Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.03.2013, Síða 19

Neytendablaðið - 01.03.2013, Síða 19
Maxfactor Lipfinity lofar allt að 12 klukkustunda endingu. Aðrir varalitir heita nöfnum eins og Longwear, Long Last eða Superstay. Þýsku Neytendasamtökin Stiftung Warentest fengu 25 konur til að prófa mismunandi tegundir af varalitum í heila viku. Þær skráðu hversu oft þurfti að endurnýja smurning- una yfir daginn. Ýmis próf voru lögð fyrir varirnar svo sem að borða fituríkar kartöfluflögur, drekka heitt kaffi og kyssa. Í ljós kom að hefðbundnir varalitir entust skemur og oftast þurfti að fríska upp á varirnar innan fjögurra tíma. Af hefðbundnum varalitum stóð Long Last frá Clinique sig best á meðan endingin hjá Clarins Rouge Prodige og La Roche Posay Novalip Duo var talsvert lélegri, jafnvel þó sá síðastnefndi eigi að endast allan daginn. Hann virkar hins vegar vel sem varasalvi að sögn tilraunadýranna. Tvísamsettir varalitir, Max Factor Lipfinity og Mac Pro Longwear Lipcolour, voru einnig prófaðir en þá er um að ræða fljótandi varalit sem er borinn á varirnar og látinn þorna, ásamt gljáa (gloss) til að bera ofan á. Báðir þessir varalitir komu mjög vel út í prófinu. Þeir eru endingargóðir og þekja vel. Tveggja þrepa varalitir entust allir í að minnsta kosti átta tíma og heitt kaffi, feitar flögur eða kossaflens bitu ekkert á þá. Bláber eða litaður sykurköggull? VARALITIR SEM VARA LENgI 1. Maxfactor Lipfinity er mjög endingargóður tveggja þrepa varalitur. 2. Lancome Rouge in Love þekur litinn vel, en er tæplega endingargóður. 3. Clarins Rouge Prodige er tæplega endingargóður og breytist við hita. 4. Clinique Long Last Lipstick er bestur af hefðbundnu varalitunum og er endingargóður. 5. La Roche Posay endist ekki eins lengi og er lofað, en fer vel með varirnar. 6. Mac Pro Longwear Lipcolour er mjög endingargóður tveggja þrepa varalitur. varist óæskileg efni í varalitum Konur sem nota varalit að jafnaði geta borðað allt að tveimur kílóum af varalit um ævina samkvæmt þýska neytendablaðinu Stiftung Warentest. En skyldu varalitir innihalda skaðleg efni? Hægt er að leita eftir efnum sem eru ofnæmisvaldandi eða hormónaraskandi á innihalds- lýsingunni. Því miður er ekki svo auðvelt að lesa örsmátt letrið á bakvið strikamerki vörunnar, nú eða fá þessar upplýsingar í versluninni. Í mörgum varalitum finnst gula asó-litarefnið tartrazin (CI 19140), en það er einnig notað í matvæli (E 102). Tartrazin er eitt þeirra efna sem grunuð eru um að valda ofvirkni hjá börnum og er einnig þekktur ofnæmisvaldur. Í varalitum er líka hætta á að rekast á efni sem raska hormónajafnvægi – Paraben og Methylhexyl methoxycinna- mate, sem er auglýst sem UV-vörn. Þá geta sum lyktarefni verið ofnæmisvaldandi. Þungmálmar eins og blý geta einnig mengað varaliti og finnast stundum í möskurum. Það fundust þó engir þung- málmar í könnun Stiftung Warentest né í könnun sem Tænk gerði árið 2009. Þýtt úr TÆNK febrúar 2013 Varalitir standast ekki alltaf fyrirheitin sem felast í nöfnum þeirra. Sumir endast samt nokkuð vel, sérstaklega þeir sem innihalda gljáa. Í varalitum er líka hætta á að rekast á efni sem raska hormónajafnvægi NEYTENDABLAÐIÐ // MARS 2013 // varalitir 19

x

Neytendablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.