Iðnaðarmál - 01.03.1962, Síða 10
Stjórríunariélag Jslauds
lýkur fyrsta starfsári
Mánudaginn 28. maí síðastliðinn
hélt SFÍ að loknu, fyrsta starfsári
aðalfund. Þar flutti formaður, Jakob
Gíslason, skýrslu um liðið starfsár.
Gjaldkeri, Gísli V. Einarsson, las upp
og skýrði endurskoðaða ársreikninga.
Einnig var lögð fyrir og samþykkt
fjárhagsáætlun næsta starfsárs. Þeir
stjórnarmanna er ganga áttu úr stjórn
og aðrir framkvæmdaráðsmenn —
voru einróma endurkosnir auk endur-
skoðenda.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa
fluttu erindi um stjórnunarmál tveir
sænskir sérfræðingar, er dvöldu hér á
vegum félagsins sem fyrirlesarar og
leiðbeinendur á námsmóti Stjórnun-
arfélagsins, er í hönd fór næstu daga.
Af því helzta, er Stjórnunarfélagið
hefur gert eða gengizt fyrir á fyrsta
starfsári, má nefna:
í desember 1960 meðan stofnun fé-
lagsins var í undirbúningi kom forseti
C.I.O.S., Albrecht M. Lederer, hing-
að til landsins og dvaldi hér í tvo
daga til skrafs og ráðagerða um fé-
lagsstofnunina.
í maí-mánuði 1961 fékk félagið
fyrir milligöngu Guðmundar Einars-
sonar forstjóra hjá íslenzkum aðal-
verktökum, hingað til landsins Banda-
ríkjamanninn Donald F. Lane, for-
stjóra hjá International Management
Company, og hélt hann vikunámskeið
um kostnaðareftirlit og skipulagningu
vinnuaðferða. Þátttakendur nám-
skeiðsins mynduðu með sér umræðu-
hóp á vegum félagsins, sem hélt
áfram störfum og tók fyrir á fundum
sínum, hvert af öðru eftirtalinna verk-
efna: Skipulagsmál fyrirtækja, sparn-
að við breytingu vinnutilhögunar við
ákveðin verk, vörumóttöku og fyrir-
komulag birgðabókhalds, reikninga-
afgreiðslu og notkun beiðna, rann-
sókn á rekstrarkostnaði þungavinnu-
véla, notkun gatspjaldavéla í bók-
ingaframkvæmdir o. fl.
í júní 1961 mætti formaður Stjórn-
haldi, kostnaðarbókhald við bygg-
unarfélagsins á framkvæmdaráðs-
fundi Alþjóðanefndar vísindalegra
stjórnunarmála, Commité Inter-
national de l’Organisation Scienti-
fique, CIOS, í París og var þá Stjórn-
unarfélag Islands formlega samþykkt
sem meðlimur í þeim alþjóðasamtök-
um.
Lokið er nú tveimur af þeim þrem-
ur þriggja vikna námskeiðum í
vinnurannsóknum, sem Iðnaðarmála-
stofnun íslands heldur í samráði við
Stjórnunarfélag íslands. Lokanám-
skeiðið verður haldið á hausti kom-
anda.
Stjórnunarfélagið efndi til ráð-
stefnu um mánaðamótin ágúst-sept-
ember að Bifröst í Borgarfirði. Ráð-
stefnuna sóttu um sjötíu manns, for-
stjórar og fulltrúar frá mörgum
stærstu fyrirtækjum, atvinnusamtök-
um og stofnunum landsins. Gestur fé-
lagsins á ráðstefnu þessari var dr.
Harold Whitehead frá British Insti-
tute of Management og flutti hann er-
indi um stjórnunarmál. Menntamála-
ráðherra, dr. Gylfi Þ. Gíslason flutti
og erindi um menntun í stjórnunar-
málum.
Auk erindaflutnings störfuðu á ráð-
stefnunni umræðuhópar, er hver tók
fyrir sérstök verkefni til umræðu. Á
lokafundi sínum samþykkti ráðstefn-
an allumfangsmiklar ályktanir um
gagnlegar og nauðsynlegar ráðstafan-
ir, er koma þyrfti í framkvæmd.
Að lokinni ráðstefnunni gaf félag-
ið út þingtíðindi ráðstefnunnar í bók-
arformi undir nafninu „Stjórnun
fyrirtækja“. Bók þessi hefur verið
send öllum félögum SFÍ ókeypis. í
júlí síðastliðnum hóf SFÍ útgáfu fjöl-
ritaðs félagsbréfs.
Þrjár fastanefndir eða vinnuhópar
eru nú starfandi á vegum félagsins.
Er þar fyrst að nefna orðanefnd, en
hana skipa Björn Sveinbjörnsson
verkfræðingur, formaður, Steingrím-
ur Jónsson fyrrv. rafmagnsstjóri,
Sverrir Júlíusson hagfræðingur og
Þorvarður J. Júlíusson hagfræðing-
ur. Orðanefndin hefur haldið all-
marga fundi og gert uppkast að orða-
lista, sem fjölritaður hefur verið og
sendur ýmsum til athugunar, en auk
þess verður hann lagður sérstaklega
fyrir málfræðinga til athugunar. List-
inn er saminn eftir dönskum staðli,
nr. 981 Terminologi vedrörende
arbejdsstudier.
Þá er að nefna vinnuhóp er fjallar
um reikningalykil eða standard
kontoplan. Þennan hóp skipa prófess-
or Árni Vilhjálmsson, sem er formað-
ur hans, Þórir Einarsson viðskipta-
fræðingur, ritari nefndarinnar, Glúrn-
ur Björnsson hagfræðingur, skrif-
stofustjóri, Sigurgeir Jónsson við-
skiptafræðingur, Gunnlaugur Björns-
son bankafulltrúi og Bjarni Bragi
Jónsson hagfræðingur. Hópurinn hef-
ur starfað frá síðustu áramótum. Mál-
in hafa verið rædd almennt, en jafn-
framt sérstaklega athugað um reikn-
ingalykil fyrir sjávarútveg og fisk-
iðnað, m. a. með tilliti til óska láns-
stofnana unr uppstillingu efnahags-
og rekstrarreikninga. Hinn þriðji er
svo vinnuhópur um sjálfvirkni eða
„automation“. Formaður hans er
Magnús Reynir Jónsson verkfræðing-
ur. Þessi vinnuhópur hefur ekki hald-
ið marga fundi, en á hans vegum var
haldinn almennur félagsfundur í
Klúbbnum 8. marz s.l. þar sem Sveinn
Guðmundsson verkfræðingur flutti
mjög fróðlegt og ýtarlegt erindi um
sjálfvirkni almennt og sýndi tvær
kvikmyndir um það efni.
Fljótlega eftir stofnun SFÍ var kos-
in nefnd til þess að vinna að almennu
samkomulagi um vinnurannsóknir.
Það hefur þó atvikast svo, að nefnd
þessi hefur enn ekki tekið til starfa, en
verkefni hennar hefur nokkrum sinn-
um verið tekið til umræðu á stjórnar-
og framkvæmdaráðsfundum. Síðan
hefur Iðnaðarmálastofnun Islands
tekið þetta mál til meðferðar. Að
frumkvæði framkvstj. Iðnaðarmála-
stofnunarinnar, Sveins Björnssonar,
36
IÐNAÐARMAL