Iðnaðarmál - 01.03.1962, Síða 24
I verksmiðjum og vörugeymslum,
sem búnar eru hleðslusvæði, má auð-
veldlega flytja vöruneiningarnar af
svæðinu upp á vagnana með því að
nota veltibrú (roller bridge ramp),
er borið getur allt að 1360 kg. Hin
pallaða vörueining er flutt, án þess að
hróflað sé við innihaldi hennar, frá
sendanda til viðtakanda.
Framleiðandi er Sir W. G. Arm-
strong Whitworth Aircraft Ltd., Huc-
clecote, Gloucester, Bretlandi.
Ur „Reed’s Marine Equipment News“,
okt. 1960. — E.T.D. nr. 4218.
Lyítitæki íyrir smábíla
Nýtt lyftitæki, samþjappað og vel
meðfærilegt, auðveldar mjög viðhald
lítilla bifreiða. Þegar tækið er ekki í
notkun, er það fellt saman, svo að
hæð þess nemur aðeins fimm þuml-
ungum. Því er stjórnað með vökva-
þjöppu, sem komið er fyrir nálægt
miðju og framkvæmir lóðrétta lyft-
ingu með láréttri krafttengingu. Há-
markslyfting er þrjú fet (91 J/j cm),
en hægt er að tryggja örugga vinnu í
hvaða hæð sem er, á þessu bili.
Orkan er fengin frá rafmagns-
hreyfli og kraftdælum, innbyggðum í
málmkassa við annan enda tækisins,
og það tekur aðeins 20 sek. að lyfta
vagninum í hámarkshæð.
i
Nánari upplýsingar veitir: Mann
Egerton & Co. Ltd., 5, Prince of
Wales Road, Norwich, Bretlandi.
Úr „Garage and Transport Equip-
ment“, ágúst 1961.
E.T.D. nr. 4750.
RySvörn
IMSÍ hafa borizt upplýsingar um
nýja ryðvarnarmálningu, sem er sögð
taka fram flestum öðrum ryðvarnar-
efnum að styrkleika, bindingu. hita-
þoli, efnaþoli (sýrur, salt o. s. frv.),
vatnsþoli, veðrun, endingu o. s. frv.
Þessi málmmálning er gerð úr
tveimur efnablöndum, sem þarf að
blanda saman fyrir notkun (burstun
eða sprautun). Önnur blandan er
kvoða, sem er samsett af málmdufti
og herzluplasti (epoxy o. fl.), en hin
er blanda af herzluefnum og upplausn-
arvökva.
Að sjálfsögðu þarf að hreinsa vel
málmhlutina, áður en þessi málning
er borin á, en gagnstætt því sem ger-
ist um aðra málningu, má bera hana
á vota málmhluti, jafnvel undir vatni.
Þessi málning, sem nefnist „Metalife
T.X.“, er dýr, kostar um kr. 100/kg
fob. England. Tvær yfirferðir eru
fullnægjandi, og þarf 1 kg á lþo nl2
yfirborð (2 yfirferðir). Vegna kostn-
aðar yrði slík málning aðeins notuð,
þar sem tæringar- eða ryðáhrif eru
mjög mikil og vanalegar ryðvarnar-
málningar duga ekki.
Framleiðandinn er: Metalife Liquid
Metals Ltd„ Harrogate, Yorkshire, Eng-
landi.
„Katodisk"
vörn á skipsskrokkum
Velheppnaðar tilraunir á katóðskri
vörn (cathodic protection) á skips-
skrokk hafa verið framkvæmdar á
eins árs fresti síðan 1955 á litlu haf-
skipi í eigu Mitsui Mining skipafé-
lagsins í Japan.
I hvert skipti var breytt um tegund
og magn á zinki eða zinkblöndu-an-
óðu til að finna mælikvarða við notk-
unina. Reglubundnar mælingar voru
framkvæmdar á spennunni í skips-
skrokknum og anóðu-straumi zinks-
ins.
Arangurinn varð sem hér segir:
1. Zink-alúm-málmblendi-anóða, er
innihélt 0,2—0,5 hundraðshluta af al-
úmi sýndi mjög góðan árangur í sam-
anburði við hreint zink, að því er
varðar vörn skipsskrokksins.
2. Skipsskrokkurinn var traustlega
varinn gegn tæringu, þegar spennu
hans í kyrrstæðum sjó var haldið
neðan við hina svonefndu varnar-
spennu, -— 770 m V. miðað við gegn-
vætta kvikasilfurs-elektróðu.
3. Magn zinkblöndu-anóðunnar,
sem notað var (efnishlutfall zink-al-
úmanóðu og skipsskrokks undir
vatnsborði yfir 1/200), reyndist
hæfilegt og fullnægjandi til að hindra
tæringu í skipsskrokknum.
Nánari upplýsingar eru fáanlegar
frá Mitsui Mining skipafélaginu,
Omuta, Japan.
Ur „Corrosion Engineering" (Japan)
no. 1, 1960. — E.T.D. no. 4033.
Þessi snerill gegnir engu sérstöku hlutverki
— við létum lxann bara þarna til þess að
jikta við, þegar sjefjinn er á nœstu grösum.