Iðnaðarmál - 01.04.1970, Page 7

Iðnaðarmál - 01.04.1970, Page 7
ing, svo að slit og viðhald verður í lágmarki og alvarleg bilun næstum útilokuð. Snúningur mótanna um öxlana tvo er tiltölulega hægur — oft í 'hlut- fallinu 4:1 milli litla og stóra öxuls- ins innbyrðis, en í mörgum tilfeMum er hægt að stilla þetta hlutfall eftir vild. Síðustu árin hefur hverfisteypa termoplasts aukizt um 300% árlega í Bandaríkjunum, og jafnvel þótt ekki sé hægt að búast við, að slíkur vöxtur haldi lengi áfram, verður samt að gera ráð fyrir, að hverfi- steypan — auk eigin markaðs — muni leggja undir sig nokkurn hluta af markaði sprautusteypu og móta- blásturs. Síðustu árin hafa menn einnig náð í Bandaríkjunum mjög merkilegum árangri með hverfi- steypu úr höggþéttu polystyren af nýrri gerð, og er þess að vænta, að þetta geti skapað nýja möguleika fyrir plast, einkum í húsgagnaiðnað- inum. Efni þetta er framleitt með sérstakri fjölbindiaðferð (polymer- isasjon), þar sem fullgert hráefnið myndar smáperlur, sérlega hentugar til þessarar notkunar, þar sem þörf er fyr.’r efni af 35—50 möskva fín- leika. Til margvíslegra þarfa hefur höggþétt polystyren ýmsa kosti um- fram annað plast, þar sem hægt er að rnála, líma og framkvæma ýmiss konar yfirborðsmeðhöndlun á hlut- unum án nokkurs sérstaks undirbún- ings. En val hráefnisins er ekki lengur bundið við þessar gerðir, því að hægt er að nota bókstaflega allt termoplast við hverfisteypu. í reynd er þó úrvalið takmarkað við þær gerðir, sem til hafa verið á markaðn- 'um, í dufti og af þeim gæðaflokki, sem ætlaður er til þessara nota, en stöðug þróun á sér nú stað á þessu sviði. Það hefur verið útbreidd skoðun, að kostnaðarlega séð geti hverfi- steypan aðeins keppt við aðrar að- ferðir í smáum framleiðsluröðum, en ágætir erlendir fagmenn halda því fram, að kostnaðarverðið geti verið hið sama og við aðrar aðferð- ir, einkum að því er varðar stærri hluti. Og hverfisteypan hefur þann mikla kost, að unnt er að halda fjár- festingunni í viðráðanlegu horfi. Tímaritið Modern Plastics hefur gert samanburð milli fjárfestingar og kostnaðarverðs á 75 lítra brúsa og Iítur hann þannig út: Ilverf. Spraut. Blástur Vélaútvegun....................... Mótakostnaður ................... Afköst/tími ...................... Koslnaðarverð ......... 10.000 stk. 100.000 — 1.000.000 — $ 28.800 75.000 230.000 10.500 30.000 5.600 60 60 80 2.20 3.95 1.63 1.25 1.25 1.07 1.16 0.98 Till vinslri mót fyrir benzíngeymi, tilbúið að fara inn í oín'nn. Fyrir miðju er sama mót að koma úr kæliklefa. Til hægri er benzíngeymirinn fullsteyptur. IÐNAÐARMÁL 69

x

Iðnaðarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.