Fréttatíminn - 06.03.2015, Blaðsíða 46
Á miðvikudaginn komust um 35 þúsund farþegar norska lággjaldaflugfélagsins Nor-
wegian ekki í loftið vegna verkfalls
f lugmanna félagsins. Flugmenn-
irnir vilja fá ráðningarsamninga
við móðurfélag Norwegian í stað
þess að vera í vinnu hjá dótturfélag-
inu. Þeir gera einnig kröfu um að
norskir kjarasamningar gildi í öllu
fyrirtækinu. Það vilja forsvarsmenn
Norwegian ekki fallast á enda opin-
bert markmið þeirra að lækka launa-
kostnað fyrirtækisins og að þeirra
sögn er það ógjörningur ef bjóða á
öllum starfsmönnum norsk kjör.
Tveir verkalýðsfundir í 30 ára
sögu Ryanair
Hið írska Ryanair er stærsta lág-
gjaldaflugfélag Evrópu og í vor opnar
fyrirtækið starfsstöð á Kaupmanna-
hafnarflugvelli. Þar er Norwegian
mjög umsvifamikið og stefnir í
áframhaldandi verðstríð í Kastrup.
Forsvarsmenn danskra verkalýðs-
félaga hafa sagt að þeir muni aldrei
sætta sig við að Ryanair bjóði dönsk-
um starfsmönnum sínum aðeins
verktakasamninga líkt og tíðkast hjá
írska flugfélaginu. Í vetur hefur því
komið til mótmæla á blaðamanna-
fundum Ryanair í Kaupmannahöfn
og loks féllust stjórnendur Ryana-
ir á að setjast niður með fulltrúum
verkalýðsfélaga í Danmörku.
Samkvæmt fréttum þar í landi var
þetta í annað skipti í þrjátíu ára sögu
Ryanair sem forsvarsmenn félags-
ins funda með samtökum launafólks.
Verktakasamningar Ryanair hafa
víða verið til umfjöllunar enda þykir
mörgum gróft að áhafnarmeðlimir
félagins þurfi sjálfir að borga fyrir
einkennisbúninga, fái ekki greitt
vegna veikinda eða njóti almennra
lífeyrisréttinda. Einnig hefur verið
bent á að nýir starfsmenn Ryanair
eru í skuld við félagið þegar þeir
hefja störf því þátttaka á undirbún-
ingskúrs félagsins er dregin frá laun-
unum.
Meiri vinna fyrir lægri laun
Sýnt hefur verið fram á að áhafnir
lággjaldaflugfélaga í Evrópu fá lægri
laun í átta af hverjum tíu tilvikum
í samanburði við starfsmenn hefð-
bundnu flugfélaganna. Vinnuálagið
er einnig rúmlega helmingi meira
og starfsöryggið talsvert minna.
Þetta er líklega ein helsta ástæða
þess að lággjaldaflugfélögin geta
boðið lægri fargjöld. Og til að eiga
roð í þau ætluðu forsvarsmenn Air
France að færa hluta starfseminnar
yfir í lággjaldaflugfélagið Transavia
því þar njóta áhafnirnar ekki eins
góðra kjara og þekkjast hjá móður-
félaginu.
Flugmenn Air France brugðust
við þessum áformum með því að
leggja niður störf í hálfan mánuð í
haust. Verkfallið er talið hafa kostað
Air France um 45 milljarða króna og
stjórnendur félagsins urðu að bakka
með áætlanir sínar um að efla Tran-
savia á kostnað Air France. For-
svarsmenn SAS standa í svipuðum
æfingum því þeir hafa tekið yfir flug-
félagið Cimber og ætla að láta það sjá
um styttri flugleiðir félagins innan
Skandinavíu. Samkvæmt frétt TV2
í Danmörku eru hámarkslaun hjá
Cimber fimmtungi lægri en hjá SAS,
sumarfríið er styttra og vinnuskyld-
an meiri. Færa á 147 starfsmenn SAS
yfir í Cimber og það eru áhafnirnar
ekki sáttar við og lagði hluti þeirra
niður vinnu í síðustu viku. Verkfall-
ið var hins vegar dæmt ólöglegt og
snéru starfsmennirnir því aftur til
vinnu í byrjun vikunnar.
Réttarstaða farþega óskýr
Á meðan á öllum þessum kjaradeil-
um stendur komast farþegarnir ekki
á leiðarenda. Réttur fólks á skaðabót-
um í þessum tilvikum eru því miður
nokkuð óljós því verkfall hefur sums-
staðar verið flokkað sem óviðráðan-
legt ástand og við þær aðstæður eiga
farþegar þá ekki rétt á skaðabótum.
Hins vegar segir á heimasíðu Sam-
göngustofu að verkföll flugrekanda
teljist ekki til óviðráðanlegra að-
stæðna og í Danmörku hafa reglur
Evrópusambandins verið túlkaðar
á sama hátt. Staðan er því ekki skýr
en unnið er að því að bæta reglurn-
ar innan ESB enda ekki vanþörf á
því það er ekki útlit fyrir annað en
að kjaradeilur haldi áfram að setja
ferðaplön úr skorðum.
46 ferðalög
Flug VerkFöll Flugrekenda
Hinar fljúgandi stéttir
eiga í vök að verjast
Kristján
Sigurjónsson
kristjan@turisti.is
Helgin 6.-8. mars 2015
Kanarí er eyjaklasi í Norður-
Atlantshaf i undan ströndum
norðvestur-Afríku. Eyjarnar eru
staðsettar á mörkum hitabeltis
og tempraðs beltis sem þýðir að
loftslagið er sérstaklega milt.
Sólarparadísin Tenerife er spenn-
andi áfangastaður fyrir unga
sem aldna. Á eyjunni er einstök
veðursæld og stórbrotin náttúra og
það er fátt betra en að stinga tán-
um í sólheitan sandinn og synda í
fagurbláu Atlantshafinu.
Tenerife er stærsta eyjan í
Kanaríeyjaklasanum og fullkominn
áfangastaður fyrir alla þá sem lang-
ar að slaka á í sólinni, já eða sletta
ærlega úr klaufunum. Gullfallegar
strandlengjur svo langt sem augað
eygir, ævintýralegir vatnsleikja-
garðar, hæsta vatnsrennibrautin
og stærsta öldulaugin, go-kart
fyrir ökuþórana, golf, dýragarður,
spennandi kynnisferðir um stór-
brotna náttúru og flottir verslunar-
kjarnar, svo fátt eitt sé nefnt. Á eyj-
unni er fjöldi úrvals veitingastaða
og næturlífið er sérdeilis fjörugt.
Höfuðborgin Santa Cruz de
Tenerife iðar af mannlífi og tilvalið
að skella sér í búðaráp, skoða söfn
og sérstakan arkitektúr, kastala og
kirkjur.
Ísland og Tenerife eiga kannski
ekki margt sameiginlegt, nema
kannski eldfjöll, en þriðja hæsta
eldfjall heims er á Tenerife. Eldjallið
Teide er 3.718 metra yfir sjávarmáli
og hægt að ferðast upp fjallið í þar-
tilgerðum kláfi, á bíl eða einfald-
lega á tveimur jafnfljótum. Kannski
ekki fyrir lofthrædda en mögnuð
upplifun fyrir ævintýragjarna.
Tenerife er vinsæll áfangastað-
ur enda sannkölluð paradísareyja.
WOW air tekur gott forskot á sum-
arið og leggur í hann til Tenerife
þann 28. mars. Kemur þú ekki
örugglega með? Verð frá 19.999 kr.
Unnið í samstarfi við
WOW air
Á táslunum til Tenerife
Hinar fljúgandi stéttir eiga í vök að verjast. Undanfarið hafa áhafnir evrópskra flugfélaga lagt
niður störf og ástæðan er oftar en ekki sú að forsvarsmenn flugfélaganna eru að reyna að eiga
roð í fargjöld Ryanair.
Verktakasamningar Ryanair hafa víða verið til umfjöllunar.
www.fi.is
Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
Fjallaskíðafe
rð
á Helgrindur
Skráðu þig in
n – drífðu þig
út
Fjallaskíðaferð á Helgrindur
12. apríl, sunnudagur
Gengið á mannbroddum upp fyrstu brekkuna sem er nokkuð
brött. Þaðan er gengið á fjallasvigskíðum upp Kálfárdalinn inn að
sunnanverðum Helgrindum. Smám saman eykst brattinn uns
komið er að Böðvarskúlu, 980 m en þaðan er stórfenglegt útsýni
yfir Breiðafjörð og Snæfellsnes. Skíðað niður í rólegheitunum
með útsýni yfir fjörurnar á sunnanverðu Snæfellsnesi og
Snæfellsjökul á hægri hönd. 6-8 klst. Þátttakendur þurfa að vera
góðir skíðamenn og þekkja til fjallasvigskíða. Mannbroddar,
skíðahjálmur og göngu- belti eru nauðsynlegur búnaður.
Fararstjóri: Tómas Guðbjartsson.
Sjá nánar á www.fi.is
Nánari upplýsingar og skráning er í síma 568 2533 eða í
netpóst fi@fi.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA