Iðnaðarmál - 01.03.1962, Síða 19
NYTSAMAR NYIUNGAR
Mótagerð fyrir plast
Ný efnasamsetning, sem notuð er í
Kanada, er sögð mjög hentug í ódýr
og fljótgerð mót fyrir hluti úr gúmi,
nælon, polyethylene, polystyrene o. fl.
Módelið (úr viði, gipsi eða öðru
viðeigandi efni) er nuddað með leys-
andi efni til að koma í veg fyrir við-
loðun og er sett í kassa, en í hann er
efnasamsetningunni síðan hellt, ásamt
herðandi efni. Ef snögg hitun eða
kæling er talin mikilvæg, er lítill vind-
ingur fyrir gufu eða kalt vatn falinn í
samsetningunni, áður en hún harðn-
ar. Samanlagður tími fyrir hvert mót
er breytilegur, frá 2—6 klst., eftir lög-
un mótanna.
Hin nýja efnasamsetning inniheld-
ur um 80% alúmín og stál og um
20% af plastefni. Hún er mjög þétt,
hefur gott hitaþol og þrýstiþol yfir
30.000 lbs á ferþuml. (13.600 kg).
Hún skreppur hvorki né aflagast hið
minnsta, meðan á hörðnun stendur,
og eftir að hún hefur harðnað, breyt-
ist hún ekki eða spillist. Venjulega er
lítil sem engin þörf fyrir vélameðferð
á eftir eða nokkurs konar lokayfir-
ferð mótanna.
Ur „Canadian Plastics", apríl 1959. —
E.T.D. no. 4569.
Merking pakka
gerð auSveldari
Stenslar, vélritaðir sem kalkipapp-
írsafrit afgreiðsluskjala, eru losaðir
greiðlega frá og notaðir til að þrýsta
nafni og heimilisfangi á pakkana,
sem verið er að senda út.
Ný aðferð við merkingu pappa-
kassa, böggla eða annarra sendinga,
sem búnar eru til útskipunar, hefur
mikinn sparnað í för með sér.
Viðeigandi viðskiptaskjöl innifela
stensil, sem nafn og heimilisfang er
ritað á, og er það einn þáttur í frá-
gangi venjulegra flutningapappíra
vörunnar. Þegar skjölin eru aðskilin
og kalkipappírsafritin greind frá, er
stensillinn tekinn og látinn inn í ein-
faldan haldara, sem síðan er notaður
eins og gúmstimpill til að setja eins
mörg merki og óskað er á pakkana.
Sérhver stensill getur gefið nokkur
þúsund merki, ef þörf krefur, og blek-
fyllingin í haldaranum gefur allt að
5000 áprentanir, áður en fylla þarf á
ný.
Útbúnaðurinn er fundinn upp hjá Fan-
fold Ltd., Bridport Road, London, N 18. —
Úr „Packaging" (Englandi) júní 19bi. —
E.T.D. no. 4751.
Lofttæmilyftir
fyrir gaffalvagna
Sogtæki til lyftingar á hleðslu hef-
ur nú verið komið fyrir á gaffalvögn-
um og hreyfanlegum krönum. Útbún-
aður þessi er samsettur af lofttæmi,
sogurum og grind eða grindum, sem
sogararnir hanga í.
Þessi lyftiaðferð hefur allmikla
kosti. Ekki er þörf fyrir kaðla eða
keðjur, og hægt er að lyfta stykkjum
beint upp úr umbúðum sínum. Brún-
ir eða viðkvæmir fletir hleðsluvarn-
ings eru ekki í neinni hættu fyrir
skemmdum. Fyrirferðarmiklar og ill-
meðfærilegar plötur — jafnvel úr
viðkvæmu efni eins og gleri — eru
ekki aðeins auðveldar í lyftingu og
flutningi, heldur er hægt að hagræða
þeim að vild og setja þær í hvaða
stöðu eða stillingu sem óskað er, á
þeim stað, þar sem á að setja þær
upp.
Hægt er að lyfta greiðlega og ör-
ugglega sérhverju stykki varnings, ef
það hefur aðeins sléttan. Ioftþéttan
flöt, sem hægt er að koma sogtækjun-
um að.
IÐNAÐARMAL
45