Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.03.2013, Qupperneq 9

Neytendablaðið - 01.03.2013, Qupperneq 9
Neytandasamtökin í ár Neytendasamtökin hafa um áratuga skeið barist fyrir sjálfsögðum réttarúrbótum eins og fullnægjandi merk- ingum á matvælum. Neytendablaðið gagnrýndi gjarnan hversu oft skorti upplýsingar um þyngd vöru, innihalds- lýsingu eða dagstimpil þegar um var að ræða vöru sem seld var á íslenskum markaði. Ef varan var flutt út var hins vegar ekkert því til fyrirstöðu að merkja vöruna vel og vandlega. Eftirfarandi afsökunarbeiðni birtist í Neytendablaðinu árið 1969, í kjölfar umfjöllunar blaðsins um lélegar merkingar íslenskra framleiðenda. Afsökunarbeiðnin verður seint talin einlæg en í henni er ýjað að tvískinn- ungi framleiðenda á kaldhæðinn hátt. „Við höfum skýrt frá því hér í blaðinu að íslenzkir fram- leiðendur og seljendur segi íslenzkum neytendum aldrei frá því hve mikið er í pakkanum, flöskunni eða dósinni. Frekari athugun hefur leitt í ljós að hér er ekki farið með rétt mál. Í flestum siðmenntuðum löndum er lagaleg skylda að segja á umbúðum frá þyngd innihaldsins. Á þeim íslenzku fram- leiðsluvörum, sem eru ætlaðar til útflutnings, er þess vegna ávallt getið um þyngd og innihald. Á íslenzkum fram- leiðsluvörum, sem ætlaðar eru til sölu innanlands, er að vísu sjaldan getið um slíkt, en hins vegar eru margar vörur, sem ætlaðar eru til útflutnings eftir umbúðum að dæma, seldar á innanlandsmarkaði. Þannig fá íslenzkir neytendur íslenzkar framleiðsluvörur, þar sem þyngdar og innihalds er getið á umbúðum á fínum erlendum málum og í fínum erlendum þyngdareiningum. Og því verður það, að þótt íslenzkir neytendur geti ekki keypt dós, sem á stendur: kjötbollur, 1 kg Sláturfélag Suðurlands, geta þeir keypt dós, þar sem á er letrað: Meatballs, 2 lbs Sláturfélag Suður- lands. Við biðjum því framleiðendur auðmjúklega afsökunar. Við biðjum íslenzka neytendur einnig áfsökunar á því að við höfum aldrei séð þeim fyrir þeirri mikilvægu fræðslu, hvað ensku, sænsku eða frönsku orðin og þyngdareiningarnar á íslenzkum framleiðsluvörum þýða. Til að bæta úr þessu ætlum við að þýða nokkur erlend heiti á íslenzkum umbúðum. Listinn er þó engan veginn tæmandi. Fish balls = fiskibollur. Meat-loaf = kjötbúðingur. Smoked herring = reykt síld. Peeled shrimps = pillaðar rækjur. Net weight = nettó vigt. 1 ounce = 28,35 grömm. 1 lbs =453 grömm. Produce of Iceland = íslenzk framleiðsla. Codfish fillets = þorskflök. Við vonum að hér eftir geti íslenzkir neytendur áttað sig fyllilega á góðri þjónustu íslenzkra matvælafyrirtækja.“ myndir: Seðlabanki Íslands - Neytendur upplýstir um erlend heiti og mælieiningar Afsökunarbeiðni Þegar Neytendasamtökin voru stofnuð 1953 var árgjaldið 15 krónur og árið 1960 var það komið upp í 45 krónur. Þótti það heldur lágt enda samsvarar það ekki nema rétt um 1.100 krónum miðað við verðlag í dag. Á þessum tíma byggðist starfið að mestu á sjálfboðaliðavinnu og reksturinn var allur mjög smár í sniðum. Í dag er árgjaldið 5.200 krónur. 9

x

Neytendablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.