Listin að lifa - 01.12.2004, Blaðsíða 33

Listin að lifa - 01.12.2004, Blaðsíða 33
Áhrif skerðingar og skattlagningar 2004 Greióslutegund: Einh. ellilífeyrisþ. Einh. ellilífeyrisþ. Einh. ellilífeyrisþ. Einh.ellilífeyrisþ. Lífeyrissjóður 0 kr. 45,888 kr. 91,776 kr. 138,455 kr. Grunnlífeyrir 21,249 kr. 21,249 kr. 21,249 kr. 21,249 kr. Tekjutrygging 41,655 kr. 41,655 kr. 21,175 kr. 0 kr. Heimilisuppbót 17,469 kr. 17,469 kr. 8,882 kr. 0 kr. Tekjutryggingarauki 20,540 kr. O kr. 0 kr. 0 kr. Eingreiðslur 3,319 kr. 2,464 kr. 1,252 kr. 0 kr. Samtals gr. frá TR 104,232 kr. 82,837 kr. 52,558 kr. 21,249 kr. Samtals 104,232 kr. 128,725 kr. 144,334 kr. 159,704 kr. Gr. skattur 38,58% -12,717 kr. -22,166 kr. -28,188 kr. -34,118 kr. Ráðstöfunartekjur 91,515 kr. 106,559 kr. 116,146 kr. 125,586 kr. Auknar ráðstöfunartekjur 15,043 kr. 24,631 kr. 34,071 kr. Skerðing og skattur 67.2% 73.2% 75.4% Frá Tryggingastofnun endurreikningur 2003 og tekju- áætlun 2005 til lífeyrisþega r næstu dögum fá lífeyrisþegar í hendur upplýsingaefni frá Tryggingastofnun. Um er að ræða bækling með upplýs- ingum um endurreikning 2003 og tekjuáætlun 2005 ásamt tilheyrandi eyðublöðum og bréfi. Síðustu vikur hefur staðið yfir lokaundirbúningur hjá Trygg- ingastofnun fyrir útsendingu þessa upplýsingaefnis varðandi endurreikning 2003 og tekjuáætlanir fyrir árið 2005. Áætlað er að niðurstaða endurreiknings, bæklingur, bréf og tekjuáætlanir verði sendar lifeyrisþegum í einum pakka, sem fer í póst í lok nóvem- ber. I formála segir að samkvæmt lögum um almannatryggingar skuli tekjutengdar bætur lífeyristrygginga reiknaðar út í upphafi hvers árs út frá áætlun um hverjar tekjur greiðsluþega verði það ár. „Þegar endanlegar upplýsingar um tekjur ársins liggja fyrir, eftir álagningu skattyfirvalda, er bótaréttur endurreiknaður. Komi í ljós að bætur hafi verið vangreiddar er inneign greidd út, en ef bætur voru ofgreiddar á að innheimta það sem ofgreitt var. Markmið þess að gera bætur upp með þessum hætti er að tryggja að hver lífeyrisþegi fái réttar greiðslur miðað við allar aðstæður, þar með taldar tekjur hans og eftir atvikum maka,” segir í bæklingi TR. í bæklingnum eru skýringar við endurreikning lífeyris- greiðslna ársins 2003, vakin athygli á andmælarétti, fjallað um endanlega ákvörðun um bætur og uppgjör greiðslna og skattaleg atriði. Einnig er í bæklingum að finna skýringar á tekjuáætlunum fyrir árið 2005. Þar kemur m.a. fram að tekjuupplýsingar, sem lífeyrisþegar fá í hendur frá Tryggingastofnun, byggja á nýjustu upplýsingum sem fyrir liggja, þ.e. úr núgildandi tekjuáætlun eða síðasta skattframtali. Fram kemur að stjórnvöld hafi ákveðið að í tekjuáætlun Tryggingastofnunar skuli tekjur framreiknaðar til ársins 2005, launatekjur hækka um 5,5%, lífeyrissjóðstekjur um 3,5% og fjármagnstekjur og hagnaður af eigin starfsemi um 10%. I bæklingi TR er lögð áhersla á ábyrgð lífeyrisþega á eigin tekju- áætlunum. Þá eru í bæklingnum leiðbeiningar um útfyllingu tekjuáætl- unar. Samkvæmt upplýsingum frá lífeyristryggingasviði TR fá lífeyris- þegar tvær vikur til að gera athugasemdir við endurreikning bóta 2003 og tekjuáætlun 2005. Þegar sá frestur er liðinn verður lífeyrisþegum tilkynnt bréflega um uppgjörið. Inneignir verða þá greiddar út og þeim sem hafa fengið ofgreiðslu gerð grein fyrir því hvernig innheimtu verði háttað. Einnig verða mál þeirra sem andmæltu tekin fyrir og unnið úr þeim. Samhliða fer fram skrán- ing á þeim breytingum sem lifeyrisþegar gera við tekjuáætlanir TR. Vert er að benda á að aftan á greiðsluseðlum koma fram þær tekjur sem bætur eru reiknaðar út frá. Mikilvægt er að líf- eyrisþegar fylgist með því að þær séu réttar og tilkynni TR um breytingar ef þær verða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Listin að lifa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.