Neytendablaðið - 01.03.2013, Side 15
sem þessir mikilvægu fæðuflokkar fá í búðinni „skot“. Á
um það bil fimm fermetrum, þar sem varla er hægt að
snúa sér við, hvað þá koma innkaupavagninum
almennilega fyrir, má finna nokkrar tegundir af ávöxtum
og nokkrar tegundir af græn meti. Úrvalið er ekkert
sérstakt, gæðin mjög misjöfn og þarna hef ég oftar en
ekki orðið fyrir miklum vonbrigðum í fyrri
innkaupaferðum. Kosturinn er hins vegar sá að ég get
alltaf gengið að dýrindis tómötum og gúrkum, enda eru
þær vörur framleiddar í nærumhverf inu. Tómatarnir
hafa bjargað mörgum annars mjög til breytingarsnauðum
máltíðum og eru auk þess vinsælt snakk á heimilinu. Ég
reyni mitt besta að velja það sem mér líst á, enda þarf
fjölskyldan mín rúmlega kíló af þessum mikilvægu
vörum á degi hverjum. Eftir að hafa athafnað mig í
ávaxta- og grænmetisskotinu gríp ég mjólkurvörur á
mjög þröngum gangi og þakka fyrir að ekki sé meiri
umferð í búðinni, enda ekki hægt að koma annarri
innkaupakerru framhjá meðan ég sæki mjólkur vörur í
kælinn. Ég á ennþá eftir nokkurn spöl að af greiðslu -
kassanum. Við endann á þrönga mjólkurvöru ganginum
geng ég inn í stórt rými. Varlega áætlað er þetta rými að
minnsta kosti þrisvar sinnum stærra en ávaxta- og
grænmetisskotið. Nammibarinn þekur einn vegg og á um
það bil fimm metra löngum vegg má finna allar þær
tegundir af súkkulaði og sælgæti sem hugurinn gæti
girnst. Búið er að þrengja aðeins að nammirýminu með
því að koma fyrir tveggja metra háum stafla af
kartöfluflögum í kössum á miðju gólfinu. Á þessum stað
í búðinni leyfi ég mér reglulega að hneykslast á því
hversu miklu plássi í þessari annars ágætu búð er sóað í
vörur sem við þurfum ekki á að halda meðan varla er
hægt að snúa sér við á öðrum stöðum. Hvað ætli
hillupláss undir allar þessar vörur kosti? Ég endurraða
vörunum í búðinni eldsnöggt í huganum og ímynda mér
að ég sé stödd í rúmgóðu og fallegu ávaxta- og græn-
metis rými með hnetu- og baunabar í stað sælgætis-
barsins. Ég vakna þó upp af draumum mínum við
afgreiðslu kassann og verð fyrir vonbrigðum þegar
afgreiðslustúlkan tilkynnir mér hvað ég eigi að borga
mikið. Reyni samt að brosa og vona að einhvern tímann
eigi ég kost á því að versla í búð þar sem fæst „bara það
sem ég þarf“.
-IG-
Sælgætisbarir fá gott pláss í flestum verslunum.
Hvar er ódýrast að
kaupa rafmagn?
Það er ekki auðvelt fyrir neytendur að átta sig á hvað raforkan kostar enda
eru raforkureikningar flóknir og þar að auki tvískiptir. Raforkukaup í dag
fylgja nefnilega sömu reglum og sófakaup þar sem annars vegar er greitt
sérstaklega fyrir sófann sjálfan og hins vegar fyrir flutninginn á honum heim.
Dreifing raforku er sérleyfisþáttur en sala á raforku er hins vegar á sam-
keppnismarkaði og öllum er frjálst að skipta um orkusöluaðila.
Sex aðilar selja rafmagn á markaði í dag. Þó að verðmunur á milli fyrirtækja
sé ekki yfirþyrmandi þarf það ekki endilega að þýða skort á samkeppni. Öll
fyrirtækin selja nákvæmlega sömu vöru og ættu því að elta, eftir bestu getu,
lægsta boð hverju sinni. Hjá öllum orkusöluaðilunum hefur verð á söluhluta
raforku t.d. haldist undir vísitölu neysluverðs ólíkt sumum dreifiveitunum
sem hækkað hafa verð umfram vísitöluna undanfarin ár. Til að auðvelda
raforkukaupendum að átta sig á raforkukostnaði heimila og bera saman verð
á milli söluaðila hefur Orkusetur sett upp einfalda reiknivél á heimasíðu
sinni, www.orkusetur.is Þar má einnig finna mikið af góðum upplýsingum um
orkusparnað almennt.
- Moli frá Orkusetri
15