Iðnaðarmál - 01.03.1962, Side 23
Ný plastpípu-tengistykki
Mótuð tengistykki úr samsettum
resin-efnum (synthetic resin) hafa
þykka veggi í samanburði við píp-
urnar. Þegar pípurnar eru færðar
upp á tengistykkin, minnkar rennslis-
rýmið í kross-stykkinu, nema pípurn-
ar séu stækkaðar. Þetta er ófullnægj-
andi.
Nú hefur verið tekin upp endurbætt
mótunartækni, og með henni hefur
þykktin á veggjum tengistykkjanna
verið minnkuð niður í sömu þykkt og
pípuveggirnir hafa. Útvíkkun pípu-
endanna er þess vegna nú hin sama
og við venjulega tengingu tveggja
PVC-pípna, þar sem annarri pípunni
er smeygt upp á hina og síðan límt.
Hægt er að stækka pípuendana með
sjálfu tengistykkinu. Límingarlengd-
in er 0.8 D og fullnægir því fyrirmæl-
um ISO. Tengistykkin hafa verið
prófuð rækilega, og Jiau gera betur
en uppfylla kröfur DIN-staðlanna við
20 og 60°C hita. Hægt er að hafa ná-
kvæmt eftirlit með réttri límingu pípu
og tengistykkis, þar sem það sést á
augabragði, þegar pípan hefur runn-
ið fulla límingarlengd yfir tengistykk-
ið.
Framleiðandi er W. J. Stokvis, Konin-
klijke Fabriek Van Metaalwerken N. V.,
Postbus 55, Arnhem, Hollandi. — E.T.D.
no. 4465.
Ný rykgríma
I margs konar iðnaði verður starfs-
fólkið að vintia um lengri eða
skemmri tíma í andrúmslofti, sem
mettað er örsmáum rykögnum. Stund-
um er því séð fyrir grímum, en venju-
lega eru Jjær svo þungar og ójrjálar
og erfitt að halda þeim hreinum, að
margir kjósa fremur að vinna án
þeirra og eiga á hættu hinar skaðlegu
afleiðingar, sem slíkt getur haft í för
með sér.
Til að hrinda þessari hættulegu
venju hefur nú verið framleidd létt
rykgríma, sem auðvelt er að setja upp
og taka af sér og ekki Jrarfnast hreins-
unar, því að eftir átta klst. notkun er
skipt um síur.
Af myndinni má sjá, að nýja grím-
an hylur bæði munn og nef notand-
ans, en truflar ekki sjón hans. Síu-
hólfið hefur gagnsæa plastveggi, svo
að ekki þarf annað en líta á það til að
ganga úr skugga um ástand síunnar.
Hólfið er með yfirborði, sem hægt er
að aðlaga og fella í rétta stöðu og
halda jDannig með tveimur fjaður-
klemmum. Við innöndun dregur not-
andinn inn loftið gegnum rifur í yfir-
borðinu og inn í síuhólfið, og eftir að
hafa andað að sér hreinsuðu loftinu
úr hólfinu, andar hann Jrví frá sér
gegnum tvö hliðarloftgöt með lokum.
Gríman vegur aðeins 227 gr.
Frandeiðandi er Bartels & Rieger, Köln
/Rh., Þýzkalandi. — Úr „RKW Presse-
dienst" nr. 182, ágúst 1961. — E.T.D. no.
4720.
SamhæfSur útbúnaður
til vörumeðhöndlunar
Staðlaðar hleðslueiningar, veltirenn-
ingar og brýr gera vöruflutninga
auðveldari milli vörugeymsluhúsa,
skipa, vagna o. s. frv.
Einföld aðferð (,,Rolamat“), sem
byggist á þeirri meginreglu að ganga
frá vöruhleðslu í einingum, hefur
verið hagnýtt við vörumeðhöndlun á
alls konar farmi. Meðhöndlun stórra
hleðslueininga sparar vinnu og vagn-
hleðslutima og gerir flokkun og skrán-
ingu stykkjanna óþarfa á hinum ýmsu
stigum vöruflutninganna. Þótt að-
ferðin sé upphaflega ætluð fyrir
flutning hleðslunnar af vöruvagni og
upp í flugvél, hentar hún einnig við
skip, vörugeymslur o. fl.
Hleðslunni er komið fyrir í einingu
á flötum palli (pallet), sem hreyfist á
veltirenningum (roller conveyor), og
er flutt á milli eftir einfaldri veltibrú.
Veltirenningarnir eru 3 fet á lengd, 3
þuml. á breidd og IA/4 þuml. á hæð.
Veltikeflin eru með 6 Jtuml. bili og
geta borið 227 kg hvert. Hægt er að
fá aðrar lengdir, sem hæfa sérþörfum.
Þar sem veltirenningarnir vega aðeins
0.43 kg fetið, eru þeir mjög auðveld-
ir meðferðar.
Auðvelt er að útbúa vörubifreiðir
og vagna með „Rolamat“-kerfinu með
tiltölulega litlum breytingum á farar-
tækinu. Ekki þarf annað en raðir af
litlum holum í pallgólfið til að taka á
móti festi- og losunarpinnum velti-
renninganna. Vörupöllunum (pallett-
unum) má halda í skorðum á vagnin-
um með hliðarlokum. Farartæki, sem
búin eru „Rolamat“-kerfinu, getur
einn maður hlaðið eða losað á
skömmum tíma.
IÐNAÐARMÁL
47