Listin að lifa - 01.06.2006, Síða 24
Fræösluhorniö
Gleðilegt sumar,
ágætu lesendur, og
takk fyrir veturinn!
Nú er mikið rætt um næringarþörf
og samsetningu máltíða fyrir alla
aldurshópa og sitt sýnist hverjum.
Mikilvægast er að tileinka sér upplýsingar frá viðurkenndum
sérfræðingum, lesa vel á umbúðir og meta innihaldið, t.d. salt,
sykur, krydd og aukefhi, sem sett eru í matvælin á mismunandi
framleiðslustigi. Huga þarf vel að því sama þegar við kaupum
hálftilbúnar og fullmatreiddar máltíðir.
Hólmfríður Þorgeirsdóttir næringar- og matvælafræðingur,
verkefnisstjóri hjá Lýðheilsustöð, leggur áherslu á eftirfarandi
í fæðuvali okkar aldurshóps:
• Hollur og góður matur ræður miklu um líðan
okkar og heilsu, ekki síst þegar komið er á efri
ár. Það skiptir mestu máli að við borðum reglu-
lega, að minnsta kosti þrjár aðalmáltíðir og tvo til
þrjá millibita. Gætum þess líka að velja fjölbreytta
fæðu, sem er ekki of þung eða fiturík, en veitir
okkur öll þau næringarefni sem við þurfum til að
halda heilsu og kröftum.
• Stillum salt og sykurneyslu í hóf.
• Fyrir sterk bein veljum við magrar mjólkurvörur, t.d.
skyr, létta ab-mjólk, súrmjólkeða undanrennu ásamt
lýsi eða fjölvítamíni. Gróf brauð eða kommatur em
m.a. nauðsynleg fyrir meltinguna og fiskur og mag-
urt kjöt veita okkur jám, vítamín og prótein.
• Ekki má heldur gleyma grænmeti og ávöxtum.
Úrvalið er það fjölbreytilegt að flestir ættu að
geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Þar má nefna
soðnar rófur, gulrætur og kál, eða fínt, rifið græn-
meti í sýrðum rjóma eða jógúrtsósu. Niðurskornir
ávextir eða ávaxtagrautur eru góðir eftirréttir og
glas af ávaxtasafa er vítamínrík hressing.
• Gleymum ekki vatninu bæði með mat og á milh mála.
• Að síðustu: Njótum þess að borða hollan og góðan
mat í hæfilegum skömmtum og gleymum því ekki
að dagleg hreyfmg stuðlar að bættri heilsu.
Bakaöar paprikur
með kjöti og hvítum baunum
400 g hakkað nauta- eða lambakjöt
1 tsk salt
1- 2 msk matarolía
1 laukur (um 100 g), (saxaður)
2 hvítlauksrif (pressuð)
1 tsk paprika
4 msk tómatmauk
2- 3 msk chilisósa
1 msk vatn
300 g soðnar hvítar baunir eða
niðursoðnar bakaðar baunir
4-5 stórar paprikur
Rifinn ostur.
1. Léttsteikið kjötið og laukinn í matarolíu, bætið salti, hvít-
lauk og kryddi saman við. Sjóðið í 5 mínútur.
2. Setjið eina smátt saxaða papriku, tómatmauk, chilisósu, krydd
og vatni saman við. Sjóðið í 10 mínútur við vægan hita.
Baununum er bætt í að lokum og suðan látin koma upp.
Skerið paprikurnar i tvennt, fjarlægið fræhúsin og setjið í
eldfast mót. Fyllið paprikurnar með kjötréttinum og stráið
rifnum osti yfir. Bakið við 200° í um 15 mínútur.
Berið grænt salat og gróft brauð með réttinum.