Iðnaðarmál - 01.04.1964, Qupperneq 42
NYTSAMAR
NÝJUNGAR
Útbúnaður, sem hindrar
skrið og tryggir örugga
hemlun bifreiða á öllum
vegum
Nýtt tæki, sem vegur aðeins um
900 gr og kostar svipað og gott bíla-
viðtæki (eða jafnvel minna, með vax-
andi framleiðslu), kemur í veg fyrir,
að bifreiðir skriðni, þegar hemlað er,
með því að stilla hemlaþrýstinginn
á sjálfvirkan hátt, eftir yfirborðs-
ástandi vegarins, sem ekið er á, þeg-
ar ökumaðurinn stígur á fótspjaldið.
En að beita hemla-þrýstingi og gefa
hann eftir til skiptis er árangursrík-
asta aðferðin til að stöðva vagn.
Mynd 1
„Perma“-útbúnaður til varnar gegn
skriðnun.
1. Gírkassi.
2. Ifelliitenging.
3. Oxulb ús.
4. Til hraðamælis.
5. Sveigjanlegur öxull.
6. Loftþrýsti- og iofttæniihosa.
7. Vökvaþrýstirofi og vökvahólf.
8. Segulloki.
9. Snúður.
10. Loftsía.
11. Lofttæmihosa.
12. Til soggreinanna.
13. Bulla.
14. Vökvaþrýstibulla.
15. Loftsía.
16. Til vökvahemlaleiðslu.
17. Vökvaþrýstileiðslur.
18. Strokkur.
A. Skriðvarnarbúnaður.
B. Perma-vac-samstæða.
Tækið er fyrst og fremst útbúnað-
ur,sem hindrar festingu eða „lokun“
hjólanna, en það er einmitt þessi lok-
un, sem veldur því, að vagninn
skriðnar. A venjulegum vagni, sem
fer með um 80 km hraða á klst.,
lokast hjólin við um 700 p. s. i.
hemlaþrýsting, ef vagninn er á þurr-
um steinsteyptum vegi, og við 203 p.
s. i. hemlaþrýsting, ef vagninn er á
hálum klaka (p. s. i. = pund á fer-
þuml.). Við ofangreindar aðstæður
mundi tækið stilla hemlaþrýstinginn
á 675 og 195 p. s. i.
Á mynd 1 er sýnt, hvernig útbún-
aðurinn starfar. „Heili“ hans (til
vinstri á mynd 1) innifelur gangráð
(governor), sem knúinn er með
sveigj anlegum öxli, er liggur frá gír-
kassanum. Gangráðurinn’ stjórnar
stöðu segulloka. I einni stöðu opnar
þessi loki fyrir loftþrýstingi með
því að opna bakhlið bullu í „Perma-
vac“-samstæðunni til hægri, og í
annarri stöðu minnkar hann þrýst-
inginn með því að opna lögn, sem
tengd er við soggreinarnar. Vaf seg-
ullokans fær orku með straum frá
vökvaþrýstirofa, sem komið er fyrir
á „Perma-vac“-einingunni.
Þegar ökumaðurinn beitir nægum
hemlaþrýstingi til að hægja á hjólun-
um næstum því að lokunarmarki,
hægir gangráðurinn, og segullokinn
breytir loftþrýstingi á bakhlið loft-
þrýstibullunnar, sem lækkar vökva-
þrýstinginn í hemlaleiðslunni. Þegar
hjólhraðinn eykst og gangráðurinn
með sama hættið fer lokinn aftur í
sína fyrri stöðu og veldur — með
svipaðri atburðarás — auknum
hemlaþrýstingi. Þannig koma fram
„dæluáhrif“ á hemlana.
Mynd 2
Útbúnaðurinn er innifalinn í húsi
úr acetal resin (delrin), eins og sýnt
er á mynd 2. Margir af innri hlutum
hans eru gerðir úr nælon (zytel).
Með því að nota þessi gerviefni, sem
þola bæði olíu og hita, er dregið
mjög úr þunganum og framleiðslan
gerð einfaldari, ódýrari og endingar-
betri. Hinn lági núningsstuðull gervi-
efnanna gerir unnt að sleppa velti-
eða kúlulegum, sem annars væru
nauðsynlegar.
Utbúnaðurinn er fundinn upp af Frank
Perrino, Pres., Perma Research and Devel-
opment Co., North Attleboro, Mass., U.S.A.
— Ur „Du Pont Magazine" nóv.—des. 1963.
— I. T. D. nr. 1509.
Aðferð til að gera kúlulögun
á öxul
Við þessa aðferð til að gera kúlu-
lögun á sívalan öxul er heitt borvél
og rennibekk. Skerinn (D), sem snýst
á lóðréttum spinnli borvélarinnar, er
færður smám saman niður að stykk-
inu, sem unnið er (E) og snýst hægt
í rennibekknum. Eins og sjá má af
teikningunni, er hægt að vélvinna sér-
hvern fyrirfram ákveðinn kúlu-radíus
(C) með því að stilla skurðbrúnina
við stærðina (A), og myndar C þá
langhliðina í þríhyrningnuin ABC.
Aðferðin er fundin upp hjá Techni-
cal Service Department, South Afric-
an Council for Scientific and Indus-
trial Research, P. 0. Box 395, Pre-
toria, Suður-Afríku.
Ur „TI-CSIR Technical Information for
Industry“ (S.-Afríku) nr. 4, 1963. — I.T.D.
nr. 1466.