Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.03.2015, Blaðsíða 19

Fréttatíminn - 06.03.2015, Blaðsíða 19
Sölusýning Nóatúni 4 Sími 520 3000 www.sminor.is Sölusýning á morgun frá kl. 10 til 16. Á morgun efnum við til sölusýningar í verslun okkar. Þar gefst tækifæri til að skoða allt hið nýjasta sem við bjóðum, m.a. nýjar ryk- sugur sem Siemens hefur sett á markað og aldrei hafa verið jafn-öflugar og jafn-hljóðlátar. Og vitaskuld hefur Smith & Norland síðan á boðstólum glæsilegt úrval heimilistækja í eldhús og þvottaherbergi. Fjöldi tilboða í tilefni dagsins. Veittur verður verulega góður afsláttur. Látið sjá ykkur og njótið dagsins með okkur. Það verður heitt á könnunni! Hvað á maður að gera annað? Ég hef aldrei gert neitt annað,“ segir Gunnar Þórðarson sem fagnar sjötugsafmælinu í Hörpu. Allar upplýsingar um tón- leikana má finna á Miði.is. Ljósmynd/Hari stjörnur á einni nóttu og voru farnir á þeyting um landið, spilandi fimm sinnum í viku, stuttu eftir að sveitin var stofnuð. „Þetta eru breyttir tímar, en á þessum tíma voru bara svo fá bönd að spila,“ segir Gunnar. „Löggan fékk tíu þúsund og húsin eitthvað svipað og svo fengum við bara rest. Þetta var allt miklu auðveldara en í dag. Við vorum ungir með fullt af peningum,“ segir Gunnar með blik í auga. „Ég man að ég keypti mér bíl eftir eitt ball í Aratungu.“ Var ekkert erfitt að höndla þetta allt saman, verandi ungir menn með fulla vasa fjár? „Maður eyddi örugglega helling í vitleysu en þetta gekk bara vel,“ segir Gunnar. Hljómar störfuðu í 5 ár, og Trúbrot tók við og starfaði í önnur fimm svo Gunnar var gríðarlega áberandi á þess- um árum, ásamt félögum sínum. „Það voru samt fullt af öðrum góðum hljómsveitum, en munurinn var sá að við gáfum út plötur. Hinir gerðu það ekki,“ segir Gunnar. „Þegar hljómsveit gefur ekk- ert út þá fennir yfir hana að lokum.“ Eftir ævintýrin með Hljómum, Trúbroti og Ðe lónlí blú bojs vann Gunni mikið í hljóðverum. Bæði hér heima og í London. Hann hefur alla tíð verið iðinn við upptökur. „Ég var mikið í Hljóðrita í Hafnarfirði fyrstu árin eftir að hann opnaði,“ segir Gunni. „Það varð sprenging þegar Hljóðriti opnaði,“ segir hann. „Fyrir höfðu menn bara Ríkisút- varpið á Skúlagötu svo það var kominn tími á hljóðver á Íslandi. Á þessum tíma er landið líka að stereóvæðast. Allir að fá sér hljómflutnings- tæki og það varð sprenging í útgáfu. Ég tók upp fyrir mjög marga, og allt seldist. Ég hafði verið í London við upptökur í tvö ár áður að taka upp íslenska tónlist og kom svo heim þegar Hljóðriti opnaði. Stúdíóin voru samt ekkert dýrari í London, það þótti bara eitthvað töff að fara út,“ segir Gunnar. Saknar Rúnars Gunnar vill lítið gefa upp hvað verður á boðstólum á afmælistónleikunum í Hörpu, en segir þó víst að hann muni flytja lög frá öllum tímabilum sínum sem tónlistarmaður. „Það verður ýmislegt á boðstólunum, aldrei að vita hvað manni dettur í hug,“ segir Gunnar sposkur. Ertu alltaf að semja? „Nei,“ segir Gunnar. „Það er alltaf eitthvað á flugi í hausnum og maður pikkar bara úr. Ég er samt alltaf með gítarinn heima. Það er bara einhver ávani.“ Saknarðu Rúnars á svona tímamótum? „Já, ég geri það. Hann fór allt of snemma,“ segir Gunn- ar þegar hann talar um vin sinn, Rúnar Júlíusson, sem lést árið 2008. „Við höfðum verið vinir í gegnum súrt og sætt frá níu ára aldri og við þekktumst mjög vel,“ segir Gunnar sem tekur undir það að Rúnar muni líklega fylgjast með tónleikunum hjá góðvini sínum. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is Í óperunni á ég auð- veldara með að nota allt sem ég kann. Mað- ur þarf að vera innan marka þegar maður semur popptónlist, ef fólk á að hlusta á hana. viðtal 19 Helgin 6.-8. mars 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.