Neytendablaðið - 01.03.2013, Síða 24
Neytendasamtökin hafa aldrei haft mikið umburðarlyndi gagnvart
vill andi markaðssetningu og hér áður fyrr voru það gjarnan sápur og
hrein lætisvörur sem urðu fyrir barðinu á skeleggum blaðamönnum
Neytenda blaðsins. Eftirfarandi birtist í 1. tölublaði 1961
Tannkrem, sápur og þvottaefni
eru einhverjar mest skrumauglýstu vörur, sem á markaði eru. Varla er
hægt að opna blað án þess að rekast á heimsins bezta þvottaefni,
tannkrem sem leysir öll vandamál hvers manns túla, og sápu, sem gerir
yður – ef þér eruð kvenmaður – líkasta kvikmyndastjörnu. En ef nota á
sápuna til þvotta, tökum til dæmis nýbirta auglýsingu um Sólskinssápu,
þá gerir hún þetta: „Hin freyðandi Sólskinssápa fjarlægir þrálátustu
óhreinindi á svipstundu, án sérstaks nudds.“ Já það er létt verk og
löðurmannslegt að annast þvotta á vorum dögum. „Gerið þvottadaginn
að hvíldardegi“ sagði Hvile Vask, en hefur nú sjálft fengið mestu hvíldina.
Það er vel ef þessar áberandi auglýsingar verða til þess að auka áhuga
manna á hreinlæti. Auglýsingakostnaðinn verður að leggja á vöruna, en
verst er, ef hún er gerð rán-dýr í krafti fjarstæðukenndra staðhæfinga,
undra-eiginleika. Menn skyldu aldrei flýta sér að kaupa undra-vörur.
Það er hægt að fullyrða að nær undantekningalaust er ekkert nýtt við
þær, sem nokkurra peninga virði er, ekkert nýtt nema skrumið og
sölubragðið.“
Andlitskrem með estrógeni
Í leiðbeiningabæklingi Neytendasamtakanna frá sama tíma er ítarleg
umfjöllun um snyrtivörur. Er þar meðal annars fjallað um vinsæla vöru
sem kölluð er hormónakrem. Sýnt hafði verið fram á að krem með
estrógeni gætu haft yngjandi áhrif á húðina og seldu allir helstu
snyrtivöruframleiðendur slík krem með fögrum fyrirheitum. Neytenda-
samtökin gagnrýndu markaðs setninguna og drógu fullyrðingarnar í efa:
„Margur syrgir sína æsku og sinn æskuþrótt, og það er auðvelt að gera
sér það að féþúfu. Og hugsið ykkur, að eftirfarandi upplýsingar geta á
vorum dögum fylgt dýrri krukku af hormónakremi. „Með reglulegri og
stöðugri notkun, sé leiðbeiningum fylgt nákvæmlega, mun hörundið á
andliti og hálsi skjótlega sýna greinilega framför vefjanna. Hinn
dásamlegi æskublómi birtist enn á ný með mýkt og þrótti hins eðlilega,
bjarta litarháttar, sem sérhver kona þráir svo heitt.“ Þetta hljómar vel!
Um að gera að kaupa kremið stöðugt og reglulega, og svo er það
ónákvæmni notandans að kenna, að æsku blóminn birtist ekki á ný.“
Í þá gömlu góðu daga
- Neytendasamtökin síðan 1953