Iðnaðarmál - 01.03.1962, Qupperneq 20
Lofttæmiútbúnaðurinn er samsett-
ur af lofttæmingardælu, sem gengur
fyrir vélarafli vagnsins, ásamt viðeig-
andi stjórntæki. Sjálfvirkur viSvör-
unarútbúnaSur gefur bæSi sjón- og
hljóSmerki, ef lofttæmingin er ekki
nægilega sterk til aS tryggja örugga
festingu. Sogararnir, einn eSa fleiri,
eru tengdir viS meS sérstökum hos-
um. Þeir eru bornir uppi af grindum,
sem hanga í keSjum úr kranakrók eSa
gaffli. Til aS hagnýta aS fullu kosti
lofttæmilyftingar viS meShöndlun á
plötum, hefur veriS gerS viSbótar-
krossbóma, sem hægt er aS halla.
Bómunni er komiS fyrir á sleSanum í
staSinn fyrir gaffal, og má stjórna
henni meS vökvaþrýstingi, þannig aS
hægt sé aS halda plötunni ýmist lá-
réttri, lóSréttri eSa í hvaSa stöSu, sem
óskaS er. Hægt er aS flytja sogarana
til, eftir bómunni, og festa þá hvar
sem þörf krefur.
Sogarar eru nú fáanlegir, kringlótt-
ir eSa hyrndir, í fjórum stærSum,
meS lyftiafli frá 100—500 kg.
Framleiðandi er Steinbock G.m.b.H.,
Moosburg/Obb., Þýzkalandi. — Ur „För-
dern und Heben“ no. 6, 1961. — E.T.D. no.
4695.
Plastgeymar
til vökvaflutninga
TaliS er sennilegt, að geymar úr
resin-trefjagleri, sem fyrirtæki í
Udine (Ítalíu) hefur nýlega tekiS aS
framleiða, muni fljótlega — vegna
léttleika og annarra kosta — ryðja úr
vegi eldri gerðum af geymum til
flutninga á víni, mjólk, brennsluolí-
um o. s. frv.
SINTO-BLINDA-geymirinn er
gerður af trefjagleri, blönduðu poly-
ester resin. Hann er mjög traustur,
mótaður í heilu lagi og styrktur á
þeim svæðum, sem mest reynir á.
Hann er því sterkari en venjulegir
málmgeymar, sem oft hættir við
skemmdum á mótum og samskeytum.
Stærðum hinna nýju geyma er
haldið innan þeirra takmarka, að
unnt sé að koma þeim fyrir á hvers
konar flutningavögnum, sem fram-
leiddir eru á Ítalíu. Lögun geymanna
er þannig, að hún tryggir hámarks-
nýtingu á rúmi þeirra.
Sem stendur, eru þeir gerðir fyrir
2000 — 2500 — 4000 — og 5000 Itr.
magn.
MeSan á flutningi stendur, eru
geymarnir mjög stöðugir og lausir
við hávaða.
Auðvelt er að þrífa geymana og
dauðhreinsa, án þess að nokkur lykt
verði eftir, sem borizt geti í innihald-
ið. Þeir hafa gott viðnám gegn kem-
ískum efnum og seltu (sem gerir þá
sérlega hentuga til flutninga á sjó)
og þola vel hita (yfir 100° C). Neist-
ar skemma þá ekki, og þeir leiða illa
hita. Vegna þess hve þeir eru óeldfim-
ir, eru þeir mjög hentugir til ýmiss
konar olíuflutninga. Leki er mjög
sjaldgæfur í þeim, og komi hann fyr-
ir, er bæði auðvelt og fljótlegt að
stöðva hann. ViShald er ekkert og
geymsluvandamál lítil sem engin, því
að geymana má skilja eftir úti í hvers
konar veðri sem er.
Framleiðandi er RESTEEL, Via Tar-
visio 15, Udine, Italíu. — Ur „Materie
Plastiche" (Ítalíu), maí, 1961. — E.T.D.
no. 4697.
Öryggisbúnaður
á dráttarvélar
Komið í veg fyrir veltihættuna með
útbúnaði, sem tekur hreyfilinn úr
sambandi, ef dráttarvélinni er beitt
í of mikinn halla.
SlysatíSni við vélræn landbúnaðar-
störf er mjög há, og mikill.hluti slys-
anna stafar af dráttarvélum, sem velta
eða steypast, þegar þeim er beitt í
halla, sem ekki getur talizt öruggur
slíkum tækjum. SvipaSri áhættu er
einnig að mæta við aðrar aðstæður,
svo sem við jarðýtustörf.
Til að draga úr þessari hættu hef-
ur nú verið framleitt viðvörunartæki
fyrir dráttarvélar. AS lögun til er það
lítill, ódýr málmkassi, er innifelur
jafnvægislóð, sem haldið er í kúlu-
samskeytum með spennu frá fjöður.
Jafnskjótt og hallahorn dráttarvélar-
innar, til hvaða hliðar sem er, fer yfir
öryggismörkin, vinnur þungatog lóðs-
ins bug á fjarðurspennunni og leysir
þungann úr IæSingi. AfleiSingin er
sú, að rafsamband myndast, sem tek-
ur hreyfilinn úr sambandi á auga-
bragði og gefur frá sér viðvörunar-
són, sem heldur áfram að hljóma, þar
til öruggu hallahorni er náð aftur.
HallahorniS, sem tækið varar við,
er auðvelt að stilla til hæfis sérhverri
dráttarvél, og er það gert með still-
ingu fjaðurspennunnar.
Nánari upplýsingar veitir: T. T. Bough-
ton & Sons Ltd., Amersham Common, Buck-
inghamshire, Bretlandi. — Ur „Production
Equipment Digest", júlí 1961. — E.T.D. no.
4762.
46
IÐNAÐARMAL