Víkurfréttir - 18.04.2012, Blaðsíða 15
15VÍKURFRÉTTIR • MIÐVIKUdagUrInn 18. aPrÍL 2012 25 ÁRA AFMÆLI FLUGSTÖÐVAR LEIFS EIRÍKSSONAR FAGNAÐ
Gullstemning
Í OFFANUM
Gullsleginn andi Austin Powers sveif yfir
vötnum í 25 ára afmælispartýi Flugstöðvar
Leifs Eiríkssonar sem starfsmönnum stöðvar-
innar var boðið í á föstudagskvöldið í tilefni
aldarfjórðungsafmælis í Officera klúbbnum á
Ásbrú.
Um 3-400 manns mættu með góða skapið og
fjölmargir voru klæddir eftir uppgefnu þema
sem var Austin Powers goldmember myndin
en þar, eins og nafnið gefur til kynna, er það
gullið sem er lykilorðið. Starfsmenn stærsta
vinnustaðar á Suðurnesjum skemmtu sér hið
besta við dans og drykk og góðir gestir eins og
Herbert Guðmundsson, Buffið og Siggi Hlö sáu
um að tónlistin væri við hæfi við þemað. Með-
fylgjandi myndir tók Páll Ketilsson í Offanum.
Eins og myndirnar sýna var stemning mikil í gamla yfirmannaklúbbi varnarliðsins á Vellinum. Sumir gengu svo langt að sérsauma gullbindi fyrir kvöldið.
Nokkur hundruð starfsmenn í flugstöðinni gerðu sér svo sannarlega glaðan dag í tilefni aldarfjórðungsafmælis og Hlynur Sigurðsson, framkvæmdastjóri (í Austin Powers gallanum) þakkaði
þeim fyrir frábæra frammistöðu en Keflavíkurflugvöllur hefur tvívegis á undanförnum þremur árum verið kosinn besti flugvöllur í Evrópu í sínum stærðarflokki.
FLUGSTÖÐ LEIFS EIRÍKSSONAR
ÞAKKAR SUÐURNESJAMÖNNUM SAMSTARFIÐ Í ALDARFJÓRÐUNG