Fréttatíminn - 06.03.2015, Blaðsíða 40
40 heimili & hönnun Helgin 6.-8. mars 2015
Uppþvottavélar
Helluborð
Ofnar
Háfar
Kæliskápar
Mán. - föst. kl. 10-18 · Laugardaga kl. 11-15
friform.is
Viftur
SANNKALLAÐ
PÁSKAVERÐ
Nú í AÐdRAgANdA PÁSKANNA höfum ViÐ ÁKVEÐiÐ
AÐ bjóÐA oKKAR ALbEStA VERÐ
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500
AFSLÁTTUR
30%
AF ÖLLUM INNRÉTTINGUMTIL PÁSKA
VÖNDUÐ RAFTÆKI
Á VÆGU VERÐI
www.hrim.is
Við Opnum 12. mars í
Kringlunni
Spennandi húsgagna- og
gjafavöruverslun við Ármúla
Heimili & Hugmyndir er skemmtileg verslun við Ármúla sem sérhæfir sig í sölu og ráðleggingum
varðandi húsgögn og fylgihluti fyrir innanhússtíl. Verslunin býður auk þess upp á ríkulegt úrval af
fallegri gjafavöru.
H eimili & Hugmyndir er tæp-lega átta ára gamalt fyrir-tæki og hafa eigendurnir,
Kristjana Ólafsdóttir og Kristín
Davíðsdóttir, lagt ríka áherslu á
að veita viðskiptavinum sínum fag-
lega þjónustu. „Okkar helsti sam-
starfsaðili er belgíska fyrirtækið
Flamant, en það hefur verið starf-
andi í þrjátíu ár og er þekkt fyrir
gæði og áreynslulausa hönnun eða
svokallaða tímalausa innanhúss-
hönnun,“ segir Kristjana. Í gegn-
um tíðina hafa fleiri góð merki bæst
við, til dæmis Lifestyle og Nordal.
„Við erum þekkt fyrir spennandi
og öðruvísi hluti, handvalda og
handunna vöru sem að sífellt kem-
ur á óvart. Við setjum þjónustuna
í fyrsta sæti, auk þess sem þekk-
ing og að halda versluninni hreinni,
fallegri og spennandi skiptir okkur
miklu máli,“ segir Kristjana.
Lifandi blóm lífga upp á
verslunina
Verslunin hefur verið þekkt fyrir
að fara óhefðbundnar leiðir í upp-
stillingum. „Okkur þykir gaman
að hræra upp í hlutunum eins og
að hafa fersk blóm og gera lifandi
og fallegt í kringum okkur,“ segir
Kristjana. Vöruúrvalið er mjög
fjölbreytt og koma nýjar vörur
í verslunina á tveggja til þriggja
vikna fresti. „Þannig helst versl-
unin spennandi bæði fyrir okkur
og viðskiptavinina.“ Það er því
skemmtileg og lifandi upplifun að
kíkja í heimsókn í Heimili & Hug-
myndir.
Framandi húsgögn og gja-
favara
Óhætt er að fullyrða að Heimili &
Hugmyndir er litrík og framandi
húsgagna-, húsbúnaðar- og gjafa-
vöruverslun sem er óhrædd að fara
ótroðnar slóðir í stíl og stefnum.
Kristjana og Kristín hvetja áhuga-
fólk um fallega hönnun og handverk
til að kíkja við hjá þeim í Heimili &
Hugmyndum. Verslunin er við Ár-
múla 26 í Reykjavík. Nánari upplýs-
ingar má nálgast á Facebook síðu
verslunarinnar: Heimili og hug-
myndir.
Unnið í samstarfi við
Heimili & Hugmyndir
Kristjana Ólafsdóttir og Kristín Davíðsdóttir eru eigendur verslunarinnar Heimili & Hugmyndir sem er við Ármúla 26 í Reykjavík. Þar veita þær persónulega þjónustu og bjóða upp á skemmtilega öðruvísi húsgögn, hús-
búnað og gjafavöru. Mynd/Hari.
Í versluninni Heimili & Hugmyndir er að finna fjölbreytta og fallega gjafavöru.