Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.03.2015, Qupperneq 46

Fréttatíminn - 06.03.2015, Qupperneq 46
Á miðvikudaginn komust um 35 þúsund farþegar norska lággjaldaflugfélagsins Nor- wegian ekki í loftið vegna verkfalls f lugmanna félagsins. Flugmenn- irnir vilja fá ráðningarsamninga við móðurfélag Norwegian í stað þess að vera í vinnu hjá dótturfélag- inu. Þeir gera einnig kröfu um að norskir kjarasamningar gildi í öllu fyrirtækinu. Það vilja forsvarsmenn Norwegian ekki fallast á enda opin- bert markmið þeirra að lækka launa- kostnað fyrirtækisins og að þeirra sögn er það ógjörningur ef bjóða á öllum starfsmönnum norsk kjör. Tveir verkalýðsfundir í 30 ára sögu Ryanair Hið írska Ryanair er stærsta lág- gjaldaflugfélag Evrópu og í vor opnar fyrirtækið starfsstöð á Kaupmanna- hafnarflugvelli. Þar er Norwegian mjög umsvifamikið og stefnir í áframhaldandi verðstríð í Kastrup. Forsvarsmenn danskra verkalýðs- félaga hafa sagt að þeir muni aldrei sætta sig við að Ryanair bjóði dönsk- um starfsmönnum sínum aðeins verktakasamninga líkt og tíðkast hjá írska flugfélaginu. Í vetur hefur því komið til mótmæla á blaðamanna- fundum Ryanair í Kaupmannahöfn og loks féllust stjórnendur Ryana- ir á að setjast niður með fulltrúum verkalýðsfélaga í Danmörku. Samkvæmt fréttum þar í landi var þetta í annað skipti í þrjátíu ára sögu Ryanair sem forsvarsmenn félags- ins funda með samtökum launafólks. Verktakasamningar Ryanair hafa víða verið til umfjöllunar enda þykir mörgum gróft að áhafnarmeðlimir félagins þurfi sjálfir að borga fyrir einkennisbúninga, fái ekki greitt vegna veikinda eða njóti almennra lífeyrisréttinda. Einnig hefur verið bent á að nýir starfsmenn Ryanair eru í skuld við félagið þegar þeir hefja störf því þátttaka á undirbún- ingskúrs félagsins er dregin frá laun- unum. Meiri vinna fyrir lægri laun Sýnt hefur verið fram á að áhafnir lággjaldaflugfélaga í Evrópu fá lægri laun í átta af hverjum tíu tilvikum í samanburði við starfsmenn hefð- bundnu flugfélaganna. Vinnuálagið er einnig rúmlega helmingi meira og starfsöryggið talsvert minna. Þetta er líklega ein helsta ástæða þess að lággjaldaflugfélögin geta boðið lægri fargjöld. Og til að eiga roð í þau ætluðu forsvarsmenn Air France að færa hluta starfseminnar yfir í lággjaldaflugfélagið Transavia því þar njóta áhafnirnar ekki eins góðra kjara og þekkjast hjá móður- félaginu. Flugmenn Air France brugðust við þessum áformum með því að leggja niður störf í hálfan mánuð í haust. Verkfallið er talið hafa kostað Air France um 45 milljarða króna og stjórnendur félagsins urðu að bakka með áætlanir sínar um að efla Tran- savia á kostnað Air France. For- svarsmenn SAS standa í svipuðum æfingum því þeir hafa tekið yfir flug- félagið Cimber og ætla að láta það sjá um styttri flugleiðir félagins innan Skandinavíu. Samkvæmt frétt TV2 í Danmörku eru hámarkslaun hjá Cimber fimmtungi lægri en hjá SAS, sumarfríið er styttra og vinnuskyld- an meiri. Færa á 147 starfsmenn SAS yfir í Cimber og það eru áhafnirnar ekki sáttar við og lagði hluti þeirra niður vinnu í síðustu viku. Verkfall- ið var hins vegar dæmt ólöglegt og snéru starfsmennirnir því aftur til vinnu í byrjun vikunnar. Réttarstaða farþega óskýr Á meðan á öllum þessum kjaradeil- um stendur komast farþegarnir ekki á leiðarenda. Réttur fólks á skaðabót- um í þessum tilvikum eru því miður nokkuð óljós því verkfall hefur sums- staðar verið flokkað sem óviðráðan- legt ástand og við þær aðstæður eiga farþegar þá ekki rétt á skaðabótum. Hins vegar segir á heimasíðu Sam- göngustofu að verkföll flugrekanda teljist ekki til óviðráðanlegra að- stæðna og í Danmörku hafa reglur Evrópusambandins verið túlkaðar á sama hátt. Staðan er því ekki skýr en unnið er að því að bæta reglurn- ar innan ESB enda ekki vanþörf á því það er ekki útlit fyrir annað en að kjaradeilur haldi áfram að setja ferðaplön úr skorðum. 46 ferðalög  Flug VerkFöll Flugrekenda Hinar fljúgandi stéttir eiga í vök að verjast Kristján Sigurjónsson kristjan@turisti.is Helgin 6.-8. mars 2015 Kanarí er eyjaklasi í Norður- Atlantshaf i undan ströndum norðvestur-Afríku. Eyjarnar eru staðsettar á mörkum hitabeltis og tempraðs beltis sem þýðir að loftslagið er sérstaklega milt. Sólarparadísin Tenerife er spenn- andi áfangastaður fyrir unga sem aldna. Á eyjunni er einstök veðursæld og stórbrotin náttúra og það er fátt betra en að stinga tán- um í sólheitan sandinn og synda í fagurbláu Atlantshafinu. Tenerife er stærsta eyjan í Kanaríeyjaklasanum og fullkominn áfangastaður fyrir alla þá sem lang- ar að slaka á í sólinni, já eða sletta ærlega úr klaufunum. Gullfallegar strandlengjur svo langt sem augað eygir, ævintýralegir vatnsleikja- garðar, hæsta vatnsrennibrautin og stærsta öldulaugin, go-kart fyrir ökuþórana, golf, dýragarður, spennandi kynnisferðir um stór- brotna náttúru og flottir verslunar- kjarnar, svo fátt eitt sé nefnt. Á eyj- unni er fjöldi úrvals veitingastaða og næturlífið er sérdeilis fjörugt. Höfuðborgin Santa Cruz de Tenerife iðar af mannlífi og tilvalið að skella sér í búðaráp, skoða söfn og sérstakan arkitektúr, kastala og kirkjur. Ísland og Tenerife eiga kannski ekki margt sameiginlegt, nema kannski eldfjöll, en þriðja hæsta eldfjall heims er á Tenerife. Eldjallið Teide er 3.718 metra yfir sjávarmáli og hægt að ferðast upp fjallið í þar- tilgerðum kláfi, á bíl eða einfald- lega á tveimur jafnfljótum. Kannski ekki fyrir lofthrædda en mögnuð upplifun fyrir ævintýragjarna. Tenerife er vinsæll áfangastað- ur enda sannkölluð paradísareyja. WOW air tekur gott forskot á sum- arið og leggur í hann til Tenerife þann 28. mars. Kemur þú ekki örugglega með? Verð frá 19.999 kr. Unnið í samstarfi við WOW air Á táslunum til Tenerife Hinar fljúgandi stéttir eiga í vök að verjast. Undanfarið hafa áhafnir evrópskra flugfélaga lagt niður störf og ástæðan er oftar en ekki sú að forsvarsmenn flugfélaganna eru að reyna að eiga roð í fargjöld Ryanair. Verktakasamningar Ryanair hafa víða verið til umfjöllunar. www.fi.is Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is FERÐAFÉLAG ÍSLANDS Fjallaskíðafe rð á Helgrindur Skráðu þig in n – drífðu þig út Fjallaskíðaferð á Helgrindur 12. apríl, sunnudagur Gengið á mannbroddum upp fyrstu brekkuna sem er nokkuð brött. Þaðan er gengið á fjallasvigskíðum upp Kálfárdalinn inn að sunnanverðum Helgrindum. Smám saman eykst brattinn uns komið er að Böðvarskúlu, 980 m en þaðan er stórfenglegt útsýni yfir Breiðafjörð og Snæfellsnes. Skíðað niður í rólegheitunum með útsýni yfir fjörurnar á sunnanverðu Snæfellsnesi og Snæfellsjökul á hægri hönd. 6-8 klst. Þátttakendur þurfa að vera góðir skíðamenn og þekkja til fjallasvigskíða. Mannbroddar, skíðahjálmur og göngu- belti eru nauðsynlegur búnaður. Fararstjóri: Tómas Guðbjartsson. Sjá nánar á www.fi.is Nánari upplýsingar og skráning er í síma 568 2533 eða í netpóst fi@fi.is H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.