Iðnaðarmál - 01.04.1970, Blaðsíða 24
anir, þegar þér vilduð' heldur leika
golf. Lærið að hjálpa húsbónda yðar
að berjast fyrir áætlun, sem hon-um
finnst mikils virði. Með dýpri, sál-
fræðilegri sýn: Hættið að reyna að
vera það, sem þér eruð ekki. Lærið
að láta yður líða vel í aðstöðu, þar
sem þér eruð ekki sérfræðingur.
Lærið við þessar aðstæður, að hafa
samskipti og starfa sem virkur og
jákvæður félagi í hópnum, jafnvel
þótt þér séuð ekki forstöðumaður
fundarins. Lærið að nota tímann vel
með því að hafa meðferðis í skjala-
töskunni yðar ýmislegt, sem yður
gæti komið að gagni að lesa. Notið
vel fimm minútna hléin, þegar þér
bíðið eftir fólki eða á milli funda.
Verið aldrei án fáaniegra gagna, sem
þér gætuð hagnazt á að lesa. Takið
faglega afstöðu gagnvart starfsemi
yðar og lítið á samhengi skilmála í
löngum fjárfestingum. Svertið aldrei
nokkurn mann, aðeins til þess, að
yður líði sjálfum betur. Svo gæti far-
ið, að þolandinn yrði síðar húsbóndi
yðar. Komið fram við aðra af virð-
ingu og alúð. Síðar kynnuð þér að
hafa þörf fyrir trúnað þeirra og lið-
veizlu.
Að koma til móts við þarfir annarra
Lítið á sjálfan yður sem forustu-
mann og lærið að koma til móts við
þarfir annarra í því skyni að ná
markmiðum yðar. Lærið að fóma
yðar eigin vellíðan og líkamlegum
þægindum til velfarnaðar einstakl-
ingi, sem er undir yður gefinn.
Dæmi um slíka fórn væri, ef þér
legðuð lykkju á leið yðar til að
heimsækja sjúkling á spítala, þegar
yður langar meira til að leika kúlu-
spil. Aukið mælskuhæifileika yðar
með því að leggja oftar orð í belg og
lærið að njóta þess að skiptast á
skoðunum við aðra með samræðum.
Lærið að sannfæra aðra með yðar
eigin orðum með því að leggja fram
röksemdir fyrir ákveðnum fram-
kvæmdum, sem þér eruð meðmælt-
ur.
Spurning: Getur maður, sem ekki
hefur tækniþekkingu, verið góður
stjórnandi verkfræðinga og vísinda-
manna?
Svar: Það er vel mögulegt, að
kandídat í málvísindum, rökfræði
eða stærðfræði geti reynzt mjög hæf-
ur stjórnandi verkfræðinga og vís-
indamanna, að því tilskildu, að hann
sé gáfaður og geti lært að nota þau
hugtök, sem eru verkfæri í höndum
vísindamanna og verkfræðinga. Ef
hann hefur ekki staðfastan áliuga á
tæknifræði, er ólíklegt, að hann geti
munað tæknileg orð og málvenjur
eða skilið samræður tæknimanna.
En ég veit dæmi þess, að lögfræðing-
ur hafi orðið vel að sér í tæknilegum
málefnum og unnið gott starf sem
stjórnandi tæknimanna.
Spurning: Hvers vegna er nauð-
synlegt að gera stjómanda úr verk-
fræðingi? Mundi þessi verkfræðing-
ur ekki verða fyrirtækinu meiravirði,
ef hann héldi áfram að vera verk-
fræðingur, fremur en reyna að verða
stjórnandi?
Svar: Oft mundi það reynast
hyggilegra að láta verkfræðinginn í
friði við störf sín og reyna ekki að
gera úr honum stjórnanda. En samt
er það nú svo, að verkfræðingar
reyna gjaman að feta sig upp eftir
stjórnunarstiganum, og það er ekki
nema sanngjarnt, að þeim sé veitt
tækifæri. Margir þeirra standast
prófið og verða dugmiklir stjóm-
endur, með nokkurri undirbúnings-
aðstoð yfirmanna sinna. Satt er það,
að til eru hlédrægir og friðsamir
tæknimenn, sem eru frábærir sér-
fræðingar og myndu ekki vilja
þrauka í þeirri samkeppni eða til-
einka sér þann nýja lærdóm, sem
krafizt er af stj órnandanum. í þessu
tilfelli væri viturlegt, að þeir héldu
sér framvegis við sérgrein sína.
Spurning: Er hægt að breyta góð-
um verkfræðingi, sem ekki hefur á-
huga á að gerast stjómandi, í þá
átt?
Svar: Yfirleitt ekki. Þróun stjóm-
unarhæfni er í grundvallaratriðum
Iirundið af stað af eigin hvötum.
Maðurinn vex á þessum víðáttumeiri
sviðum að því marki, sem hann rek-
ur sjálfan sig áfram. Verkfræðingur
gæti, við þrýsting ofan frá, leyst af
höndum hlutverk stjórnandans, en ef
hann velur ekki þann kost af eigin
vitund eða vilja að breyta sjálfum
sér og vaxa á þeim mörgu sviðum,
sem stjórnunin nær til, þá er ólík-
legt, að unnt sé að breyta honum í
stjórnanda, sem nokkuð kveði að.
Spurning: Hvernig getið þér skor-
ið úr því, hvaða góðir verkfræðingar
gætu orðið góðir stjómendur?
Svar: Það er fjöldi einkenna eða
vísbendinga um stjómunarhæfni hjá
verkfræðingi. Slíkar vísbendingar
eru ásókn í meiri ábyrgð, fróðleiks-
fýsn í að læra um aðra hluti en hina
tæknilegu, valdaþörf og ánægja yfir
86
IÐNAÐARMÁL