Listin að lifa - 01.12.2004, Síða 25
i' mri M
1 ' Mf m & 1 iMg- M Wl V
Unglingar í gær, eldri borgarar í dag. Myndin var tekin 1963 og nú er
þessir unglingar að færast í átt til eldri borgara.
Stefnt er að því að gera enn frekar grein fyrir sögu þjóðar-
innar, ekki sist sögu þeirrar kynslóðar sem nú er að ljúka göngu
sinni. Þetta voru mennirnir sem lögðu vegi með haka og skóflu,
settu upp raflínur og símalínur, byggðu hafnir og mannsæmandi
húsnæði fyrir fjölskyldur sínar. Og konurnar ólu börnin, fæddu
þau og klæddu með eigin handverki, nýttu allt sem til féll fyrir
sig og sína, stukku síðan frá inniverkum til að bjarga sjávarafla
og heyfangi.
I Sögumiðstöðinni er unnið að því að geta varpað ljósi á
söguna með fjölbreyttum hætti. Kappkostað er að koma upp
nútíma tækni fyrir komandi kynslóðir til að skyggnast inn í líf
genginna kynslóða. Saga þjóðar er einn helsti fjársjóður hennar.
Sagan er enn að gerast. Við eigum öll spor í henni. Forstöðu-
maður Sögumiðstöðvar, Ingi Hans Jónsson, tekur gjarnan á móti
gestum og hópum og fræðir um söguna. Og hver veit nema ein
og ein skemmtisaga af eftirminnilegu fólki gæti fylgt með.
Kirkjugestir að koma úr messu á Setbergi um 1950. Að ferðast á vörubíls-
palli var algengur ferðamáti á þessum árum.
Velkomin í Sögumiðstöðina í Grundarfirði
Ingi Hans Jónsson forstöðumaður
BYGGINGAVERKTAKI
BYGGIR
Sími 462 6277 • Fax 462 6245
Netfang: ssbyggir@ssbyggir.is
Veffang: www.ssbyggir.is
Allar upplýsingar á skrifstofu og á heimasíðunni www.ssbyggir.is, þar sem er að finna söluskrá
teikningar og ýmsar aðrar upplýsingar um framkvæmdir SS Byggir
- 1 >