendingunni
í Norðurfirði ásamt Skjóna sínum. Margrét, systir Njáls tók þessa mynd, líklega 1943.
sem bundinn var við skipið, en þeirra
biðu ótrúlegir hrakningar. Sannkallað
fárviðri geisaði þessa nótt. Frost og
slydduhríð og skipbrotsmennfáklceddir.
Þráttfyrir að nótabátinn rceki skammt
hjá bátunum inni á Grundarfirði, tókst
þeim ekki aðgera vartvið sig. Neyðaróp
þeirra drukkuðu í veðurofsanum.
Nótabáturinn strandaði á skerjum
undan býlinu Norður-Bár um kl. 9 um
morguninn eftir að hafa hrakist útfiörð-
inn um nóttina. Skipbrotsmenn voru
fastir á skerinu um 2 tíma og reyndu að
skýla sér fyrir veðrinu undir bátnum.
Eftir að tekið var aðfalla að tókst þeim
að ná bátnum af skerinu og komast á
honum upp undir fiöruna. Skipstjóri
og háseti gátu brotist í land oggengið í
átt að Suður-Bár. Fyrsti maðurinn sem
þeir rákust á var Tryggvi, bróðir Njáls.
Atta manns komust lífs af úr slysinu,
en níu drukknuðu eða fórust úr kulda
ogvosbúð. (Stuðst við frásagnir úr sagna-
ritinu Fólkið, fjöllin, fjörðurinn.)
las það í biskupasögunum að íslendingar
þurftu að fara í syndaaflausn til Rómar
- og allt suður til Bár. Suður-Bár gæti því
hafa verið kennt við þennan verndardýrl-
ing spænskra sæfara allt frá fyrstu dögum
landnáms. Hér voru franskir sæfarar,
Spánverjar hafa alveg eins getað komið
Njálsstaðabræðumir, Tryggvi, sá sem tók á móti
skipbrotsmönnunum í fjörunni 1953, Kjartan
og Njáll hafa sungið saman í þrjú ár - eða eftir
að Kjartan hætti á sjónum. „Við höfum meira
að segja sungið á Örkinni," segir Njáll.
Suður-Bár er sérkennilegt bcejar-
nafn. Hvernig skyldi það hafa komið
Á/?„Gestir eru líka forvitnir um merkingu
þess, en tvær skýringar eru á heitinu. Eg
tengdi það alltaf við landslagið, því að
húsin standa á bárulöguðum sjávarkampi
sem liggur hér meðfram firðinum. Seinni
skýringin er miklu flottari.
Heíga fór eitt sinn á orlofsviku á Búðum
og hitti þar Árna Óla. Hann sagði henni
að spænskir sæfarar hefðu haft vetursetu
í Grundarfirði. Verndardýrlingur þeirra
hefði líka verið verndardýrlingur helgu
borgarinnar Bár suður á Ítalíu. Maður
hingað, jafnvel fyrr.“
Ég er að leggja af stað frá Grundarfirði
þegar Njáll hringir. Segist vera búinn að
finna gamlar myndir frá Ströndunum sem
hann geti lánað mér. Auðvitað næ ég í
myndirnar sem ég vona að lesendur hafi
gaman af að skoða - og minnist samtímis
allra þeirra sem þurftu að yfirgefa þessi
fögru heimkynni vegna dynta í íslensku
síldinni og þorskinum. Njáll veifar í
kveðjuskyni. Ég sé hann fyrir mér sækja
andlegan styrk á Strandirnar sumar hvert
- þegar hann horfir yfir fjöllin sín.
O.Sv.B.