Listin að lifa - 01.12.2004, Síða 52

Listin að lifa - 01.12.2004, Síða 52
Gljúfrasteinn gefur innsýn í heim Halldórs í öðru Ijósi en bækur hans Guðný Dóra Gestsdóttir forstöðukona situr fyrir svörum Sterk hughrif mæta gestum sem stíga inn á heimili Halldórs og Auðar. Gljúfrasteinn væri svipur hjá sjón, ef húsmunir væru ekki til staðar, stóllinn þar sem Halldór sat að lesa dagblöðin, skrifpúltið hans, flygillinn sem hann spilaði á, teppið og púðarnir sem Auður saumaði. Allt gefur innsýn í heimilis- andann, bókasafnið, listmunirnir fógru, ómetanlegu málverkin. Gjöf Auðar og dætra var vegleg - að gefa allt innbúið. Gljúfrasteinn var áður huliðsheimur, líkt og „steinninn í gljúfrinu“. Aðeins fáir útvaldir fengu þar inngöngu. Nú megum við öll ganga inn á heimili Nóbelsskálds- ins. „Mörgum finnst merkilegt að sjá að húsið er miklu minna en þeir héldu. Mynd- arlegar móttökur á Gljúfrasteini hafa gert það stærra í hugum margra. Karlar jafnt og konur vilja kíkja inn í eldhúsið - og undrast mjög hvernig Auður gat staðið fyrir stórum veislum í ekki stærra rými,“ segir Guðný Dóra Gestsdóttir forstöðu- kona. „Hér er enginn íburður, en stórkost- leg málverk á veggjum. Fallegt útsýni yfir dalinn til sjávar og mikil kyrrð.“ Geturðu sagt okkur sögu merkustu hlutanna? „Pað er erfitt að velja einstaka hluti því að hver einasti hlutur er mjög merkilegur og á sína einstöku sögu. I stofunni þar sem Auður og Halldór tóku á móti fjölda gesta er t.d. stóllinn Eggið sem danski arkitektinn, Arne Jakobsen, hannaði. Stóllinn setur mikinn svip á stofuna enda stórkostleg hönnun. Flygillinn er Steinway-flygill. Halldór spil- aði mikið sjálfur og hafði sérstakt dálæti á Bach. Á Gljúfrasteini voru líka oft haldnir tónleikar þar sem margir þekktir listamenn komu fram. Þá var flygillinn auðvitað notaður. Reyndar er þetta annar flygillinn á Gljúfrasteini. Blómaglugginn í stofunni er líka ein- stakur. Þegar Gjúfrasteini var breytt í safn, ákváðum við að vera áfram með lifandi blóm eins og í tíð Auðar. Það er auðvitað hluti af því að hafa staðinn lifandi og hlý- legann. Ef ég ætti að velja einn hlut með mikla sögu ætli ég myndi þá ekki velja silfurskálina á skenknum í borðstofunni. Erfðagripur frá Eystrasaltslöndum: Skálin er dæmi um lítinn hlut með mjög merka sögu. Þannig er með flesta hluti hér á Gljúfrasteini, að lítil saga er á bak við flesta. Nema hvað Auður segir svona ffá henni: „Silfurskálin á miðjum skenknum er erfða- gripur sem Halldór fékk ffá konu úr Eystra- saltslöndunum sem hann kynntist í fyrstu ferð sinni til útlanda efdr stríð. Hún var á heilsuhæli vegna taugaveiklunar og vildi fá að þýða bækur hans á þýsku. Halldór fór á hælið til hennar og fór vel á með þeim. Halldór, sem alltaf var svo bjartsýnn, bauð henni strax að hún gæti komið til Islands og búið hjá okkur í alveg nýju húsi. Konan var svo glöð að hún tók sér ferð á hendur til Jóns Helgasonar sem hún hafði kynnst til að segja honum tíðindin. Þá lá á borðinu hjá Jóni sænskt tímarit og framan á því var mynd af húsi Halldórs, nýsmíðuðu og ekkert annað að sjá, ekki stingandi strá, bara húshliðin, snjór og grjót. Konunni varð svo mikið um að sjá þetta að nokkrum dögum síðar fyrirfór hún sér. í erfðaskrá hennar var þessi skál, merkt á báðum hliðum með skjaldarmerki, ætluð Halldóri og forláta ljósakróna ætluð Jóni, þessa hluti fengu þeir í arf frá konu sem þeir höfðu aðeins lítillega kynnst.“

x

Listin að lifa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.