Iðnaðarmál - 01.04.1970, Side 10

Iðnaðarmál - 01.04.1970, Side 10
Frá Rannsóknastoffnun byggingariðnarins Viðtal við dr. Guömund Guðmundsson verkfræðing Guðmundur Ölafs Guðmundsson verkfræðing- ur lauk prófi í efnaverkffæði frá TH í Stutt- gart, Þýzkalandi, 1962 og Dr. rer. nat. prófi frá sama skóla 1964. Hann réðst til Byggingar- deildar A .vinnudeildar Háskólans árið 1965. Eftir að Rannsóknastofnun byggingariðnaðar- ins var stofnsett, hólt hcnn áfram störfum við hana og er nú deildarstjóri efnafræðideildar hennar. Inngangur Ritstjórn Iðnaðarmála hefur hug á að kynna lesendum blaðsins ýmsa jjætti þeirrar rannsóknastarfsemi, sem lögð er stund á hjá Rannsókna- stofnunum atvinnuveganna. Kynning þessi mun byggjast á viðtölum við sérfræðinga stofnananna, og er ætl- unin, að eitt viðtal birtist í hverju blaði. Hvenœr hófst þá störf hérlendis, Guðmundur? Ég réðst til Byggingardeildar At- vinnudeildar Háskólans í ársbyrjun 1965, og var fyrsta verkefni mitt að undirbúa rannsóknir og eftirlit með niðurlagningu olíumalar, en verk þetta var unnið fyrir Vegagerð ríkis- ins. / hverju fólust þessar athuganir? I fyrsta lagi að kynnast tilraunum og reynslu annarra þjóða með olíu- möl, og þó sérstaklega Svía. í öðru lagi að undirbúa prófunaraðferðir, er nota mætti við eftirlit á gæðum olíumalar. Við þurftum að fara okk- ar eigin leiðir vegna þess, að hér eru steinefnin frábrugðin því, sem gerist í Skandinavíu, þar sem olíumölin er þekktust. Því var nauðsynlegt að gera nokkuð víðtækar athuganir. Það kom í ljós, að íslenzk steinefni hafa lakari viðloðunareiginleika gagnvart olíu en þau fylliefni, sem erlendis eru notuð í olíumöl, og beindust því rannsóknir okkar að því að finna leiðir til úrbóta. Sennilega hefur viðloðunarvandamálið og frumstæður tilbúningur olíumalar- innar verið ástæðan fyrir því, að fyrstu íslenzku tilraunirnar með olíu- möl mistókust. í framhaldi af þess- um athugunum prófuðum við um 30 viðloðunarefni, þ. e. a. s. efni til þess að auka viðloðun olíu við steinefni. Leiddi niðurstaða þeirra rannsókna til þess, að ákveðin viðloðunarefni hafa verið valin og notuð. Hafa þessar niðurstöður þínar ekki verið birtar opinberlega, Guð- mundur? Nei, þessar rannsóknir voru kost- aðar af Vegagerð ríkisins, eins og áður kom fram, og því hennar eign. Þannig er því einmitt oft háttað um rannsóknir okkar. Niðurstöður þeirra eru eign ákveðinna aðila og því síður birtar en ella. En rétt er að geta þess, að það fyrsta, sem birt var um olíu- möl hér á landi, var grein eftir Harald Ásgeirsson, núverandi forstöðumann Rannsóknastofnunarbyggingariðnað- arins, í Verkfræðingatímaritinu 1958. Ilafa ehki orðið skipulagsbreyting- ar á sviði rannsóknastarfsemi frá því, að þú hófst störf lijá Atvinnudeild Háskólans? Jú. Vorið 1965 tóku gildi lög um Rannsóknastofnanir atvinnuveganna, og var þá Rannsóknastofnun bygg- ingariðnaðarins stofnsett. Við það jókst öll rannsóknastarfsemi í þágu byggingariðnaðarins að mun, en hún hafði ekki verið mikil að vöxt- um fram til þess tíma. Þú ert deildarstjóri fyrir efna- frœðideild stofnunarinnar. Hverjir eru helztu verkefnaflokkarnir, er heyra undir þína deild? Það er erfitt að gefa þar nákvæma skilgreiningu, því að oft vinna marg- ir sérfræðingar stofnunarinnar sam- an að lausn verkefna, en helztu flokk- arnir eru efnafræðilegar rannsóknir á sementi, steypuefnum, jarðefnum o. fl. byggingarefnum, t. d. plasti. Hefur stofnunin unnið að rann- sóknum á íslenzka sementinu? Stofnunin hefur frá upphafi fylgzt með íslenzka sementinu, og síðan ég lauk rannsóknum á vali viðloðunar- efna í olíumöl sumarið 1966, hef ég einnig lagt hönd á plóginn. Unnið 72 IÐNAÐARMÁL

x

Iðnaðarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.