Iðnaðarmál - 01.04.1964, Qupperneq 32
Fjármálaráðherra, Gunnar Thoroddsen ræðir umbœtur í opinberum rekstri.
stjórnar SFI um, að Stjórnunarfélag-
ið efndi til róðstefnu, sem einskorðuð
yrði við stjórnun í opinberum rekstri
(Public Administration) með þátt-
töku forstöðumanna opinberra fyrir-
tækja ríkis og Reykjavíkurborgar.
Kaflar úr erindinu eru birtir i Fé-
lagsbréfi SFÍ nr. 10.
Fjármunaútreikningar
Laugardaginn 7. desember s.l. boð-
aði Stjórnunarfélagið til almenns fé-
lagsfundar, þar sem Glúmur Björns-
son, skrifstof ustj óri Raforkumála-
skrifstofunnar, flutti erindi um fjár-
munaútreikninga.
Þess mætti geta, að SFÍ hefur gef-
ið þeim málum sérstakan gaum og
efndi m. a. á starfsárinu 1962—1963
til námsmóts um fjármunamyndunar-
mál. Sjá Félagsbréf nr. 9.
Erindi Glúms er birt í heild í Fé-
lagsbréfi nr. 10.
1 nnkaupastarfsemi jyrirtœkja
Laugardaginn 18. apríl s.l. var boð-
að til almenns félagsfundar í fundar-
sal Hótel Sögu. Á fundinum flutti
Pétur Pétursson, forstjóri Innkaupa-
stofnunar ríkisins, erindi, er nefnd-
ist: Innkaupastarfsemi fyrirtækja.
Erindið birtist í 11. hefti Félags-
bréfs SFÍ.
Skipulag og stjórnun verklegra fram-
kvœmda
í tilefni greinarinnar „Skipulags-
vandamál við byggingar — Lausn
Loftleiða", er birtist í 4.—5. hefti
IÐNAÐARMÁLA 1963, varð Jó-
hannes Einarsson verkfræðingur við
ósk SFÍ um að flytja erindi á almenn-
um félagsfundi um skipulag og stjórn-
un verklegra framkvæmda. Fundur-
inn var haldinn að Hótel Söguþriðju-
daginn 12. maí s.l.
Erindið birtist í 11. hefti Félags-
bréfs SFÍ.
Á framangreindum fundum voru
milli 50 og 100 manns hverju sinni
og ávallt fjörlegar umræður um fund-
arefni.
Ráðstefna um stjórnun í opinberum
rekstri
Fyrirtækjum og stofnunum í opin-
berum rekstri og einkarekstri er
fjölda margt sammerkt, en að ýmsu
leyti eiga forstöðumenn opinberra
fyrirtækja sérstök vandamál við að
glíma og sérstöðu um margt.
Um skeið hefur mikill áhugi ríkt
meðal ýmissa embættismanna ríkis
og Reykjavíkurborgar á því, að
Stjórnunarfélagið efndi til ráðstefnu,
sem einskorðuð yrði við stjórnun í
opinberum rekstri með þátttöku for-
stöðumanna opinberra fyrirtækja og
stofnana.
í framhaldi almenns félagsfundar
23. nóv. ’63, þar sem Gunnar Thor-
oddsen fj ármálaráðherra varð við
ósk félagsins um að flytja erindi á
þess vegum, er nefndist „Umbætur í
opinberum rekstri“, ákvað stjórn fé-
lagsins að halda ráðstefnu um við-
fagnsefnið Stjórnun í opinberum
rekstri (Public Administration), þar
sem forstöðumenn í opinberumrekstri
kæmu saman með það fyrir augum
að ræða saman ýmis sameiginleg
vandamál, skiptast á skoðunum og
reynslu, auk þess sem flutt yrðu nokk-
ur erindi varðandi efnið.
Þátttaka var að þessu sinni bundin
við opinbera embættismenn ríkis og
borgar með aðsetri í Reykjavík.
Ráðstefnan var haldin í salarkynn-
um Hótel Sögu dagana 10. og 11.
febrúar 1964.
Jakob Gíslason raforkumálastjóri,
formaður SFÍ, setti ráðstefnuna með
ræðu og bauð gesti velkomna, sem
voru auk þátttakenda dr. Bjarni Bene-
diktsson forsætisráðherra, dr. Gylfi
Þ. Gíslason viðskiptamólaráðherra,
Geir Hallgrímsson borgarstjóri og
mr. Steven Deijs, Auditor of the
Treasury Head of the Department
Amsterdam.
Á ráðstefnunni skiptust þátttakend-
ur eftir eigin vali í sex málaflokka
umræðuhópa, sem voru: Yfirstjórn,
fjármál, starfsmannamál, kaup- og
kjaramál, innkaupastarfsemi, sam-
skipti og samvinna.
Auk þess sem umræðuhópar störf-
uðu báða dagana, átti sér stað er-
indaflutningur, fyrirspurnir og um-
ræður á almennum fundum ráðstefn-
unnar.
Erindi þau, sem flutt voru á ráð-
stefnunni, og fyrirlesarar þeirra voru:
Hlutverk embœttismannsins
Jónas H. Haralz, forstjóri Efna-
hagsstofnunarinnar
Stjórnunarvandamál í opinberum
rekstri, viðhorj hjá ríki
Einar Bjarnason ríkisendurskoð-
andi
Stjórnunarvandamál í opinberum
rekstri, viðhorf hjá borg
Hjálmar Blöndal, hagsýslustjóri
Reykj avíkurborgar
66
IÐNAÐARMÁL