Neytendablaðið - 01.04.2008, Síða 16
GOTT VÍDEÓ
Canon PowerShot A 650 IS hlaut 3,6 í
heildareinkunn og kostaði um 45 þús. Kr.
í Nýherja og Beco (í Beco án hleðslutækis).
Þetta er góð og traust vél og fékk hæstu
einkunn fyrir myndgæði og tímalengd
myndskeiða (vídeóa) af þeim vélum sem
hér fengust og eru í gæðakönnuninni.
GÓÐ KAUP
Panasonic Lumix DMC-FX100 EG hlaut
3,5 í heildareinkunn og fékkst á aðeins
um 33 þús. kr. í Sjónvarpsmiðstöðinni en
var dýrari í BT og Tölvulistanum. Þetta er
vönduð, fjölhæf og handhæg vél á góðu
verði.
GÓÐ KAUP
Olympus µ 780 (mju 780) hlaut 3,2 í heild-
ar einkunn og fékkst á um 27 þús. kr. í
Sjón varpsmiðstöðinni. Sjálfvirk og hentug
fyrir skyndimyndatöku, lítil, létt, kíkislaus
og þolir vatnsdropa og skvettur. Skilar
viðunandi myndgæðum við góð skilyrði og
getur tekið við lítið ljós án þess að myndir
verði kornóttar.
HRAÐI
Pentax K10D fékkst á um 90 þús. kr. í
Ljósmyndavörum. Þessi vél getur tekið
myndir með 0,3 sekúndu millibili. Fólk sem
vill myndavélar sem geta hratt tekið margar
myndir í röð, t.d. af íþróttaviðburðum eða
dýrum, gerir góð kaup í henni.
PIXLAR
Vélarnar eru með mismunandi upplausn,
yfirleitt á bilinu 5-12 milljónir pixla (mega-
pixla). Hærri tölur gefa kost á stærri og
skarpari myndum en líka meiri gæðum í
meðferð ljósbrigða, lit og mettun. Mega-
pixla-fjöldinn einn og sér segir ekki til
um gæði vélarinnar, eins og oft má sjá í
heidlargæðaeinkunnum. Í rauninni nýtast
allar þessar milljónir pixla ekki nema ef á
að stækka myndina mjög mikið (eða hluta
úr henni). Og stundum er afl vélarinnar
upptekið við að þjóna ljósmyndaranum við
eitthvað annað en myndgæði.
HRISTIVÖRN
Hristivörn er oft gagnleg og gengur undir
ýmsum nöfnum á ensku, t.d. „image
stab ilisation“, „steadyshot“ eða „shake
re duction“. Þessi tækni dregur úr hættu
á að myndin verði hreyfð, sérstaklega
ef notandinn er skjálfhentur, en líka
við aðstæður þar sem ljós er lítið og ef
að dráttarlinsa er notuð. Hún er sniðug til
að losna við flassglampa, rauð augu og
sterka skugga. Þetta virkar ekki alltaf. Það
var aðeins í Nikon S 50 sem árangurinn var
verulega sannfærandi.
Hristivörn getur verið tvenns konar. Dýrari
tæknin og sú sem virkar betur er „vélræn“
vörn sem er raunveruleg, en þá hreyfast
hlutir í linsu og/eða vélinni og vinna á móti
hreyfingunni eða hristingnum. Ódýrari
tækn in er stafrænn búnaður sem skilar oft
ekki eins góðum árangri, enda aðeins um
það að ræða að ljósnæmi vélarinnar er
aukið, sem aftur skilar kornóttari mynd.
Stafrænar myndavélar
16 NEYTENDABLA‹I‹ 1. TBL. 2008