Iðnaðarmál - 01.04.1964, Blaðsíða 27
ÓLAFUR JENgSON fulltrúi BAÍ:
Byggingaþjónustan 5 ára
Félagar í Arkitektafélagi íslands
höfðu í allmörg ár rætt nauðsyn þess
að koma á fót upplýsinga- og bygg-
ingarefnamiðstöð, svipaðri þeim sem
starfræktar eru á hinum Norðurlönd-
unum og víðar erlendis.
í flestum tilfellum hafði verið
stofnað til þessara miðstöðva af arki-
tektafélögum hlutaðeigandi landa eða
með aðild þeirra. í dag eru þessar
stofnanir ýmist styrktar eða reknar
af hinu opinbera, en í einstaka til-
fellum af nokkrum félagasamtökum
ásamt hinu opinbera, svo sem Bygge-
centrum í Kaupmannahöfn. Að lokn-
um nokkrum undirbúningi og athug-
unum var samþykkt á félagsfundi
haustið 1958 að taka á leigu húsnæði
að Laugavegi 18A fyrir slíka starf-
semi, en í undirbúnings- og fram-
kvæmdarnefnd höfðu verið kosnir
arkitektarnir Sigurður Guðmunds-
son, Gunnlaugur Halldórsson, Gísli
Halldórsson og Gunnlaugur Pálsson.
Þeim til aðstoðar var Guðmundur
Kr. Kristinsson arkitekt, sem síðar
var ráðinn framkvæmdastjóri.
Byggingaþj ónusta Arkitektafélags
íslands tók svo til starfa 18. apríl
1959 að Laugavegi 18A, annarri hæð.
Við opnunina flutti þáverandi
borgarstjóri, Gunnar Thoroddsen,
ávarp og lét meðal annars í ljós ósk
um, að byggingarefnasýningin og
starfsemi Byggingaþjónustunnar
mætti verða byggingamálum lands-
manna til framdráttar og öllum til
heilla, sem að henni stæðu og hennar
nytu.
Tilgangur Arkitektafélags íslands
með stofnun og starfrækslu Bygginga-
þjónustunnar er: Að safna saman á
einn stað upplýsingum og fjölbreyttu
sýnishornasafni byggingarefna, bygg-
ingarhluta og tækja. Veita tæknilegar
upplýsingar og svara fyrirspurnum
um vinnuaðferðir, efnisnotkun og
notagildi byggingarefna. Standa fyrir
fræðslustarfsemi á sem víðustum
grundvelli með fyrirlestrum, kvik-
myndasýningum og sérsýningum.
Hafa samvinnu við þá, fyrirtæki,
stofnanir og samtök, sem vinna að
framþróun í byggingamálum þjóð-
arinnar. Halda sýningar á byggingar-
list og veita fræðslu í þeim efnum.
I tilefni 5 ára afmælis Bygginga-
þjónustunnar bauð Arkitektafélag
Islands allmörgum gestum til fagn-
aðar í ný húsakynni að Laugavegi
26, III. hæð. Gunnlaugur Halldórs-
son, formaður stjórnar Bygginga-
þjónustunnar, flutti ávarp við það
tækifæri og rakti sögu hennar þessi
fimm starfsár.
Byggingaþjónustan hefur í sam-
vinnu við samtök iðnaðarmanna
haldið fyrirlestra og kvikmyndasýn-
ingar fyrir almenning hér í Reykja-
vík og á eftirtöldum stöðum úti á
landi: Akureyri, Akranesi, Hafnar-
firði, ísafirði, Keflavík, Selfossi og
Vestmannaeyjum. Hafa fundir þessir
verið vel sóttir og þótt lærdómsríkir.
Allir fyrirlestrarnir hafa verið teknir
upp á segulbönd, og er ætlunin að
lána fámennum iðnaðarmannafélög-
um úti á landi þessar spólur. Fyrir-
lestrana hafa flutt verkfræðingarnir
Gústaf E. Pálsson borgarverkfræð-
ingur, Haraldur Ásgeirsson og Jó-
hannes Zoega hitaveitustjóri. Hafa
þeir sýnt mikinn áhuga og fórnfýsi,
þrátt fyrir að þeir eru störfum hlaðn-
ir, og eiga þeir miklar þakkir skilið.
Bekkjadeildir úr nokkrum skólum
hafa heimsótt Byggingaþjónustuna og
er það til dæmis fastur liður hjá Iðn-
skólanum í Reykjavík.
Tekjur Byggingaþjónustunnar eru
eingöngu leiga fyrir sýningarbása.
I upphafi var básaleigan miðuð við
80% nýtingu sýningarsvæðisins, og
áttu tekjurnar að geta staðið undir
rekstrarkostnaði. Umframtekjum, ef
Afgreiðsla Byggingaþjónustunncr.
IÐNAÐARMÁL
61