Listin að lifa - 01.12.2004, Page 11
Ætla þau að hlaupa fyrir bílinn?
Huldufólkið í Stapafelli
Guðrún á líka skemmtilega álfasögu frá Stapafelli ofan við
Arnarstapa.
„Við vorum á leið út á Arnarstapa síðsumars 1975 og erum
að keyra niður með Stapafelli, þegar við sjáum tvær manneskjur
koma hlaupandi niður hlíðar fjallsins. Svo mikil var ferðin var
á fólkinu, að maðurinn minn nánast stoppar og segir: Ætla þau
að hlaupa fyrir bílinn?
Fólkið hleypur yfir götuna rétt fyrir framan bílinn. Okkur
varð starsýnt á fólkið því að klæðnaður þess var afar frábrugðinn
því sem hér tíðkast. Og mér verður að orði: Þetta eru örugglega
útlendingar!
Bæði klæddust ljósbláum samfestingum með hettu sem
féllu þétt að líkamanum. Og það stirndi á gljáandi klæðin. Er
þau hlaupa niður vegkantinn lít ég augnablik af þeim, stað-
ráðin í að fylgjast með hvert þau væru að fara. En skyndilega
var ekkert að sjá. Við urðum öll mjög hissa. Og ekki síður
þegar við skoðuðum stórgrýtið og ójöfnurnar í fjallshlíðinni
þaðan sem það kom. Fólkið hafði hlaupið mjög hratt eins og
það hlypi á sléttu gólfi - þurfti greinilega ekki að passa sig á
ójöfnum og stórgrýti. Þá vorum við viss um að þetta hefðu
ekki verið mennskar manneskjur. Allir í bílnum sáu fólkið,
líka börnin."
Aðfaranótt 5. janúar 1996 dreymir Guðrúnu svo að hún
sé stödd á Arnarstapa. Henni verður þá litið yfir að Stapafelli
og sér uppljómaðar dyr eða op í fjallinu. í ljósinu birtist henni
prúðbúin kona í bláum síðkjól með slóða og afar fallegt skraut
í hári - og maður við hlið hennar. Henni finnst konan líta á
sig og segja: Þú hefur séð mig áður! Guðrúnu fannst mikið til
um fríðleika fólksins sem sýndist vera á blómaskeiði ævinnar,
um 30-35 ára.
Alfasögur og dulræn fyrirbæri voru vinsælt söguefni áður fyrr,
einkum í skammdeginu. En merkilegt er að gera sér grein fyrir
að fyrrgreind fyrirbæri áttu sér stað um sumartímann - og
stutt síðan Guðrún og fólkið í kringum hana urðu þeirra vör.
Við kunnum Guðrúnu kærar þakkir fyrir að leyfa okkur að
birta sögurnar. Það er ekki ofsögum sagt að Jökullinn býr yfir
dulúðgum öflum.
O.Sv.B.
hvernig þú getur tryggt frelsi þitt
með einum öryggishnappi
Meö öryggishnappi Securitas getur þú notið þess
að dvelja lengur heima. Hnappurinn ertengdur beint
við stjórnstöð okkar og þar með neyðarlínuna 112.
Sérþjálfað starfsfólk okkar vakir yfir öryggi þinu og
bregst við hvenær sem þú þarfnast þess.
Öryggishnappur Securitas er auðveld og þægileg
aðferð til að tryggja sér öryggi. Hann er léttur og
þægilegur líkt og armbandsúr.
Tryggðu þér og þínum aukið frelsi með
Securitas öryggishnaþþinum
Eitt símtal núna - síminn er 580 7000