Listin að lifa - 01.12.2004, Page 34

Listin að lifa - 01.12.2004, Page 34
Hildibrandur við hákarlaskip föður sins. „Á þetta skip veiddi pabbi minn, Bjarni Jónsson, hákarl á Ströndum. Petta var tvímastraður sexæringur sem hægt var að sigla meira en öðrum vegna bygg- ingarlagsins. Talið er að hinn frægi Falur á Horni hafi smíðað hann. Falur var við smíðar á Horni frá 1830—’60. Pabbi er sagður siðasti doggaræðarinn. Línan tók svo við af færunum.“ Hildibrandur og hákarlinn Hildibrandur Bjarnason á Bjarnarhöfn er ekki adeins Iandsfrægur, en líka heims- frægur. Svo margar útlendar sjónvarpsstöðvar hafa komið til Islands, eingöngu til að mynda Hildibrand og hákarlinn, að segja má að þeir tveir séu góð Iandkynning. Á ísíandi hafa gestir í Bjarnarhöfn borið orðspor hans um víðan völl - og í þorrablótum er sagt: „Þetta er hákarl frá Hildibrandi í Bjarnarhöfn.“ í orðanna hljóðan liggur að hákarlinn á borðinu sé góður. „AHir vilja hákarl frá mér, maður verður að standa undir fyrsta flokks vöru,“ segir Hildibrandur. Bjarnarhöfn er fastur viðkomustaður í sumarferðum félagsfólks um Snæ- fellsnes - og í ferðalok er fólki oft tíðrætt um staðinn. Mig var lengi búið að langa til að heimsækja hinn fræga Hildi- brand og hákarlinn hans, þegar ég lagði lykkju á leið mina frá Grundarfirði og fylgdi vegvísinum í átt að Bjarnarhöfn. Fyrsta sem vekur athygli er skilti við veg- inn. Þar segir: Bjarnarhöfn er landnámsjörð, kennd við Björn austrcena, bróður Auðar djúpúðgu í Hvammi í Dölum. Að bcenum er ekið um Berserkjaveg í miðju Berserkjahrauni sem Eyrbyggja segirað Víga-Styrbafi látið tvo berserki sína ryðja og drepið svo. Dys þeirra er sýnd í götunni. Svo ég var stödd á hinum fræga Berserkjavegi! Ekki tókst mér að finna dysina, en hugsaði því meira um söguna, hve gaman er að rekja sig eftir örnefnum og gera sér grein fyrir sögunni á bak við þau. Björn austræni er talinn hafa lent í Kumbaravogi sem áður var verslunar- staður, og haft uppsátur í Bjarnarnausti, rústirnar sjást enn. Svo fékk hann heilt fjall og jörð nefnt eftir sér, Bjarnarhafnar- fjall og Bjarnarhöfn. Og nú var ég á leið til manns sem er að skapa sögu í kringum 34 sig og sína atvinnu. Hákarlinn er búinn að byggja heilan skála í kringum sig sem var formlega opnaður af samgönguráðherra og blessaður af séra Gunnari sóknarpresti 6. nóvember sl. Tvö hundruð manns voru við athöfnina. í skálanum er margt að skoða, m.a. tvímastraða sexæringinn sem faðir Hildibrands notaði við veiðar. Auðvitað prófa ég að smakka á hákarli og Hildibrandur býður kaffibolla til að skola góðgætinu niður. Hákarlinn er svo bragð- góður að betra er að gæta sín að borða ekki of mikið. Svo bragðsterkt lostæti er aðeins til að smakka, rétt eins og brennivínið er rétt til að dreypa á. Þetta tvennt er yfirleitt borið fram saman. Ég spyr Hildibrand bvernig standi á því að erfiðara sé að verka hákarl en aðra fiska? „Hákarlinn er afar sér- stæð skepna. Hann er hvorki með nýru né aðra úthreinsun. Annað sérkenni er súrefnistaka inn um allan skrokkinn svo að hákarlinn þarf að vera á stöðugri hreyf- ingu. Nýr hákarl er því eitraður. Á sult- arárunum dó fólk vegna neyslu á nýjum hákarli. í annálum frá 1620 er getið um dauðsföll á þremur bæjum í Árneshreppi á Ströndum." Grænlendingar sjóða hákarlinn þrisvar sinnum til að losna við eitrið, en Hildibrandur styðst við aðferðir sem hann lærði af föður sínum. „Pabbi var hákarla- veiðimaður á Ströndum og mótaði þar sérstakar aðferðir við hákarlaverkun. Eftir að við fluttum í Bjarnarhöfn var alltaf komið með hákarl sem veiddist til pabba, en segja má að hann sé upphafsmaður að allri hákarlaverkun hjá fjölskyldunni. Það er mjög vandasamt að verka hákarl og alls ekki á allra færi. Fyrst er hákarlinn kæstur í tvo mánuði. Áður var hann látinn liggja á steinum svo að runnið gæti af honum, en núna kæsi ég hann í rimlakössum.“ Hildibrandur hlær þegar ég spyr hvort lyktin sé ekki vond. „Sjálfsagt fyndist mörgum það, en okkur finnst þetta góð lykt. Eftir kæsinguna er hákarlinn látinn hanga í fjóra mánuði. Þá loksins er hann tilbúinn til matar. Svo að verkun hans tekur hálft ár.“ Talað er um skyrhákarl þegar verkað er úr bakinu, glerhákarl úr kviðnum. Islenski hákarlinn er djúpsjávarfiskur sem heldur sig í köldum sjó við ísland og Grænland. Hákarlar í hlýrri höfum eru með allt annað eðli, meiri uppsjávarfiskar og hættulegri. Afbverju er verið að leggja svona mikla vinnu í þennan fisk sem er eitr- aður þegar hann er dreginn að landi? „Hákarlinn er talinn mjög hollur. í honum eru góðir gerlar, nauðsynlegir fyrir okkur. í þorrablótum borðum við alls kyns mat, svo að það er engin tilviljun að hákarlinn sé þar á borðum. Hann brýtur niður mat og vín - eða fæðutegundir sem passa

x

Listin að lifa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.