Iðnaðarmál - 01.04.1964, Page 26

Iðnaðarmál - 01.04.1964, Page 26
Fjöldekka þrepliði (Flerdackad stegrela) er nú mikið notað, þegar byggja þarj upp sjáljvirk stjórnkerfi fyrir minni jram- leiðsluvélar og -einingar. 4.4 Rafmagnskerfi Rafmagnsútbúnaður sem aflgjafi, hvort heldur sem um er að ræða snúningshreyfingar eða beinar hreyf- ingar, er verulega flóknari og fyrir- ferðarmeiri en samsvarandi þrýsti- lofts- eða þrýstivökvaútbúnaður. En vegna þess, hversu auðvelt er að flytja rafmagnsorkuna, er hún oft notuð, þegar um Htla orkuþörf er að ræða. Rafseglar eru notaðir, þegar um fljótvirkar, stuttar hreyfingar er að ræða, en rafhreyfilsdrif aftur á móti, þegar um örlítið stærri krafta er að ræða og tiltölulega hæga hreyf- ingu. Auðveldleikinn við flutning og túlkun rafhrifa gerir rafmagnskerfið sérlega heppilegt til stjórnunar. Innan rafstýritækninnar eru aðal- lega notuð rafhrif í „bineru“ formi, þ. e. a. s. opin eða lokuð rafsnerti. En „analog“-hrif eru einkum notuð í s.k. „servo“ tækni, sem ekki verður rætt nánar hér. Rafmagnsstj órnhrif eru oftast framkölluð með hjálp vélrænna hreyfinga snertanna, sem tengd eru inn á straumrásina. Efni og útfærsla snertiflatanna, sem nota skal, verður þá að velja með tilliti til spennu, straumstyrks, straumgerðar og and- rúmslofts. Allar breytingar, sem eiga sér stað í gangi framleiðsluvéla, orsakast af ákveðinni hreyfingu, sem getur verið bein eða óbein,sem skilja ber þannig, að með óbeinni hreyfingu er átt við svokallað straumliðakerfi (relasyst- em). Þannig er unnt að stilla snerti- pörin, sem samtengd eru hinu hreyf- anlega ankeri rafmagnsliðans, i aðra hvora af tveimur mögulegum stöðum (opna eða lokaða stöðu) eftir því, hvort straumur leiðist til spólunnar eða ekki. Kerfi þessi ryðja sér meira og meira til rúms í nútíma iðnaði og skipa mikilvægan sess í þeirri við- leitni að skapa aukna hagræðingu, framleiðni og meira öryggi en áður þekktist. Notkunarmöguleikar kerfa þessa virðast ekki eiga sér nein raunhæf takmörk hvað viðvíkur gerð fram- leiðslu, því að þegar um flókin tengi- sambönd er að ræða má reikna út gerð og mynstur tenginganna eftir stærðfræðikerfi, sem löngu er þekkt, en h'tið hefur verið notað til þessa, og kennt er við stærðfræðinginn Booles. En fátt er svo gott að ekki megi finna eitthvað betra. Síðustu ára þróun hálfleiðara og annarra „statiskra“ eininga hafa skapað mikla þýðingu þeirra í iðn- aði framtíðarinnar. „Transistora“ má nú framleiða fyrir tugi ampera og eru þeir þegar farnir að leysa rafmagnsliðana af hólmi, þar sem kröfur um endingu, hraða og öryggi eru miklar. Einnig eru „fótódíóður" farnar að koma í stað rafsnerta (rofa), sem eykur margfalt endingu við erfið skilyrði, svo og mögulegan vinnsluhraða. Eins og nú er háttað málum, eru „statiskar“ tengieiningar dýrar, en þann aukakostnað má vinna upp í lækkuðum viðhaldskostnaði, aukinni endingu og síðast en ekki sízt minnk- uðu fjárhagslegu tapi vegna stöðvun- ar á rekstri, sem orsakast af hilun eininganna. Aukning iðnaðar Á síðasta Alþingi var eftirfarandi þingsályktunartillaga samþykkt: „Al- þingi ályktar að skora á ríkisstjórn- ina að skipa 5 manna nefnd til þess að athuga, hvað hægt sé að gera til þess að auka iðnað í þeim kauptún- um og kaupstöðum, þar sem ónóg er atvinna. Störf nefndarinnar skulu vera: 1. Athugun á því, hvar mest er þörf fyrir aukinn iðnað vegna ónógr- ar atvinnu. 2. Athugun á því, hvaða iðngrein- ar er hagkvæmast að starfrækja á hverjum stað. 3. Að gera tillögur um, á hvern hátt eigi að útvega fjármagn, svo að hægt sé að starfrækja iðn- fyrirtækin. 4. Að gefa upplýsingar um þá fag- legu þekkingu, sem nauðsynleg er, til þess að hægt sé að starf- rækja þau iðnfyrirtæki, sem nefndin leggur til, að stofnuð verði.“ í maí s.l. skipaði iðnaðarmálaráð- herra eftirfarandi menn í nefnd til að framkvæma þessa þingsályktunar- tillögu: Adolf Björnsson, rafveitustj., Sauð- árkróki, Bjarna Magnússon, frkvstj., Rvík, Björgvin Brynjólfsson, bóksala, Skagaströnd, Þorvarð Alfonsson, frkvstj., Rvík, Þóri Einarsson, viðskiptafr. IMSÍ. Nefndin hóf þegar störf og skilaði bráðabirgðaáliti í októberbyrjun. Orðsending til áskrifenda Þar sem áskriiendur EÐNAÐARMÁLA eru mjög dreifðir um land allt, hefur blaðið ekki önnur ráð en að innheimta áskriftargjaldið með póstkröfu. Þetta hefur yfirleitt gengið nokkuð vel. Meiri hluti áskrifenda er fljótur að bregða við og leysa út póstkröfuna. Þó er jafnan allmikið af póstkröfum endursent, þar sem þær hafa ekki verið greiddar, og er þar vafalaust fleira en eitt, sem veld- ur. Shmdum misfarast tilkynningar, og í öðrum tilfellum er búið að endur- senda kröfuna, þegar viðtakandi kemur á pósthúsið til að greiða hana. Það eru vinsamleg tilmæli, að þeir, sem ekki hafa greitt póstkröfuna, en vilja þó halda áfram að kaupa ritið, sendi áslrriftargjaldið, kr. 150,00, í pósthólf 160 í Reykjavík, eða greiði það á skrifstofu IMSÍ í Iðnskólanum. Gjaldinu hefur verið stillt í hóf, enda er ritið ekki gefið út í ágóðaskyni. 60 IÐNAÐARMÁL

x

Iðnaðarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.