Iðnaðarmál - 01.04.1970, Side 16
einmitt sú kaupstefna, sem hefst hér
í dag. Það eru ekki nema tvö ár
síðan farið var að halda reglulegar
fatakaupstefnur, en þar áður hafði
ein kaupstefna verið haldin í maí ’65.
Þátttaka í þessari haustkaupstefnu
sýnir, að framleiðendur telja þetta
góðan vettvang til þess að kynna vöru
sína, því að þátttaka hefur aldrei
verið meiri en núna, en 24 fyrirtæki
sýna og bjóða hér framleiðslu sína.
I þessu felst viðurkenning á, að slík-
ar kaupstefnur hafi mikið gildi fyrir
framleiðendur og jafnframt fyrir
kaupendur. Hér er stefnt að því, að
hvert vor og haust komi framleið-
endur hingað með það nýjasta í
framleiðslu sinni og stefni hingað
jafnframt innkaupamönnum þeirra
verzlana, sem sjá um dreifingu þess-
arar vöru til almennings. Þetta auð-
veldar innkaupamönnum val á varn-
ingi, en er jafnframt og ekki sízt mik-
ið og gott tækifæri fyrir framleið-
endur að gera könnun á því, hvernig
undirtektir verða á nýrri framleiðslu.
Jafnframt skapast þarna heilbrigð
keppni milli fyrirtækja, þar sem þau
sýna framleiðslu sína hlið við hlið.
Það má á vissan hátt líkja þessu við
keppni í íþróttum, það skapast ekki
sá góði keppnisandi, ef keppendur
sjá ekki hvor til annars í keppninni.
Nú stöndum við á tímamótum. ís-
land hefur á þessu ári gerzt aðili að
Fríverzlunarbandalagi Evrópu, og
Saíari klæðnaður. Framleiðandi: Belgjagerðin
hf. Pilsið, sem er úr rúskinni, er hannað af
Fanneyju Jónmundsdóttur.
Náttföt frá verksmiðjunni Max hf.
Jakki með hettu: Framleiðandi: Solido. Hönn-
un: Eva Vilhelmsdóttir.
78
IÐNAÐARMÁL