Iðnaðarmál - 01.04.1970, Qupperneq 30

Iðnaðarmál - 01.04.1970, Qupperneq 30
tonna stálbáta til viðbótar. Hjá íyrir- tækinu vinna um 30 manns. (16. okt. 1970) Kremgerðin hf. í Kópavogskaupstað er að hefja framleiðslu á rjómalíki, mun ódýrara en ósvikinn rjómi. Efni þess eru sögð vera landbúnaðaraf- urðir að mestu og engin gerviefni. (17. okt. 1970) Frumvarp um fiskiðnskóla er nú end- urflutt á Alþingi sem framhald af tillögum fiskiðnskólanefndar frá 1966. (17. okt. 1970) Slippstöðin á Akureyri hefur tekið að sór smíði tveggja fiskibáta, 105 og 150 lesta, fyrir aðila í Reykjavík og Hafnarfirði. (17. okt. 1970) Tveir 500 tonna skuttogarar hafa ver- ið keyptir frá Frakklandi til Eskifjarð- ar og Norðfjarðar. Kaupverð hvors skips er um 40—50 milljónir króna. (17. okt. 1970) Akraprjón hf. er nýstofnuð prjóna- stofa á Akranesi og á hún að fram- leiða tízkufatnað fyrir kvenfólk úr lopabandi frá Álafossi hf. Stofnendur eru fjórir „hjálparkokkar af Akra- borginni", ásamt fleirum. Pantanir hafa borizt erlendis frá eftir sýningar í Kaupmannahöfn og Miinchen. (17. okt. 1970) A Brávallagötunni í Reykjavik er safn um 1000 viðartegunda. Safnarinn er hinn góðkunni kennari Iðnskólans í Reykjavík, Haraldur Ágústsson. Safn þetta þyrfti að fá verðugan samastað í opinbem byggingu, t. d. Iðnskólan- um, svo fleiri fái notið þess en Har- aldur. (18. okt. 1970) Dr. Gunnar Böðvarsson verkfræðing- ur lék sér fyrir 20 árum að þeirri hug- mynd að auka vatnsmagn Hitaveitu Reykjavíkur með því að dæla vatni í dauðar borholur í Mosfellssveit og þrýsta því gegnum heit jarðlög til upp- hitunar. Nú er þetta gamla „grín” að verða veruleiki suður á E1 Salvador, samkvæmt frásögn Sveins Einarsson- ar vélaverkfræðings, sem þar starfar sem ráðgjafi á vegum Sameinuðu þjóðanna. (18. okt. 1970) Islandskynning í Bandaríkjunum hlýt- ur verðskuldaða athygli að frásögn Péturs Péturssonar forstjóra. íslenzkar vörur seljast upp og vonir eru um góða framhaldsmöguleika á þessum markaði. (18. okt. 1970) Frumvarp um olíuhreinsunarstöð á íslandi var lagt fram sem stjórnar- frumvarp á Alþingi og fylgt úr hlaði af forsætisráðherra, Jóhanni Hafstein. Gerir frumvarpið ráð fyrir stofnun undirbúningsfélags til stofnunar stöðv- arinnar. (20. okt. 1970) Hjá Þorgeiri og Ellert hf. á Akranesi eru nú þrír stálbátar, rúmlega 100 tonna, í smíðum. Fyrirtækið er rúm- lega 30 ára, og eru þetta 23.—25. verkefni þess. í stað skipabrautar er í skipasmíðastöðinni skipalyfta, sem lyftir allt að 500 tonnum. (20. okt. 1970) Fataframleiðendur og Iðnskólinn í Reykjavík hafa stofnað til 6—10 daga námskeiða í verksmiðju-fatasaumi. Er ákveðið, að námskeið þessi standi í 6 vikur, eða nóvember og hálfan des- ember. (21. okt. 1970) Á Hellu eru í smíðum 3 iðnaðarhús. Atvinna er þar mikil, og sömuleiðis eftirspum eftir vinnuafli. (24. október 1970). í 29 ríkismötuneytum í Reykjavík snæða um 1300 manns daglega. í at- hugun er að framleiða mat þennan í einu iðnvæddu eldhúsi eða kaupa hann á frjálsum markaði og dreifa í býtieldhús ríkisstofnananna. (25. okt. 1970) Vikulegur iðnaðarþáttur í hljóðvarpi er nýhafinn á mánudagskvöldum. Umsjónarmaður er Sveinn Bjömsson verkfræðingur. Þættimir verða um 25 að tölu, og eiga þeir að fjalla um einstakar greinar iðnaðarins, iðnþró- un og stofnanir og samtök iðnaðarins. (26 .okt. 1970) Islandskynnng Álafoss hf. og Tómas- ar Holtons kaupmanns er nú í Michi- ganríki í Bandaríkjunum og hlýtur verðskuldaða athygli. Hún verður í 10 borgum þar, en fer síðan til Cin- cinatiborgar. (26. okt. 1970) Niðursuðuverksmiðju er verið að setja upp hjá Síldarvinnslunni hf. í Nes- kaupstað og á hún að taka til starfa í ctrsbyrjun 1971. Þar á að vinna sjó- lax (ufsa), gaffalbita úr síld, kavíar og fleira. (27. okt. 1970) Loðdýr hf. selja Fjarðarmink hf. í Hafnarfirði 300 lífminka, 250 læður og 50 karldýr, til undaneldis. (27. okt. 1970) LoðdýraStofn Dana hefur aukizt um 10% á þessu ári, eða í 1,1 milljón. Verðfall á skinnum á sama tíma er um 30%. (27. okt. 1970) Stofnun útflutningsráðs er fyrirhuguð. Hlutverk þess yrði markaðskönnun og leit fyrir íslenzkan iðnað og upp- lýsingamiðstöð fyrir útflytjendur. (27. okt. 1970) Bátalón hf. í Hafnarfirði hefur lokið smíði 10 frambyggðra báta, 10—11 rúmlesta, 3 eru í smíðum og 14 á pöntunarlista, eða alls 27 bátar af sömu gerð. Þeir fara í verstöðvar víðsvegar um landið. (29. okt. 1970) Siglóverksmiðjan fær nú 7400 tunnur kryddsíldar til vinnslu. Verksmiðjan hefur oft búið við mikinn hráefna- skort. (29. okt. 1970)

x

Iðnaðarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.