Iðnaðarmál - 01.04.1970, Side 11
hefur veriö að því, að geta gert flest-
ar staðlaðar prófanir á sementi.
Einnig hefur stofnunin unnið að
eftirliti á íslenzka sementinu fyrir
steypuframleiðendur í Reykjavík. Þá
hefur stofnunin unnið að gerð ís-
lenzks staðals um sement. í samráði
við Sementsverksmiðju ríkisins hef-
ur verið unnið að því að finna leiðir
til þess að bæta þá eiginleika íslenzka
sementsins, sem ábótavant er.
Er nokkuð fleira í sambandi við
prófanir á sementi, sem þú vildir
minnast á?
Ef til vill mætti þá helzt nefna, að
athugaðar hafa verið aðferðir til
hraðprófana á sementi, þannig að
fá megi hugmynd um 28 daga styrk-
leika, t. d. á 2 dögum, en niðurstöð-
ur liggja enn ekki fyrir.
Getur þú frœtt okkur nokkuð um
prójanir á jylliefnum í steypu?
Gerðar hafa verið við stofnunina
umfangsmiklar rannsóknir á steypu-
efnum í sambandi við stærri fram-
kvæmdir hérlendis á síðustu árum,
aðallega vega-, virkjana- og hafna-
framkvæmdir.
í ársbyrjun 1967 skipaði iðnaðar-
ráðherra nefnd, er hlaut heitið Stein-
steypunefnd. Fékk ég það starf að
skipuleggja rannsóknir fyrir nefnd-
ina. Fyrstu verkefnin fyrir Stein-
steypunefnd voru rannsóknir á svo-
nefndri alkalivirkni íslenzkra berg-
tegunda, en í allmörgu íslenzku
steypuefni hefur fundizt slík virkni,
sérstaklega þegar notað hefur verið
hið alkaliháa íslenzka sement. í sum-
um tilfellum hefur þessi alkalivirkni
reynzt það mikil, að erlendis myndi
hún teljast skaðleg. En þar sem veðr-
áttan hér er kaldari en í flestum
þeim löndum, þar sem alkalivirknin
hefur komið fram, gefur það ákveðna
von um, að þessar efnaverkanir taki
lengri tíma hér. Þessum athugunum
er ekki lokið.
Hefur verið birt skýrsla um þessar
rannsóknir?
Nei, en 1969 var Steinsteypu-
nefnd skilað skýrslu um þær rann-
sóknir, er þá var lokið.
Hvert verður framliald alkali-
virknirannsóknanna?
Hafnar eru athuganir á því, á
hvern hátt koma megi í veg fyrir
skemmdir af völdum alkalivirkni, og
hefur áhugi okkar einkum beinzt að
fínmöluðum, kísilauðugum steinefn-
um, t. d. Hekluvikri, kísilgúr og líp-
aríttegundum, svonefndum pozzolan-
efnum, en þau eru þekkt varnarefni
gegn þessum efnabreytingum. Þessi
efni geta einnig haft áhrif í þá átt að
auka styrkleika og spara sement.
Þess má geta, að pozzolan-rann-
sóknir hófust á vegum stofnunarinnar
1957, en lágu síðan niðri þar til á
þessu ári. Rannsóknir þessar beinast
nú einkum að hinum miklu virkjunar-
framkvæmdum, sem nú eru á döf-
inni og krefjast sívaxandi hluta
starfstíma okkar.
Hvað getur þú sagt okkur um at-
huganir á byggingarskemmdum?
Þessi þáttur starfs okkar er hvim-
leiður, því að oft er mjög erfitt að
finna ástæðurnar fyrir skemmdunum
með þeim tækjakosti, sem við höfum
yfir að ráða. En þessi þáttur starfs-
ins er nauðsynlegur, og við reynum
að sinna honum eins og aðstæður
leyfa.
Hvað getur þú sagt um ný rann-
sóknarverke fni?
Það væri helzt að minnast á, að
undanfarið hef ég kannað nokkuð
áhrif íslenzks veðurfars á byggingar-
efni almennt og tel æskilegt að vinna
skipulega að athugun á því, hvernig
íslenzk veðrátta er frábrugðin veðr-
áttu annarra landa. Ymsar staðhæf-
ingar hafa verið settar fram, svo sein
um vind, regn og frost/þíðu, en eng-
in skipuleg athugun hefur verið gerð.
Slík athugun hlýtur að vera nauðsyn-
leg, svo að unnt sé að aðlaga erlend
og innlend byggingarefni að þekkt-
um aðstæðum.
Vildir þú segja eitthvað að lokum,
Guðmundur?
Það væri þá helzt, að of mikið er
hér ógert, og lítill tími er til að sinna
skipulegum rannsóknum. En hafa
verður í huga, að stofnunin er aðeins
5 ára, og mikið hefur áunnizt á þeim
stutta tíma. Framkvæmdaaðilar í
byggingariðnaðinum gera sér sífellt
betur grein fyrir þörfinni á rann-
sóknum, og þeir hafa gert okkur
kleift á þessum tíma að taka fyrir
nauðsynleg og aðkallandi verkefni,
sem annars hefðu orðið útundan,
þar sem stofnunin býr fjárhagslega
við mjög þröngan kost, miðað við
þau mörgu og fjölþættu verkefni,
sem hún á að leysa.
IÐNAÐARMÁL
73