Iðnaðarmál - 01.03.1962, Page 11
og samkvæmt ákvörðun stjórnar Iðn-
aðarmálastofnunarinnar, en með
fjárhagslegri og skipulagslegri aðstoð
frá OEDC var í júníbyrjun farin
kynnisför til Hollands og Norður-
landa, þar sem fulltrúar frá samtök-
um launþega og vinnuveitenda hér á
landi fá kost á því að kynna sér hvað
gjört hefur verið í þessum efnum í
þeim löndum. Stjórn SFÍ fagnar
þessu frumkvæði Iðnaðarmálastofn-
unarinnar og forstjóra hennar og
vonast til að kynnisför þessi muni
bera góðan árangur meðal annars í
þá átt að stuðla að því, að það al-
menna samkomulag verði um vinnu-
rannsóknir hér á landi, sem Stjórn-
unarfélagið fyrir sitt leyti mjög
gjarnan vildi vinna að eftir mætti.
Þegar hefur verið gjörður nokkur
undirbúningur að stofnun vinnuhóps
eða umræðuhóps um starfsmannamál
almennt.
SFÍ hefur haft samband við mið-
stöð fyrir samanburð milli fyrir-
tækja, Center for Interfirm Compari-
sion, sem British Institute of Manage-
ment hefur komið á fót í Bretlandi.
Forstjóri miðstöðvarinnar, H. Ing-
ham, hefur tilkynnt SFÍ, að íslenzk
fyrirtæki, sem þess óska, geti orðið
þáttakendur í starfsemi miðstöðvar-
innar. Þetta tilkynnti stjórn SFÍ fé-
lagsmönnum í félagsbréfi nr. 4. Væri
mjög gagnlegt fyrir okkur að kynnast
þeirri starfsemi nánar. Slíkur saman-
burður milli fyrirtækja og verksvið
nefndarinnar um reikningalykil eða
standard kontoplan snerta mjög hvað
annað.
Stjórnunarfélag íslands tekur nokk-
urn þátt í undirbúningi að ráðstefnu
Evrópudeildar C.I.O.S., C.E.C.I.O.S.,
sem haldin verður í Róm í október
þetta ár. A ráðstefnunni verða flutt
erindi um 8 aðalviðfangsefni. Oskað
var eftir því, að í hverju meðlima-
landi CECIOS yrðu tilnefndir sér-
fræðingar, er gefið gætu upplýsingar
um þau atriði er fjallað yrði um. Að
beiðni stjórnar SFI hafa þessir menn
vinsamlegast tekið þetta að sér: Dr.
Jóhannes Nordal bankastjóri, Jónas
Haralz ráðuneytisstjóri, Einar
Bjarnason ríkisendurskoðandi,
Sveinn Björnsson, framkvstj. Iðnað-
armálastofnunar íslands, Guðmundur
Einarsson, forstjóri íslenzkra Aðal-
verktaka, Erlendur Einarsson, for-
stjóri Sambands íslenzkra samvinnu-
félaga og Sveinn Valfells, formaður
Félags íslenzkra iðnrekenda. Þá er
formaður SFÍ, Jakob Gíslason raf-
orkumálastjóri, skráður sem meðlim-
ur í verndarráði ráðstefnunnar og
gert ráð fyrir að fulltrúi frá SFÍ
stjórni einum fundi hennar og annar
fulltrúi frá SFÍ verði ritari annars
fundar.
Þegar er hafinn undirbúningur að
13. alþjóðaráðstefnu CIOS, sem
halda á í New York 1963. í tilefni
þeirrar ráðstefnu er efnt til alþjóð-
legrar ritgerðarsamkeppni um kjör-
orð ráðstefnunnar, sem er „Human
Progress Through Better Manage-
ment“. Verðlaun eru 4.000 svissnesk-
ir frankar. Þátttaka í báðum þessum
ráðstefnum er heimil öllum félögum
SFÍ.
Dagana 30. maí til 1. júní hélt
Stjórnunarfélag íslands þriggja daga
námsmót í Borgarnesi, er fjallaði um
arðsemi og fjármunamyndunarmál
og fleiri atriði varðandi fjármála-
stjórn fyrirtækja. Aður hafði um-
ræðuhópur þátttakenda rætt þessi mál
á fundum sínum.
Leiðbeinendur á námsmótinu
voru dr. ing. K. H. Fraenkel og dr.
Klaas ter Vehn. Dr. Fraenkel er for-
stjóri hagræðingardeildar sænsku
ríkisrafveitnanna og hefur auk þess
starfað víða sem ráðunautur í stjórn-
unarmálum og haldið námskeið á
vegum Sameinuðu þjóðanna um
stjórnunarmál fyrirtækja. Klaas ter
Vehn er sérfræðingur í rekstrarhag-
fræði.
Þátttaka var bundin við 28, og voru
flestir á vegum stórra fyrirtækja og
opinberra stofnana og samtaka at-
vinnurekenda.
Auk erindaflutnings var á náms-
mótinu unnið að lausn verkefna í
fjórum hópum.
A námsmótinu var fjallað um fjár-
málastjórn fyrirtækja, fjárhags- og
kostnaðaráætlanir, skýrslur til fram-
kvæmdastjórnar og fjárhagseftirlit.
Ennfremur um mat á fjárfestingu,
vaxtamat og vaxtareikning, afskriftir,
skattamál og áhrif verðbólgu. í því
sambandi var gerð grein fyrir nýrri
tækni við fjárfestingarmat, svonefnd-
um MAPI reglum, sem kenndar eru
við Machinery and Allied Products
Institute í Bandaríkjunum og vakið
hafa athygli víða um heim, en mega
heita óþekktar hér á landi til þessa.
Á. Þ. Á.
Nýtt
þ j ónustufyrirtæki
fyrir iðnaðinn
Nýlega hefur nýtt fyrirtæki, FJÖL-
VER, tekið til starfa. Fyrirtæki þetta
hefur að markmiði að veita þjónustu
fyrir iðnað og verzlun á kemisk-tekn-
isku sviði með öflun upplýsinga og
með því að framkvæma prófanir og
rannsóknir.
FJÖL-VER hefur efnarannsóknar-
stofu og skrifstofu að Garðastræti 45
í Reykjavík.
Forsvarsmaður þessarar starfsemi,
Jóhann Jakobsson efnaverkfræðing-
ur, fyrrverandi deildarstjóri Iðnaðar-
deildar Atvinnudeildar Háskólans,
greindi svo frá, að fyrirtækið hefði
hug á að ná samböndum við fram-
leiðendur iðnaðarvarnings og þá sér-
staklega þá, sem hafa þörf fvrir kem-
iskar prófanir og framleiðslueftirlit
á kemisku sviði.
Jóhann hyggur, að ýmis smærri
fyrirtæki muni telja það hagræði að
geta leitað til þjónustufyrirtækis sem
þessa. Hann hvað það ætlun sína að
starfa bæði við úrlausn einstakra
verkefna og sem ráðgefandi við fram-
leiðslu og framleiðslueftirlit á föstum
samningum.
Iðnaðarmálastofnun íslands telur,
að hér sé um athyglisverða starfsemi
að ræða. Mörg fyrirtæki eiga við
vandamál að etja á því sviði, sem hér
um ræðir, en aðeins hin stærri geta
haft sérfróða menn og vinnuaðstöðu
til ýmis konar prófana, sem oft er
mikilvægt að geta framkvæmt.
IÐNAÐARMÁL
37