Neytendablaðið - 01.03.2013, Blaðsíða 20
- ekki farið eftir reglum
Varúðarmerking vegna
umdeildra litarefna
Á innihaldslýsingu má
sjá að þessi lakkrís-
rúlla inniheldur bæði
E104 og E122 og ætti
því að upplýsa neyt-
endur um það hvaða
áhrif þessi efni geta
haft.
Þetta snakk inniheldur þrjú af
efnunum umdeildu; E102, E110
og E124 en enga varúðar-
merkingu
Neytendablaðið hefur í gegnum árin fjallað um hin
umdeildu asó-litarefni. Þekkt er að efnin geta valdið
ofnæmisviðbrögðum en alvarlegra er þó að lengi hefur
leikið grunur á að efnin hafi óæskileg áhrif á börn og að
tengsl séu á milli neyslu þeirra og ofvirkni. Niðurstöður
breskrar rannsóknar frá árinu 2007 þóttu staðfesta
þetta og í kjölfarið ákvað Evrópusambandið að matvæli
sem innihéldu eitthvert hinna sex litarefna sem
rannsökuð voru skyldu merkt með varúðarmerkingu.
Reglugerðin var innleidd hér á landi fyrir ári síðan.
Vörur sem innihalda efnin: E 102 (Tartrasín), E 104
(Kínólíngult), E 110 (Sunset Yellow FCF), E 122
(Asórúbín), E 124 (Ponceau 4R) eða E 129 (Allúrarautt)
eiga að vera með viðvörunina: „heiti eða E-númer
litarefnis eða litarefna: getur/geta haft neikvæð áhrif á
athafnasemi og eftirtekt barna“.
Þótt flestir framleiðendur hafi skipt efnunum út fyrir
önnur eru þau greinilega enn í notkun og það jafnvel án
varúðarmerkingar. Það er að mati Neytendasamtakanna
óásættanlegt og hvetja þau eftirlitsaðila til að gera
úttekt á þessu máli. Sælgætisbarirnir eru t.d. flestir án
nokkurra merkinga en litarefnin er einmitt helst að
finna í sælgæti.
Bubble gum
sleikipinnar
innihalda E102,
E110 og E129 og
hér má sjá
varúðar-
merkingu.
Hún er að vísu
á ensku og
aftan á um-
búðunum.
Tvöföld tútta er einhvers konar sleikipinni sem
inniheldur bæði efnin E102 og E129 en enga
varúðarmerkingu. En jafnvel þótt hún væri til staðar þá
myndi það gagnast lítið því letrið er svo smátt að það
sést vart með berum augum.
Í þessu hlaupi má finna E104 og E129. Hér eru efnin þó
ekki talin upp sem E-númer. Framleiðendur ráða því
nefnilega hvort þeir nota E-númer eða heiti viðkomandi
aukefnis. Ef um innfluttar vörur er að ræða mega nöfnin
vera á ensku eða Norðurlanda máli öðru en finnsku.
Aukefnin geta því gengið undir ýmsum nöfnum.
NEYTENDABLAÐIÐ // MARS 2013 // ASó-litArefni
Í þessum party sleikjó eru 4
litarefni af þeim 6 sem sér-
stök ástæða þykir til að vara
við; E104 E110, E122 og
E129
Athygli vekur að varúðarmerking á matvælum má vera
á erlendum tungumálum, þ.e. ensku eða Norðurlanda-
málum öðrum en finnsku. Þyki ástæða til að vara við
ákveðinni vöru á merkingin að vera þannig að allir
neyt endur skilji hana. Hugsanlega breytast þessar
reglur þegar ný matvælaupplýsingareglugerð Evrópu-
sambandsins tekur gildi hér.
20