Listin að lifa - 01.06.2006, Blaðsíða 5
68-kynslóöin mætt til leiks
- kallar á þjóðarátak
Stoíhfundur AFA bar upp á 26. mars 2006. Sama dag fyrir
38 árum var fyrsta hagsmunafélag eldri borgara stofnað í
Góðtemplarahúsinu í Hafnarfirði. í það félag - Styrktar-
félag aldraðra - gátu allir gengið, ungir jafnt sem gamlir, ald-
urstakmark var ekkert.
„Við viljum endurtaka söguna,“ segir Reynir Ingibjartsson.
„Stórmerkilegt hvað Styrktarfélag aldraðra gerði í upphafi. Þá
stóð yngri kynslóðin að baki hinum öldruðu. Við viljum end-
urvekja þennan baráttuhug. Framtíðarsýn okkar er sú, að AFA
verði landsfélag og að deildir verði stofnaðar úti um allt land - til
að styðja eldri borgara félögin. Við viljum vekja yngra fólkið til
meðvitundar um stöðu margra aldraðra."
vinna meira með aðilum sem horfa ekki bara á að græða á öldr-
uðum. Við verðum að stuðla að breytingum á þessu,“ segir Reynir.
Nú sýnist mikill sóknarhugur í liðsmönnum
AFA og áhugi á að starfa með LEB og FEB í
Reykjavík.
„Já, það er óhætt að fullyrða það. Nýlega stóðu AFA og LEB
að hinum glæsilega fjöldafundi í Háskólabíói, þar sem húsið troð-
fylltist. Fundinn kölluðum við Þjóðfund um þjóðarátak í málum
aldraðra. Eg er ekki í nokkrum vafa um að þessi fundur á eftir
að marka tímamót í baráttunni fyrir bættum hag aldraðra. Nú er
bara að fylgja málunum eftir.“
Er undirrót vandans virðingarleysi yngra fólks-
ins gagnvart öldruðum?
Álíta yngri menn að þeir eldist ekki sjálfir?
Stofnendur aðstandendafélagsins AFA eiga það margir sam-
eiginlegt að standa uppi með öldruð, sjúk skyldmenni sem
íslenska samfélagið á ekki pláss fyrir.
„Engin heildarstefna er til í húsnæðismálum fyrir aldr-
aða,“ segir Reynir. „Vandinn er geysistór og hefur safnast upp.
Flöskuhálsinn er hentugt húsnæði á hagstæðu verði. Við viljum
ekki að talað sé breytingar eftir áratugi - við viljum sjá þær á
næstu 5-6 árum! Þeir sem eru nýkomnir á eftirlaunaaldur standa
persónulega ekki í þessum sporum. Ástandið brennur oft meira á
fólki á miðjum aldri vegna foreldranna. Þetta fólk þarf að þrýsta
sér saman til að knýja fram breytingar.
„Tíminn líður undrahratt. Áður en við vitum af erum við
komin í sömu spor og foreldrar okkar,“ sagði forsetinn réttilega í
nýársávarpi sínu.
Hér í Hafnarfirði eru byggingaverktakar að
byggja fleiri hundruð íbúðir, stíla inn á fólk sem
vill minnka við sig - fólk sem þeir telja að hafi
efni á svona íbúðum.
Á sama tíma eru þúsundir manna sem búa í algjörlega óvið-
unandi húsnæði.
Sveitarfélög hafa ffeistast til að láta verktaka sjá alfarið um
byggingar íbúða fyrir eldri borgara, í stað þess að fylgjast með þörf-
inni, eins og lögskylda þeirra er. Markmið byggingarverktaka er
að hagnast sem mest á íramkvæmdum sínum. Sveitarfélög eiga að
O.Sv.B.
Valið besta nýja iðnaðarsafn Evrópu 2004
Kveðja að norðan
til allra síldarstúlkna og
síldarsjómanna íslands!
Síldarminjasafnið á Siglufirði
söltunarstöðin, verksmiðjan
og skipin við bryggjur
- þar sem ævintýrið gerist enn!
Síldarsöltun á
laugardögum kl. 15 frá
8. júli-12. ágúst
Opið alla daga frá 10-18
sími 467 1604
5