Iðnaðarmál - 01.04.1964, Side 9
Marselíus Bernharðsson skipasmíðam.
V iðskiptaaðstaða
Að ísafjarðarkaupstað liggur all-
stórt verzlunarsvæði. þar sem er Eyr-
arhreppur með Hnífsdal, Bolungarvík
og allt Isafjarðardjúp. Þann hluta
ársins, sem landleið er opin, er verzl-
un enn fremur sótt þangað frá nær-
liggjandi byggðarlögum fyrir vestan,
s. s. frá Súgandafirði, Onundarfirði
og Dýrafirði.
Samgöngur
Hinar reglulegu skipaferðir eru
strandsiglingar Skipaútgerðar rikis-
ins og koma skip hennar að meðaltali
á þriggja vikna fresti til Isafjarðar.
Ferð milli ísafjarðar og Reykjavíkur
tekur sjaldan minni tíma en 24—30
klst. og hefur farið upp í 42 klst. Skip
annarra skipafélaga koma óreglulega
til ísafjarðar eftir því sem útflutning-
ur á fiskafurðum fellur til.
Um nokkurt árabil hefur Flugfélag
íslands haldið uppi flugferðum til
Vestfjarða, til farþega- og vöruflutn-
inga. Á sumaráætlun eru til Isafjarð-
ar daglegar ferðir, en vetraráætlun
fjórar ferðir í viku.
Um samgöngur á landi við aðra
landshluta er aðeins um að ræða hina
svokölluðu Vestfjarðaleið, sem er þó
legu sinnar vegna lokuð af snjó 8—9
mán. á ári hverju. Svo var einnig síð-
asta vetur og vor, þrátt fyrir veður-
sælasta og snjóléttasta vetur, sem vit-
að er um.
Orkumál
Vel er séð fyrir orkuþörf, þar sem
er orkuverið að Fossum í Engidal
(Rafv. ísafjarðar og Eyrarhrepps),
Vestfjarðavirkjun með aðalstöð í
Mjólká í Arnarfirði og Reiðhjalla-
virkjun í Bolungarvík, ennfremur eru
dísilstöðvar á öllum Vestfjörðum og
eru allar þessar stöðvar samtengdar
í eina heild.
Skólamál
Núverandi iðnskóli, arftaki Kvöld-
skóla Iðnaðarmannafélagsins (stofn-
aður 1905), er starfræktur á hverj-
um vetri í húsakynnum gagnfræða-
skólans. Þrír tæknifræðingar starfa í
atvinnulífi Isafjarðar, og iðnaðar-
menn eru um 117 talsins, iðnnemar
22, og aðstoðarmenn 31.
Skipting þeirra eftir iðngreinum
er þannig:
jagl. nemar aðst.m.
Járniðnaðarmenn 23 6 2
Rafvirkjar 13 5 1
Húsasmiðir 19 2 6
Húsgagnasmiðir 2
Skipasmiðir 12 3
Málarar 8 2 1
Gullsmiður 1
Hárskerar 2
Hárgreiðslukonur 2
Klæðskerar 2 2
Ljósmyndarar 3 1
Múrarar 5 1 1
Netjarar 3 3 6
Prentarar 3 2 1
Pípulagningamenn 3 1
Smjörgerðarmenn 1 1
Skósmiður 1
Ursmiðir 3
Bakarar 4 1
Bifvéiavirkjar 6 5
Pjátrari 1
Netagerð Vestfjarða hj.
Niðursuðuverksmiðjan hj.
Ishús/élag Isfirðinga hj.
IÐNAÐARMÁL
43